blaðið - 22.07.2005, Page 14
blaðið
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
BETRA VEÐUR OG
BETRI BORG
Ayndislegum sumardögum sem þessum er auðvelt að hríf-
ast af fegurð landsins og það þarf ekki að fara út á land
til þess. Höfuðborgarsvæðið getur verið ægifagurt í góðu
veðri, Esjan verður einhvern veginn enn blárri, Austurvöllur fær
nánast suðrænt yfirbragð, Tjörnin verður fallegasti staður í heimi
og gott ef gamlir símastaurar fara ekki að syngja, eins og Tómas
kvað forðum.
En góða veðrið leiðir fleira í ljós en fegurðina. Þá verða hinir ljótu
blettir Reykjavíkur enn meira áberandi en áður og fegurðarskyn
vegfarenda líður fyrir. Verra er þegar heilu hverfin á höfuðborgar-
svæðinu eru eins og sár í borgarlandinu. Vatnsmýrin er augljósasta
dæmi þessa, en það má vel tína fleiri til. Vogarnir eru í gíslingu,
Geldinganes er á sömu leið og í nágrannasveitarfélögunum eru sam-
svarandi blettir. Meiri furðu gegnir þó hversu höndum hefur verið
til kastað í umferðarmálunum undanfarna áratugi. Þar er ekkert
sveitarfélag höfuðborgarinnar undanskilið og ekki verður séð að
stjórnmálamenn tiltekinna flokka hafi staðið sig betur en aðrir.
En vonandi er að verða vakning í þessum málaflokki. f síðustu
sveitarstjórnakosningum var mun meira rætt um skipulagsmál en
jafnan áður og nú lítur út fyrir að þau verði mál málanna næsta vor,
ekki einungis í Reykjavík, heldur i öllum sveitarfélögum höfuðborg-
arsvæðisins. Guð láti gott á vita.
Otspil Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og sjálfstæðismanna í Reykja-
vík um „Betri borg“ gefur góð fyrirheit um frjóa pólitíska umræðu
um skipulagsmál og þeir eru ekki einir um að geta lagt fram ferskar
hugmyndir. f liði R-listans hefur Stefán Jón Hafstein bryddað upp
á athyglisverðum tillögum og Dagur B. Eggertsson sömuleiðis. í
nágrannasveitarfélögunum er ekki minni metnaður í skipulagsmál-
efnum og hugmyndagróskan mikil.
Allt veit þetta á gott. En það má spyrja hvort sveitarfélögin mættu
ekki samræma fyrirætlanir sínar betur, bæði til þess að þau haldi
sérkennum sínum og til þess að höfuðborgarsvæðið verði betri
heild. Hver veit nema það geti orðið fallegt í vondu veðri sem góðu
áður en yfir lýkur.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aöalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 5103701. Símbréf á auglýsingadeild: 5103711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiöja Morgunblaðsins. Dreifing: (slandspóstur.
14 I ÁLIT FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 blaöið
Hvern eða hverja
vil ég fá sem
útvarpsstjóra
6>eGO
ódýrt bensln + ávinningur!
Ég gæti þess vegna
svarað spurning-
unni strax og nefnt
einstaklinga á borð
við Þorstein frá
Hamri eða Jóhönnu
Ögmundur Kristjónsdóttur,
Jónasson talsmenn
íslenskrar menn-
ingar, frjálsrar
hugsunar; einstaklinga sem ég er
sannfærður um að yrðu verðugir
málsvarar Ríkisútvarpsins. Þetta
yrðu útvarpsstjórar í hefð Andrésar
Björnssonar. En ekkert er einhlítt
í þessu efni. Þannig var Andrés
Björnsson í hugum flestra fyrst og
fremst maður sögu og menningar,
íslenskrar tungu og ljóðlistar. Hann
var maður hins Talaða orðs en það
var einmitt heiti bókar sem út var
gefin með áramótaávörpum hans
sem á sínum tíma greiptu sig inn i
þjóðarsálina.
En Andrés Björnsson átti fleiri
hliðar. Ég veit ekki hve margir gera
sér grein fyrir því að sennilega var
hann fyrsti fjölmiðlamenntaði ein-
staklingurinn í landinu. Það var í
útvarpsstjóratíð hans sem Rás 2 var
opnuð, vissulega fyrir stuðning og
að einhverju leyti þrýsting margra
ágætra starfsmanna og aðila utan
stofnunarinnar, en eigi að síður und-
ir forystu hans. Þetta nefni ég aðeins
sem dæmi um hve vafasamt það get-
ur verið að einblína á ímynd manna
og láta undir höfuð leggjast að gaum-
gæfa verk þeirra. Andrés Björnsson
var nefnilega ekki einvörðungu
maður orðsins, hann var einnig
framsýnn stjórnandi Ríkisútvarps-
ins, með skýra sýn á framtíð þess í
þjóðfélagi mikilla breytinga.
Á sama hátt átti Markús Örn An-
tonsson, eftirmaður Andrésar, sér
fleiri en eina hlið en því nefni ég
hann til sögunnar að þetta eru þeir
tveir útvarpsstjórar sem ég hafði
beina reynslu af sem starfsmaður
Ríkisútvarpsins um alllangt árabil.
