blaðið - 22.07.2005, Blaðsíða 32

blaðið - 22.07.2005, Blaðsíða 32
32 I MENNIWG FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 MaðÍA Ath! afáláttur! Allar EGO lcvittanir veita 25% afslátt í Laugarásbíó Hlíf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Valsson, fiðluleikarar, leika 44 dúó eftir Béla Bartók á fiðlur franska fiðlusmiðsins Christophe Landon á tónleikum í Sigurjónssafni næst- komandi þriðjudag. Landon er mjög vel þekktur franskur boga- og fiðlu- smiður sem býr í New York en ferð- ast víða um heim. Meðal viðskipta- vina hans eru meðlimir New York Philharmonic, Berliner Philharm- onik og Guarneri String Quartet. Hlíf Sigurjónsdóttir stundaði framhaldsnám við Háskólana í Indi- ana og Toronto og við Listaskólann í Banff. Síðar sótti hún tíma hjá Gerald Beal í New York. Á námsár- um sínum kynntist hún og vann með mörgum merkustu tónlistar- mönnum síðustu aldar, þar á meðal William Primrose, Zoltan Szekely, Gyorgy Sebok, Rucciero Ricci og Ig- or Oistrach. Hún hefur haldið fjölda einleikstónleika og leikið með sin- fóníuhljómsveitum, kammersveit- um og minni hópum. Frá nýliðnum árum má nefna tónleika í Weill, sal Carnegie Hall í New York, og í Wash- ington borg, í röðinni The Embassy Series. Hún vinnur nú einnig að upp- tökum á öllum einleiksverkum J.S. Bach fyrir fiðlu. Hlíf er eftirsóttur kennari, hefur haldið námskeið á í Sigurjónssafni Hlíf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Valsson verða með tónleika í Sigurjónssafni á þriðjudag. Spáni og kennir einkanemum í New York borg og í Reykjavík. Hjörleifur Valsson lauk einleik- araprófi frá tónlistarháskólanum í Ósló árið 1993 og hlaut þá styrk frá tékkneska ríkinu til náms við Prag konservatoríið. Þar nam hann fiðlu- leik og kammertónlist í þrjú ár, auk þess að leika með ýmsum kammer- hópum og hljómsveitum þar í borg. Hjörleifur lauk Dipl. Mus. gráðu frá Folkwang Hochschule í Essen sumarið 2000. Á námsárum sínum í mið-Evrópu sótti hann námskeið hjá Grigorij Zhislin, Truls Mörk, Pi- erre Amoyal, Sergej Stadler, Pavel Gililov og fleirum. Hann hefur kom- ið fram á fjölda tónleikum víða um Evrópu, samið og útsett tónlist fyrir leikhús og tekið þátt í upptökum fyr- ir útvarp, sjónvarp, kvikmyndir og hljómplötuútgáfur. Hjörleifur starf- ar nú sem fiðluleikari á íslandi og kennir fiðluleik við tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30. Kaffistofa safnsins er opin eft- ir tónleikana. Aðgangseyrir er 1500 kr. kolbrun@vbl.s i Dresden Um næstu helgi, dagana 23. og 24. júlí, fer fram þriðja tónleikahelgi Sumartónleika þetta árið í Skálholts- kirkju. Flytjendur verða Bachsveitin í Skálholti ásamt einsöngvurunum Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur og Ágústi Ólafssyni. Leiðari Bachsveit- arinnar að þessu sinni er Stanley Ritchie sem er einn af helstu frum- kvöðlum heims í flutningi barokk- tónlistar á upprunaleg hljóðfæri. Dagskráin hefst að venju á fyrir- lestri í Skálholtsskóla kl. 14 á laug- ardag en þá mun Halla Steinunn Stefánsdóttir fjalla um Þýskaland og þjóðlega stíla. Á fyrri tónleikum laugardagsins kl. 15 verður flutt efnisskrá undir yfirskriftinni Gullöldin í Dresden en þá munu hljóma verk eftir tón- skáldin