blaðið - 22.07.2005, Blaðsíða 4

blaðið - 22.07.2005, Blaðsíða 4
- ávinningur! ávinningur! ávinningur! ávinningur! ávinningur! ávinningur! ávinningur! 4 I INWLENDAR FRÉTTIR Kaup 365 Ijósvakamiðla á Saga Film Skjár 1 mun ekki framlengja samninga Ármann fær íþróttahús Borgarráð samþykkti í gær að byggja nýtt íþróttahús fyrir fimleikafélagið Ármann í Laugardal. Þétting byggðar við Sóltún gerir ráð fyrir að núverandi íþróttahús Ár- manns víki og hafa viðræður um úrræði staðið um hríð. Á þessu ári fara 240 milljónir króna til byggingarinnar og 440 milljónir á því næsta. VéÍamiðstöðin að seljast Islenska gámafélagið skilaði hæsta tilboði í Vélamiðstöðina ehf. en það nam 735 milljónum króna. Sjö önnur tilboð bárust en eigendur Vélamiðstöðv- arinnar, Reykjavíkurborg og Orkuveita Reykjavíkur, ákváðu að ganga til viðræðna við hæstbjóðanda. Salan á Vélamið- stöðinni er liður í endurskoð- un á rekstri og rekstrarformi borgarfyrirtækja og -stofnana. Skýringar á SPH Bæjarráð Hafnarfjarðar óskar eftir skýringum og upplýs- ingum frá stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar um lögformlega réttarstöðu sparisjóðsins og Hafnarfjarðarbæjar, með tilliti til laga um sparisjóði og sam- þykkta um Sparisjóð Hafnar- fjarðar í ljósi umræðu um mál- efni sjóðsins á liðnum vikum. i Saga Film, sem 365 samsteypan keypti í fyrradag, framleiðir meðal annars þáttinn Allt f drasli fyrir Skjá 1 Kaup 365 ljósvakamiðla á fyrirtæk- inu Saga Film í fyrradag hefur vak- ið nokkra athygli, meðal annars vegna þess að Saga Film hefur að undanförnu unnið að tveimur þátt- aseríum fyrir helsta samkeppnisað- ila 365, þ.e. Skjá 1. Ennfremur hefur fyrirtækið framleitt fjöldann allan af þáttum fyrir Ríkissjónvarpið á undanförnum árum. Stöðugt þrengt að öðrum miðlum Að sögn Magnúsar Ragnarssonar, sjónvarpsstjóra Skjás eins, hefur Saga Film undanfarið unnið að und- irbúningi hins íslenska bachelor og er vinnsla þáttanna langt komin. Ennfremur hefur fyrirtækið fram- leitt þættina Allt í drasli fyrir Skjá einn. Aðspurður um það hvaða áhrif kaup 365 á Saga Film hefðu sagði Magnús að ekki yrði hætt við framleiðslu þessara tveggja þáttar- aða nú enda sé búið að ganga frá öllum samningum um þá. Hinsveg- ar gerir hann ekki ráð fyrir að þeir samningar verði endurnýjaðir. „Mér lýst ekkert sérstaklega vel á þessa þróun. Það er stöðugt verið að þrengja að öðrum miðlum með stækkun 365. Það er ekki spennandi 6 stkfíðlœrar plöntur aa cigin v kr. 1990 6 stk. pottablóm að eigin vali kr. 1990 30% afsláUur af skrautrunnum GRÓÐRARSTÖÐIN fyrir okkur að vera með verkefni hjá samkeppnisaðilunum” sagði Magn- ús. ir að þar á bæ hafi ekki verið tekin nein afstaða gagnvart Saga Film eft- ir kaup 365 á fyrirtækinu. 170 miiljón króna fjárfesting Heildarvirði nýjustu fjárfestingar 365 ljósvakamiðla, Saga Film, er um 170 milljónir króna samkvæmt útreikningum greiningardeildar íslandsbanka. Kaupverðið er 125 milljónir en ofan á það bætast vaxta- berandi skuldir sem nema 45 milljónum króna. Áætluð velta Saga film í ár er um 580 milljón- ir. ■ Starfsmenn RÚV rólegir Saga Film hefur ennfremur framleitt fjölmarga þætti fyrir Ríkissiónvarp- ið, meðal annars þættina í einum grænum, Laxá í Aðaldal og nú síðast tólf þátta leikna seríu sem ber nafn- ið Kalla kaffi. Rúnar Gunnarsson, yfirmaður innlendrar dagskrárgerðar hjá RÚV seg- lotto.is Bretar svara umhverfisráðherra vegna Sellafield Leki á geislavirkum efnum hófst í júlí 2004 I síðasta mánuði sendi Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráð- herra, kollega sínum í Bretlandi bréf vegna leka á geislavirkum efnum í kjarnorkuendurvinnslustöðinni Sellafield. Upp komst um lekann 19. apríl síðastliðinn og þegar lá ljóst fyr- ir að hann hafði staðið yfir mánuð- um saman. I bréfi sínu lýsti ráðherra áhyggjum íslenskra stjórnvalda vegna málsins sem og þeirri skoðun að tryggja þyrfti öryggi stöðvarinnar áður en hún yrði opnuð aftur. Utan- ríkisráðuneyti Bretlands hefur nú svarað umræddu bréfi. Sellafield ekki opnuð á næstunni I samtali við Blaðið staðfesti Sigríð- ur Anna að í svarbréfinu hafi verið raktar þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á tildrögum lekans en hluti rannsóknarinnar standi enn- .