Mörg okkar í starfsliði stofnunar-
innar höfðum horn í síðu Markús-
ar Arnar þegar hann varð útvarps-
stjóri. Hann hafði staðið framarlega
í stjórnmálabaráttunni og gegnt
margvíslegum trúnaðarstörfum
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og sumum
býsna umdeildum, til dæmis sem
formaður útvarpsráðs i hatrömmu
verkfalli árið 1984. Þótt Markús Örn
hafi verið umdeildur undir lok út-
varpsstjóraferils síns, og hef ég getað
tekið undir margt í þeirri gagnrýni
sem fram hefur komið í hans garð,
þá verður það að segjast eins og er,
að Markús Örn Antonsson vann
með verkum sínum traust okkar
starfsmanna mjög fljótlega eftir að
hann var skipaður útvarpsstjóri árið
1985. Gagnstætt því sem við höfðum
ætlað reyndist hann vera talsmaður
Ríkisútvarps af heilindum og í ýms-
um efnum hefur hann sýnt jákvæð-
ar hliðar sem menn höfðu almennt
ekki vænst af honum. Að þessu hef-
ur oftar en einu sinni verið vikið á
þessari heimasíðu.
Pólitískur stimpill reyndist Mark-
úsi Erni Antonssyni þannig ekki fjöt-
ur um fót þrátt fyrir miklar efasemd-
ir okkar sem höfðum ýmsa hildina
háð við pólitíkusinn Markús Örn.
Því er hins vegar ekki að neita að
fréttastjóramálið á þessu ári hefur
truflað þess mynd.
Er þá komið að tildrögum þess
að ég sest við skriftir þessa pistils. I
blaðaskrifum að undanförnu hefur
talsvert verið fjallað um verðandi
útvarpsstjóra. Hann þarf að vera
afburðamaður, segir Margrét S.
Björnsdóttir í miðopnugrein í Morg-
unblaðinu nýlega og Sveinn Einars-
son segir i grein sem birtist á sama
stað nokkrum dögum siðar að nýr
útvarpsstjóri þurfi að vera „gæddur
miklum eðliskostum“. Ég skal játa
að ég hef jafnan nokkrar efasemdir
um allt tal um afburðamenn og leið-
toga því ég vil framar öllu leggja upp
úr þeirri hugsun að Ríkisútvarpið,
sem og aðrar stofnanir, byggi fyrst
og fremst á því fólki sem þar starfar,
þeim hefðum sem þar hafa myndast,
þeim skyldum sem stofnuninni er
ætlað að rækja og viljanum á meðal
starfsmanna almennt að gera betur
í dag en í gær.
Útvarpsstjóri, hversu mikill „af-
burðamaður' sem hann er, getur
aldrei orðið annað en hlekkur í
langri keðju, tannhjól í stóru gang-
verki. Það er hins vegar rétt að mikil-
vægt er að verkstjóri í þessari stóru
stofnun, sem þarf að sinna mikilvæg-
um ábyrgðarskyldum í þjóðfélaginu,
sé góðum kostum búinn, bæði til
þess að skynja menningarlegt og
lýðræðislegt hlutverk sitt og þeirr-
ar stofnunar sem hann starfar við
og til þess að virkja samstarfsmenn
sína til góðra verka.
Fyrir mitt leyti yrði ég ekki sjálf-
krafa andvígur einstaklingi sem
kæmi úr heimi stjórnmálanna, jafn-
vel þótt sá einstaklingur væri á önd-
verðum meiði við mínar stjórnmála-
skoðanir - að öðru leyti en því að
vilja Ríkisútvarpið i almannaeign
og undir almannastjórn. Þetta er að
sjálfssögðu lykilatriði. Fráleitt væri
að velja til starfans einstakling sem
ekki hefði þetta grundvallarsjónar-
mið. Menn mega ekki gleyma því
að hin breiða sátt um Ríkisútvarpið
í þjóðfélaginu byggir á því að um
raunverulega almannaeign sé að
ræða og lagabreytingar sem skera
á þessi tengsl eða veikja þau sundra
sáttinni. Að öðru leyti get ég ekki
fremur en aðrir gert kröfu um að ráð-
inn verði einstaklingur með sömu
stjórnmálaskoðanir og ég. Slíka
kröfu myndi ég reyndar aldrei reisa.
Ef ég mæti viðkomandi einstakling
svo að hann væri heiðarlegur, reiðu-
búinn að hefja fána Ríkisútvarpsins
að húni í baráttu fyrir reisn og virð-
ingu þessarar menningarstofnunar
og mikilvæga fjölmiðils þá ætti sú
persóna að öllum líkindum minn
stuðning.
Útvarpsstjóri á að vera einstak-
lingur sem hefur sýnt djörfung og
hug þar sem hann hefur látið að sér
kveða. Við höfum engan áhuga á
hlýðnum já-karli eða já-konu. Innan
allra stjórnmálaflokka er að finna
kröftuga einstaklinga: Fólk sem hef-
ur sýnt og sannað að það stendur á
sínu og lætur eigin stundarhag ekki
villa sér sýn. Sem betur fer erum við
minnt á það annað veifið að slíkt
fólk er til - þótt stundum finnist
manni þessi hópur sorglega lítill.
Ögmundur Jónasson,
alþingismaður
www.ogmundur.is
Öflugir sláttutraktorar - allt fyrir atvinnumanninn
15 til 21 hestafla