blaðið - 22.07.2005, Blaðsíða 14

blaðið - 22.07.2005, Blaðsíða 14
blaðið Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. BETRA VEÐUR OG BETRI BORG Ayndislegum sumardögum sem þessum er auðvelt að hríf- ast af fegurð landsins og það þarf ekki að fara út á land til þess. Höfuðborgarsvæðið getur verið ægifagurt í góðu veðri, Esjan verður einhvern veginn enn blárri, Austurvöllur fær nánast suðrænt yfirbragð, Tjörnin verður fallegasti staður í heimi og gott ef gamlir símastaurar fara ekki að syngja, eins og Tómas kvað forðum. En góða veðrið leiðir fleira í ljós en fegurðina. Þá verða hinir ljótu blettir Reykjavíkur enn meira áberandi en áður og fegurðarskyn vegfarenda líður fyrir. Verra er þegar heilu hverfin á höfuðborgar- svæðinu eru eins og sár í borgarlandinu. Vatnsmýrin er augljósasta dæmi þessa, en það má vel tína fleiri til. Vogarnir eru í gíslingu, Geldinganes er á sömu leið og í nágrannasveitarfélögunum eru sam- svarandi blettir. Meiri furðu gegnir þó hversu höndum hefur verið til kastað í umferðarmálunum undanfarna áratugi. Þar er ekkert sveitarfélag höfuðborgarinnar undanskilið og ekki verður séð að stjórnmálamenn tiltekinna flokka hafi staðið sig betur en aðrir. En vonandi er að verða vakning í þessum málaflokki. f síðustu sveitarstjórnakosningum var mun meira rætt um skipulagsmál en jafnan áður og nú lítur út fyrir að þau verði mál málanna næsta vor, ekki einungis í Reykjavík, heldur i öllum sveitarfélögum höfuðborg- arsvæðisins. Guð láti gott á vita. Otspil Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og sjálfstæðismanna í Reykja- vík um „Betri borg“ gefur góð fyrirheit um frjóa pólitíska umræðu um skipulagsmál og þeir eru ekki einir um að geta lagt fram ferskar hugmyndir. f liði R-listans hefur Stefán Jón Hafstein bryddað upp á athyglisverðum tillögum og Dagur B. Eggertsson sömuleiðis. í nágrannasveitarfélögunum er ekki minni metnaður í skipulagsmál- efnum og hugmyndagróskan mikil. Allt veit þetta á gott. En það má spyrja hvort sveitarfélögin mættu ekki samræma fyrirætlanir sínar betur, bæði til þess að þau haldi sérkennum sínum og til þess að höfuðborgarsvæðið verði betri heild. Hver veit nema það geti orðið fallegt í vondu veðri sem góðu áður en yfir lýkur. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aöalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 5103701. Símbréf á auglýsingadeild: 5103711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiöja Morgunblaðsins. Dreifing: (slandspóstur. 14 I ÁLIT FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 blaöið Hvern eða hverja vil ég fá sem útvarpsstjóra 6>eGO ódýrt bensln + ávinningur! Ég gæti þess vegna svarað spurning- unni strax og nefnt einstaklinga á borð við Þorstein frá Hamri eða Jóhönnu Ögmundur Kristjónsdóttur, Jónasson talsmenn íslenskrar menn- ingar, frjálsrar hugsunar; einstaklinga sem ég er sannfærður um að yrðu verðugir málsvarar Ríkisútvarpsins. Þetta yrðu útvarpsstjórar í hefð Andrésar Björnssonar. En ekkert er einhlítt í þessu efni. Þannig var Andrés Björnsson í hugum flestra fyrst og fremst maður sögu og menningar, íslenskrar tungu og ljóðlistar. Hann var maður hins Talaða orðs en það var einmitt heiti bókar sem út var gefin með áramótaávörpum hans sem á sínum tíma greiptu sig inn i þjóðarsálina. En Andrés Björnsson átti fleiri hliðar. Ég veit ekki hve margir gera sér grein fyrir því að sennilega var hann fyrsti fjölmiðlamenntaði ein- staklingurinn í landinu. Það var í útvarpsstjóratíð hans sem Rás 2 var opnuð, vissulega fyrir stuðning og að einhverju leyti þrýsting margra ágætra starfsmanna og aðila utan stofnunarinnar, en eigi að síður und- ir forystu hans. Þetta nefni ég aðeins sem dæmi um hve vafasamt það get- ur verið að einblína á ímynd manna og láta undir höfuð leggjast að gaum- gæfa verk þeirra. Andrés Björnsson var nefnilega ekki einvörðungu maður orðsins, hann var einnig framsýnn stjórnandi Ríkisútvarps- ins, með skýra sýn á framtíð þess í þjóðfélagi mikilla breytinga. Á sama hátt átti Markús Örn An- tonsson, eftirmaður Andrésar, sér fleiri en eina hlið en því nefni ég hann til sögunnar að þetta eru þeir tveir útvarpsstjórar sem ég hafði beina reynslu