blaðið - 22.07.2005, Blaðsíða 8
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 biaftið
8 I ERLENDAR
Onnur sprengju-
árás í Lundúnum
Lundúnabúar minntir óþægilega á hryðjuverkin fyrir
tveimur vikum þegar sprengjur sprungu ígœr
Feðgar látast
í sprengingu
Fjölskylduharmleikur í Óðinsvéum
Minniháttar sprengingar
urðu í þremur lestum og í
strætisvagni í Lundúnum
um hádegisbil í gær, með örskömmu
millibili. Aðeins einn særðist en eng-
inn lést í árásinni. Réttar tvær vikur
voru liðnar frá hryðjuverkunum
þar i borg, sem urðu minnst 56 að
bana, og var lífið í borginni við það
að komast í samt horf þegar sprengj-
urnar sprungu í gær.
Mikill viðbúnaður í borginni
Sprengjurnar urðu í lestum við
Warren Street, Oval og Shepher's
Bush og í strætisvagni númer 26.
Mikill viðbúnaður var í borginni eft-
ir sprengingarnar og var allt tiltækt
lögreglulið kallað út. Stór svæði um-
hverfis staðina fjóra voru girt af, lest-
arstöðvum var lokað og samgöngur
lágu víða niðri. Tveir menn voru
handteknir í Whitehall og bíða yfir-
heyrslu en ekki er víst að þeir tengist
atburðunum.
Lögreglan leitaði í gær hörunds-
dökks manns, sem talinn er vera
af asískum uppruna, en hann sást
hlaupa frá árásarstaðnum við Warr-
en Street og er talinn hafa farið inn
í University College-sjúkrahúsið.
Vopnaðir sérsveitarmenn lögregl-
unnar umkringdu sjúkrahúsið í tví-
gang vegna þess og leituðu manns-
ins. Lögregla sagði við fjölmiðla
að maður hefði hótað að sprengja
sjálfan sig í loft upp og hlaupist svo
á brott. Sjónvarvottar kváðust hafa
heyrt háa hvelli og séð yfirgefna bak-
poka. Líklegt þykir að maðurinn
sem hljópst á brott hafi verið sá sem
hélt á bakpokanum.
Pálskirkjan í Lundúnum var einn-
ig girt af i gær og rannsökuð af lög-
reglu og slökkviliði eftir að grunsam-
legur pakki fannst þar. Þar reyndist
þó ekki vera hætta á ferðum. Borg-
arstjóri Lundúna, Ken Livingstone,
hrósaði neyðarliði borgarinnar í hás-
tert fyrir viðbrögð sín eftir árásirn-
ar í gær og sagði að íbúar Lundúna
myndu „komast í gegnum þetta.“
Ósprungnar sprengjur
fundust í vögnunum
Rannsóknir sýndu fljótt að ekki var
um efna-, líffræðileg- eða geislavopn
að ræða. Fljótlega kom svo í ljós að
um litlar kraftlausar sprengjur var
að ræða, líklega hvellhettur. Grunur
leikur á að þær hafi átt að kveikja
í stærri sprengjum sem hafi verið
í lestunum og strætisvagninum.
Sérfræðingar í rannsóknum hryðju-
verka segja árásirnar í gær hafa ver-
ið langt frá því jafn fagmannlega
framkvæmdar og þær sem áttu sér
stað fyrir tveimur vikum. Því er
talið líklegt að um menn úr öðrum
hópi hafi verið að ræða.
Rannsóknarlögreglumenn safna
nú sönnunargögnum en tilræðin
í gær eru talin geta veitt lögreglu
enn frekari upplýsingar um atburð-
ina fyrir tveimur vikum. Nokkrar
ósprungnar sprengjur eru sagðar
hafa fundist í vögnunum og þykir
það renna stoðum undir þann grun
að fyrirhuguð hafi verið alvöru
hryðjuverkaárás.
Ætluðu sér aðdrepa
Ian Blair, lögreglustjóri Lundúna-
lögreglunnar, sagði að mennirnir
sem staðið hefðu á bak við spreng-
ingarnar hefðu ætlað sér að valda
dauðsföllum. Talið er að sprengjurn-
ar sem sprungu hafi einfaldlega ver-
ið hvellhettur sem áttu að kveikja í
öðrum stærri sprengjum. „Aðgerðir
hryðjuverkamannanna mistókust“,
lét Blair hafa eftir sér. Hann sagði að
atburðirnir í gær væru samhljóma
sprengjuárásunum fyrir tveimur
vikum, en áréttaði að enn væri of
snemmt að draga nokkrar ályktanir
um hvort þær tengdust. Blair sagði
að góð sönnunargögn hefðu þó fund-
ist á vettvangi sem kæmu til með að
auðvelda lögreglu mjög rannsókn
málsins.
