blaðið - 22.07.2005, Page 20
20 IKONUR
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 blaAÍÖ
Styrking ogskemmtun t kvennaferðum
Konur hlæja með okkur
Edda Björgvinsdóttir ogHelga Braga Jónsdóttirfylla hjörtu íslenskra kvenna afgleði ogstyrk með sínum þekktu kvenna-
ferðum sem hera heitið Hlcejum saman. Þegar hafa veriðfarnar nokkrar ferðir ogframundan er óvissuferð 19. ágúst til
einhverrar erlendrar borgar. Blaðiðfékk þœr stöllur til að tylla sér í sólinni ogspjalla um íslenskar konur, áramótaskaup,
hlátur og kvennaferðir.
........... > —rMÍú 'O.
// -f, — i/JÉ ). mhÉMú., \ I 1 1 I
Blaliö/Oúndi
Helga og Edda sjá um áramótaskaupið í
ár sem verður sannkallað kvennaskaup.
Blaðamaður hittir Eddu í fal-
legum garði þar sem hún
situr og sólar sig, útitekin og
sælleg.
„Við Helga Braga ákváðum að
stofna www.kvennaferdir.is til að
hafa allt inn á því og vinna með þeim
sem vilja vinna með okkur. Við erum
í samvinnu við Iceland Air og erum
óskaplega ánægðar með samstarfið.
Við fórum í óvissuferð í júní þar sem
enginn vissi hvert hann var að bóka
sig en þrátt fyrir það vorum við um
þrjátíu manna hópur. Við lýstum því
hvað konurnar þyrftu að hafa með
sér og göntuðumst svolítið með það.
Það er önnur svona ferð framundan,
19. ágúst -22. ágúst, og við erum
langt komnar með að bóka í hana.
Enginn veit hvert við förum, þetta
er rosalega skemmtilegt." Edda seg-
ir að í kvennaferðum sé alltaf mjög
mikil dagskrá. Það er farið í viðkom-
andi sendiráð þar sem er móttaka.
,Svo förum við í bátsferð, útsýnisferð
og út að borða. Við erum búin að
finna alla æðislegustu staðina. Svo
má ekki gleyma námskeiðinu sjálfu
en það er svona sjálfsstyrkingarnám-
skeið, magadans og að koma fram af
öryggi. Einnig er eitt skemmtikvöld
í ferð þar sem við erum með uppi-
stand og skemmtiatriði."
íslenskar konur eru svo frábærar
I þessum töluðu orðum mætir Helga
Braga galvösk og glæsileg að vanda
og tekur þátt í samræðunum. „Edda
er búin að vera með kvennaferðir í
mörg ár en við byrjuðum nýlega að
vera í þessu saman. Þessi óvissuferð
til Berlín gekk ógeðslega vel og það
var hrikalega gaman. Það verða ekk-
ert allar ferðir óvissuferðir en sumar
verða þannig. Islenskar konur eru
svo frábærar. Þegar þær hafa ákveð-
ið að skemmta sér þá er það ekkert
vesen. Rútubílstjórinn sem tók á
móti okkur í Berlín sagði bara: „Was,
bara konur myndu gera svona." Þær
komu bara með passann og fengu
miðann á vellinum. Eva Dögg Sig-
urgeirsdóttir, dóttir Eddu, var með
okkur og þær eru náttúrlega mæðg-
ur og við erum allar vinkonur. Við
fengum mikið af mæðgum, systrum
og vinkonum. Þetta voru svona litlir
hópar og nokkrar hugrakkar konur
komu einar. Þær voru náttúrlega
aldrei einar.“
99.................
Á íslandi er svo margt
til að hafa áhyggjur af.
Það er bara stuð
Edda segir að í kvennaferðum séu
konur frá 19 ára til níræðs. „Reynd-
ar var elsta konan sem ég hef haft
76 ára en þessar ferðir eru fyrir kon-
ur frá 19-90 ára. Dagskráin okkar
er fyrir allan aldur.“ Helga Braga
grípur orðið og segir að aldur skipti
engu máli. „Konurnar hlæja sam-
an. Það er aldrei neitt stress. Það er
bara stuð og mikið flæði. Við förum
í alvöru skvísubúðir og svo förum
við á markaði þar sem við finnum
hönnuði og listmuni. Svo eru allt-
af vinsælu skemmtikvöldin. Þegar
við vorum í Berlín síðast þá kom
Heiða í Unun og spilaði fyrir okkur
á skemmtikvöldinu.“ Edda segir að
þær séu einmitt líka með óvæntan
íslenskan listamann sem heimsækir
þær í næstu borg.
Nándin er í hlátrinum
Edda og Helga Braga segja að þrátt
fyrir að ferðirnir séu alltaf skemmt-
un út í eitt þá sé heilmikil sjálfstyrk-
ing í gangi en þó er þetta allt á léttu
nótunum - eða eins og Helga Braga
orðar best sjálf: „Það sem er svo
skemmtilegt er að fara svona út úr
sínu hversdagslega umhverfi. Þú ert
að fara þarna til að hlæja á heilbrigð-
an hátt, einhvern dásamlegan hátt.
Það er þessi nánd sem við náum og
vinnum að. Nándin er líka svolítið
1 hlátrinum. Þá afvopnast maður og
opnar sig alveg. Svo á maður líka að
segja frá sjálfum sér, hvað maður
hefur gengið í gegnum, hvað maður
hefur lært og langar að læra í lífinu.
Þessar konur hafa gert það í þessum
ferðum. Eitt af því sem við leggjum
upp með er að um leið og fólk getur
hlegið af sjálfum sér þá á það miklu
betri möguleika í vandamálin. Það
er margt sem við förum inn á. Auk
sjálfstyrkingar er það líka framsögn,
röddin, hvernig þú berð þig og talar
og hvaða áhrif þú ert að hafa á um-
hverfi þitt og um leið sjálfan þig.“
Heimsókn í kynlífsbúðir
Þegar blaðamaður spyr hvort konur í
þessum kvennaferðum kynnist ekki
vel jánka þær báðar. „Við erum allt-
af með þeim. Það er enginn svona
fararstjórabragur á þessu. Við erum
saman allar í konuferð. Ég til dæmis
villist reglulega með mína hópa og
það er bara regla", segir Edda og þær
hlæja hjartanlega. Enda segir Helga
að þær séu ekkert að reyna að leika
fullkomna fararstjóra. Stöllurnar
segja að konurnar séu alltaf himin-
lifandi eftir ferðirnar. „Þeim finnst
þetta æðislegt. Málið er að þær gera
þetta sjálfar en þær eru svo þakklát-
ar að hafa verið með í partýinu. Mað-
ur breytir sér sjálfur, það er enginn
annar sem getur breytt manni. Við
erum líka þakklátar þeim þannig að
þetta er þakklæti á báða bóga. Við
erum að laða til okkar alveg æðis-
legar konur. Konur sem eru að taka
sér pásu frá öllu og öllum og langar
ÚTSALA
VEphlisruui v/Lau9a|æk * sími 553 3755