af sem starfsmaður Ríkisútvarpsins um alllangt árabil. Mörg okkar í starfsliði stofnunar- innar höfðum horn í síðu Markús- ar Arnar þegar hann varð útvarps- stjóri. Hann hafði staðið framarlega í stjórnmálabaráttunni og gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og sumum býsna umdeildum, til dæmis sem formaður útvarpsráðs i hatrömmu verkfalli árið 1984. Þótt Markús Örn hafi verið umdeildur undir lok út- varpsstjóraferils síns, og hef ég getað tekið undir margt í þeirri gagnrýni sem fram hefur komið í hans garð, þá verður það að segjast eins og er, að Markús Örn Antonsson vann með verkum sínum traust okkar starfsmanna mjög fljótlega eftir að hann var skipaður útvarpsstjóri árið 1985. Gagnstætt því sem við höfðum ætlað reyndist hann vera talsmaður Ríkisútvarps af heilindum og í ýms- um efnum hefur hann sýnt jákvæð- ar hliðar sem menn höfðu almennt ekki vænst af honum. Að þessu hef- ur oftar en einu sinni verið vikið á þessari heimasíðu. Pólitískur stimpill reyndist Mark- úsi Erni Antonssyni þannig ekki fjöt- ur um fót þrátt fyrir miklar efasemd- ir okkar sem höfðum ýmsa hildina háð við pólitíkusinn Markús Örn. Því er hins vegar ekki að neita að fréttastjóramálið á þessu ári hefur truflað þess mynd. Er þá komið að tildrögum þess að ég sest við skriftir þessa pistils. I blaðaskrifum að undanförnu hefur talsvert verið fjallað um verðandi útvarpsstjóra. Hann þarf að vera afburðamaður, segir Margrét S. Björnsdóttir í miðopnugrein í Morg- unblaðinu nýlega og Sveinn Einars- son segir i grein sem birtist á sama stað nokkrum dögum siðar að nýr útvarpsstjóri þurfi að vera „gæddur miklum eðliskostum“. Ég skal játa að ég hef jafnan nokkrar efasemdir um allt tal um afburðamenn og leið- toga því ég vil framar öllu leggja upp úr þeirri hugsun að Ríkisútvarpið, sem og aðrar stofnanir, byggi fyrst og fremst á því fólki sem þar starfar, þeim hefðum sem þar hafa myndast, þeim skyldum sem stofnuninni er ætlað að rækja og viljanum á meðal starfsmanna almennt að gera betur í dag en í gær. Útvarpsstjóri, hversu mikill „af- burðamaður' sem hann er, getur aldrei orðið annað en hlekkur í langri keðju, tannhjól í stóru gang- verki. Það er hins vegar rétt að mikil- vægt er að verkstjóri í þessari stóru stofnun, sem þarf að sinna mikilvæg- um ábyrgðarskyldum í þjóðfélaginu, sé góðum kostum búinn, bæði til þess að skynja menningarlegt og lýðræðislegt hlutverk sitt og þeirr- ar stofnunar sem hann starfar við og til þess að virkja samstarfsmenn sína til góðra verka. Fyrir mitt leyti yrði ég ekki sjálf- krafa andvígur einstaklingi sem kæmi úr heimi stjórnmálanna, jafn- vel þótt sá einstaklingur væri á önd- verðum meiði við mínar stjórnmála- skoðanir - að öðru leyti en því að vilja Ríkisútvarpið i almannaeign og undir almannastjórn. Þetta er að sjálfssögðu lykilatriði. Fráleitt væri að velja til starfans einstakling sem ekki hefði þetta grundvallarsjónar- mið. Menn mega ekki gleyma því að hin breiða sátt um Ríkisútvarpið í þjóðfélaginu byggir á því að um raunverulega almannaeign sé að ræða og lagabreytingar sem skera á þessi tengsl eða veikja þau sundra sáttinni. Að öðru leyti get ég ekki fremur en aðrir gert kröfu um að ráð- inn verði einstaklingur með sömu stjórnmálaskoðanir og ég. Slíka kröfu myndi ég reyndar aldrei reisa. Ef ég mæti viðkomandi einstakling svo að hann væri heiðarlegur, reiðu- búinn að hefja fána Ríkisútvarpsins að húni í baráttu fyrir reisn og virð- ingu þessarar menningarstofnunar og mikilvæga fjölmiðils þá ætti sú persóna að öllum líkindum minn stuðning. Útvarpsstjóri á að vera einstak- lingur sem hefur sýnt djörfung og hug þar sem hann hefur látið að sér kveða. Við höfum engan áhuga á hlýðnum já-karli eða já-konu. Innan allra stjórnmálaflokka er að finna kröftuga einstaklinga: Fólk sem hef- ur sýnt og sannað að það stendur á sínu og lætur eigin stundarhag ekki villa sér sýn. Sem betur fer erum við minnt á það annað veifið að slíkt fólk er til - þótt stundum finnist manni þessi hópur sorglega lítill. Ögmundur Jónasson, alþingismaður www.ogmundur.is Öflugir sláttutraktorar - allt fyrir atvinnumanninn 15 til 21 hestafla

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.