Lífið haldi áfram sinn vanagang
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hélt blaðamannafund á
Downing-stræti 10 þar sem hann
sagði að ekki mætti gera lítið úr at-
burðunum því þegar hefðu átt sér
stað fjórar alvarlegar árásir. „Ég
held að það eina sem ég vilji segja
er að við vitum af hverju svona hlut-
ir eru gerðir, til þess að hræða fólk
og vekja ótta og kvíða“, sagði hann.
BÍair boðaði neyðarfund með ráða-
mönnum og lögregluyfirvöldum
vegna atburðanna. Þegar sprenging-
arnar urðu sat forætsiráðherrann á
fundi með ástralska kollega sínum,
John Howard, og var Howard með
honum á blaðamannafundinum.
Blair talaði einnig um, rétt eins og
eftir árásirnar fyrir tveimur vikum,
að mikilvægt væri að lífið í borginni
héldi áfram sinn vanagang. ■
bjornbragi@vbl. is
Mikill viðbúnaður var í Lundúnaborg f gær vegna sprenginganna. Lögregla girti af stór
svæði f kringum árásarstaðina og umfangsmikil rannsókn er hafin.
W Æ j Æfak T ,
rli
SKYPE 5IMTÆKIÐ
HRINGDU FRÍTT í HVERN
SEM ER HVAR SEM ER»
VERTU FRJÁLS
NOTAÐU SKYPE !
The whoie worki
can taik for free*
Heimili mannsins eftir sprenginguna sem banaði honum og syni hans. Þá liggur kona
hans alvarlega slösuð á sjúkrahúsi. Lögreglan telur að um sjálfsmorð hafi verið að ræða.
Danskur karlmaður og sonur hans
létust í sprengingu á heimili sínu í
suðurhluta Óðinsvéa í gær. Þá eru
fjórir aðrir særðir, þar á meðal kona
mannsins sem liggur þungt haldin á
sjúkrahúsi. Lögreglan í Oðinsvéum
greindi frá því að minnst eitt kíló
af sprengiefni frá hernum og hand-
sprengja hafi sprungið. Sagði hún að
ekki léki grunur á að um hryðjuverk
hafi verið að ræða en líklegra þykir
að maðurinn hafi framið sjálfsmorð
með þessum hætti. Sprengingin var
svo kröftug að þakið lyftist af húsinu
og múrsteinsbrot flugu í allar áttir.
Sprengisérfræðingar hafa verið kall-
aðir til og munu rannsaka málið.
man Overgaard sagði i samtali við
Ritzau-fréttastofuna að maðurinn
hefði sent bréf til fjölskyldunnar áð-
ur en hann sprengdi sig og af lestri
bréfsins að dæma sé enginn vafi á
að um sjálfsmorð hafi verið að ræða.
1 bréfinu greindi maðurinn m.a. frá
því að hann ætti í miklum andleg-
um erfiðleikum. Frekari upplýsingar
um atburðinn hafa ekki verið opin-
beraðar en samkvæmt upplýsingum
nágranna gekk maðurinn inn í hús-
ið með plastsprengiefni spennt um
sig miðjan og sprengdi sjálfan sig og
son sinn. Maðurinn hafði starfað í
hernum og var nýkominn frá Bosniu
þar sem hann gegndi herþjónustu.B
Sendi bréfáundan sér
Rannsóknarlögreglumaðurinn Her-
Húshjálp myrti
vinnuveitendur sína
44 ára gamall maður, Russell Sedelm-
aier, var í gær ákærður fyrir morð á
presti og dóttur hans en hann hafði
unnið á heimili feðginanna við hrein-
gerningar í yfir fimm ár. Lík þeirra
fundust þann 29. júní síðastliðinn
eftir eldsvoða á heimili þeirra í út-
hverfi Buffallo Grove í Illinois-fylki.
Höfðu þau verið bundin, stungin og
veittir alvarlegir líkamlegir áverkar
en dánarorsök mun þó hafa verið
reykeitrun.
Lögreglustjóri Buffallo Grove-lög-
reglunnar, Steve Husak, sagði atburð-
inn afar sorglegan og langt frá því
að vera einkennandi fyrir samfélag-
ið. Hann sagði að Sedelmaier hefði
verið handtekinn á mánudag og eft-
ir tveggja daga yfirheyrslur hefði
hann játað á sig verknaðinn. Husak
sagði einnig að líkamleg sönnunar-
gögn hefði verið að finna á heimil-
inu sem sýndu fram á að Sedelmaier
hefði framið morðið. Sedelmaier er
ákærður fyrir tvö morð af fyrstu
gráðu, innbrot og íkveikju. ■
Bistro garðhúsgagnasetL Borð og tveir stólar kr. 12.900,- Oxford garðhúsgagnasett Borð og fjórir stólor kr. 18.900,-
Windsor garðhúsgagnasett. Borð og sex stólar kr. 59.900,- London garðhúsgagnasetL Borð og fjórir stólar ki 118.900,-
afsláttur
Innimálning Gljástig 3,7,20
y Verð frá kr. 298 pr.ltr.
^ Gæða málníng á frábæru verði