þá yfir. „I bréfinu er meðal annars staðfest að lekinn hafi ekki farið út fyrir stöðina og því hafi engin veru- leg hætta stafað af honum” segir Sig- ríður. Hún segir að ljóst sé að stjórn- völd ytra líti málið mjög alvarlegum augum. Þegar upp hafi komist um lekann hafi þegar verið tilkynnt að stöðin yrði lokuð í sex mánuði en nú sé ljóst að það muni ekki standast og að einhver bið verði á að stöðin opni á ný. Nýjar upplýsingar í rannsóknarskýrslu Sigríður segir ennfremur að í skýrslu sem gerð hafi verið í kjölfar slyssins komi fram að lekinn hafi hafist mun fyrr en áður var talið. Upphaflega var talið að rör hafi byrj- að að gefa sig í ágúst í fyrra og að tal- Bresk stjórnvöld hafa svarað umhverf- isráðherra vegna leka á geislavirkum efnum í Sellafield ið sé að geislavirk efni hafi byrjað að leka um miðjan janúar í ár. Nú liggi hinsvegar fyrir að lekinn hafi hafist þegar í júlí 2004. Sigríður segir að það sé að sjálfsögðu grafalvarlegt mál en að bresk stjórnvöld hafi tek- ið málið föstum tökum og að hún sé nú fullviss um að stöðin verði ekki opnuð á ný fyrr en öryggi hafi verið tryggt að fullu. ■ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 bla6ÍA Starfsmenn gcesluvalla Starfsloka- samningar Starfslokasamningar verða gerðir við starfsmenn gæsluvalla Reykja- víkurborgar en drög að þeim liggja þegar fyrir. Verður þeim starfsmönnum, sem ekki þiggja áframhaldandi störf hjá borginni, boðið upp á óskertar launagreiðslur í þrjá til sex mánuði, eftir líf- og starfsaldri, án þess að óskað sé eftir vinnuframlagi þeirra á meðan á uppsagnarfresti stendur. Starfslok miðast við 31. ágúst næstkomandi. ■ Körlum fjölg- aríVR Félagsmenn íVerslunarmanna- félagi Reykjavíkur eru nú rúmlega 22 þúsund. Konur eru þar í miklum meirihluta, eða um 61%. Karlmönn- um hefur þó fjölgað hægt og bítandi síðustu ár. Félagsmönnum hefur íjölgað um helming frá árinu 1988 þegar þeir voru rétt tæplega 11 þús- und talsins og voru konur þá um 66% félagsmanna. Fyrir fimm árum voru karlarnir 37% af félagsmönn- um eða 2% færri en þeir eru í dag. ■ Sektum fækk- ar mUli ára Árið 2004 sendi lögreglan út 36 þús- und sektir fyrir ýmis afbrot. Það er nokkur fækkun frá árinu áður þegar tæpar 39 þúsund sektir voru sendar út. LAngflestar sektir voru sendar út fyrir of hraðan akstur eða rúmlega 20 þfesund. Árið 2004 fækk- aði þeim seia. sviptir voru ökurétt- indum á griindvelli punktafjölda um rúmlega 47% eða úr 72 í 38. Eins og fyrri ár voru karlmenn í miklum meirihluta þeirra sem sviptir voru ökuréttindum eða 89,5% og voru lið- lega 59% þeirra 20 ára eða yngri. ■ Ríkislögreglustjóri Launakostn- aður jókst um 100 mUljón- ir milli ára Rekstrarkostnaður embættis Ríkis- lögreglustjóra jókst um 17% milli áranna 2003 og 2004 og munar þar mestu um aukinn launakostnað. Var hann rúmar 465 milljónir fyrir tveimur árum en ríflega 567 millj- ónir í fyrra samkvæmt ársskýrslu embættisins. Kostnaður vegna húsnæðis lækkaði á sama tíma um 29% eða um tæpar 25 milljónir. ■ HÁDEGISVERDARTILBOÐ 690 .“Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborð: 30 % AFSLÁTTUR AF HEILUM SKAMMTI í HITABORÐINU Sóltún 3 Bæjarllnd 14-16 S 562 9060 S 564 6111

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.