Veracini, Schiitz og Zelenka. Á seinni tónleikum laugardagsins kl. 17 verða flutt verk eftir Handel. Á sunnudag kl. 15 verða seinni tónleikar laugardagsins endurtekn- ir og í messunni kl. 17 á sunnudag frumflytur Bachsveitin í Skálholti, ásamt Ágústi Ólafssyni, sálminn Mektugra synir, maktar drottni f út- setningu Gunnars A. Kristinssonar, staðartónskálds 2005. Operan viU hús í Kópavogi Stjórn íslensku óperunnar hefur -- sent frá sér fréttatilkynningu þar sem hún fagnar hugmynd Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra og alþing- ismanns, um byggingu sérhannaðs óperuhúss fyrir Islensku óperuna á Borgarholtinu í Kópavogi. I fréttatil- kynningunni segir meðal annars: „Hugmynd Gunnars I. Birgissonar um byggingu óperuhúss í Kópavogi samrýmist afar vel óskum fslensku óperunnar um hæfilega starfsað- stöðu og framtíðarheimili. Staðsetn- ing óperuhúss í miðbæ Kópavogs er líka ákjósanleg og áform um tengingu og samnýtingu á aðstöðu með þeim menningarstofnunum sem fyrir eru á Borgarholtinu til að skapa aukna nýtingarmöguleika eru raunhæf. Stjórn íslensku óperunnar bindur miklar vonir við að nauðsynleg sam- Önnur sending IUNG CHANG jON HALLIDAY staða skapist milli Kópavogsbæjar, ríkis og einkaaðila um að gera hug- mynd Gunnars I. Birgissonar um nýtt hús fyrir fslensku óperuna að veruleika og vill beita sér af alefli fyr- ir að svo megi verða.“ g af Maó Ævisaga Maó eftir Jung Chang og John Halliday hefur selst vel hér á landi og nokkrar umræður hafa ver- ið um hana í fjölmiðlum. Bókin er þessa vikuna í öðru sæti á metsölu- lista erlendra bóka, þar sem Harry Potter hefur vitanlega forskot á allar aðrar bækur. Ævisagan á það sameiginlegt með Potter að fyrsta sending seldist upp hér á landi, þótt það hafi verið á mun skemmri tíma en Potter sem rauk út á sólarhring. Önnur pöntun af ævisögu Maós er nú komin í bókaverslanir. Þessi stór- merkilega ævisaga er skyldulesning allra þeirra sem láta sig pólitíska sögu 20. aldar einhverju varða. Jón Ingi sýnir i Eden Jón Ingi Sigurmundsson opnar mál- verkasýningu í Eden, Hveragerði, þriðju- daginn 26. júlí. Á sýningunni eru olíu-, pastel- og vatnslitamyndir sem allar eru málaðar á þessu ári eða því síðasta. Myndefnið er að mestum hluta landslag, oft málað á staðnum eða í vinnustofu og er það sótt viðs vegar að af landinu. Stundum eru þetta þekktir staðir, stimd- um lækur eða tjöm eða gömul hús. Inn á milli em svo nokkrar blómamyndir. Nýlega birtist mynd af olíumálverki eftir Jón Inga i alþjóðlegu myndlistar- timariti, International Artist. Þetta er 29. einkasýning Jóns Inga og henni lýkur 7. ágúst. Metsölulistinn Wf/,.r 1. Móðir í hjáverkum - kil d Allison Pearson * 2. Kortabók Máls og menningar Mál og menning 3. Læknum með höndunum Birgitta Jónsdóttir Klasen 4. Fimmta konan - kilja Henning Mankell 5. Alkemistinn - kilja Paulo Coelho 6. Útivistarbókin Páll Asgeir Ásgeirsson 7. (slenskfjöll Ari Trausti Guðmundsson 8. Ellefu mínútur - kilja Paulo Coelho 9. Kleifarvatn - kilja Arnaldur Indriðason 10. Utan alfaraleiða Jón G. Snæland Listinn er gerður út frá sölu dagana 13.07.05-19.07.05 iBókabúðum Máls og menningar, Eymundsson og Pennanum

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.