blaðið - 22.07.2005, Blaðsíða 36
ávinningur!
ávinningur!
ávinningur!
ávinningur!
ávinningur!
ávinningur!
ávinningur!
ó'eGO
ódýrt bensin ávinningur!
Hvernig hefurðu það í dag?
,Ég hef það æðislega fínt enda er ég í sum-
arfríi."
Hvað er á dagskrá í Einum og hálfum á
morgnana?
,Ég fer yfir þá helstu þætti sem varða daglegt
líf. Ég fer yfir sjávarföllin, hvenær sólin kemur
upp, les veðrið, kíki í blöðin, finn fréttir á
netinu eða bara sögur úr mannlega lífinu. Ég
kiki bara á hvað er að gerast í lífinu almennt
og svo spila ég tónlist."
36 I DAGSKRÁ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 blaöið
■ Stutt spjall: Magnús R. Einarsson
Magnús er útvarpsmaður á Rás 2 og er með þáttinn Einn og hálfur alla virka daga kl. 6.05-7.30.
Hvað hefurðu unnið lengi f útvarpi?
„Ég er búinn að vera þar f tuttugu ár. Ég byrj-
aði 1985 niður á Skúlagötu á Rás 1 og svo fór
ég niður á Rás 2. Það var um 1989."
Hefur margt breyst f útvarpi á þeim tíma?
„Það hefur orðið algjör bylting. Stafræna
byltingin, það er búið að breyta öllu. Þegar
ég byrjaði í útvarpi var útvarpið risastór
maskína og það voru tæknimenn í hvítum
sloppum. Núna er þetta bara allt í einni tölvu.
Áður fyrr var þetta alveg risastórt og það
þurfti stór og mikil hljóðver. Það hefur orðið
gríðarlega bylting og ég held að fólk geri sér
ekki grein fyrir því. Þessi stafræna bylting er
svo rosaleg. Hér áður fyrr þurfti að sérhanna
hljóðver og það þurfti tæknimenn í hvítum
sloppum með sérþekkingu en núna er hægt
að gera þetta allt með einu litlu forriti inn i
tölvu."
Kom eitthvað þér á óvart þegar þú byrjað-
irað vinna í útvarpi?
„Já, það kom mér á óvart hvað þetta var ofsa-
lega skemmtilegt. Ég bjóst ekki við að þetta
væri svona skemmtilegt enda hef ég ekkert
farið þaðan."
Hvað er svona skemmtilegt við að vinna
í útvarpi?
„Að hafa aðgang að yndislegri tónlist á
hverjum einasta degi og geta verið að vinna
við áhugamál sitt sem maður er menntaður
í. Ég er menntaðurtónlistarmaður. Og Ifka
að maður er ekki bundinn af mynd. Útvarpið
er miklu frjálsari miðill en sjónvarpið. Ég get
verið hvernig til fara sem ég vil og ég get
talað um það sem ég vil. Það er allt opið og
veröldin er leikvangurinn."
Hvernig tónlist hlustarðu helst á?
„Ég hlusta mest á þjóðlagatónlist sem er ansi
vítt svið. Bob Dylan er einn af mínum uppá-
haldsmönnum og er búinn að vera frá þvl ég
var strákur. Ég hlusta líka á djass og klassík."
A að gera eitthvað skemmtilegt það sem
eftireraf sumrinu?
„Ég er búinn að fara til Portúgal og ég er
búinn að fara (Borgarfjörð, ég ætla að fara í
Herðubreiðalindir, í Ásbyrgi og fara norður
I land þegar veðrið snýst. Ég ætla að vera í
bænum um verslunarmannahelgina, það er
algjört„möst" að vera í Reykjavík þá. Það er
langbesti staðurinn."
■ Eitthvað fyrir..
...kjána
Skjár í -Wildboyz -kl.21.00
Hvað gerist þegar Jackass-dreng-
irnir Steve 0 og Chris Pontius
leggja land undir fót? Jú, þeir
kynna sér menningu og siði ann-
arra þjóða alveg eins og við hin,
eða hvað...? 1 þáttunum Wild-
boyz heimsækja þeir félagar ólík
lönd og einbeita sér að því að
kynnast þeim ólíku dýrategund-
um sem byggja hvert land og að
sjálfsögðu er fíflagangurinn í hávegum hafður. Þeir fá 1500 volta rafstuð úr
ál, stinga hausnum á kaf í hrúgu af eitruðum maurum og það má með sanni
segja að þeir verði reynslunni ríkari að ferðalaginu loknu. Ótrúlegir þættir
um ótrúlega menn. Hvað í veröldinni dettur þeim í hug næst?
Rúv -Móðurást-kl.21.50
(Some mother's son)
Bresk bíómynd frá 1996 um hungur-
verkfall Bobbys Sands og fleiri Ira í
bresku fangelsi árið 1981. í myndinni
er sjónum beint að mæðrum tveggja
fanganna og tilraunum þeirra til að
bjarga lífi sona sinna. Leikstjóri er
Terry George og meðal leikenda eru
Helen Mirren, Fionnula Flanagan,
David O’Hara, John Lynch, Tim Woodward og Ciarán Hinds. Kvikmynda-
skoðun telur myndina ekki hæfa fólki yngra en 12 ára.
Stöð 2 - Grind - kl.22.20
(Hjólabrettastrákarnir)
Kvikmynd á léttum nótum um nokkra
félaga sem eyða öllum stundum á
hjólabrettunum sínum. Nú er skólinn
að baki og þeirra bíður skemmtilegt
sumar. Ekki spillir fyrir að átrúnaðar-
goðið þeirra er væntanlegt í bæinn og
strákarnir ætla að sýna honum hvað í
þá er spunnið. Ekki fer það alveg eins
og til er ætlast en félagarnir neita að leggja árar í bát. Aðalhlutverk: Mike
Vogel, Vince Vieluf, Adam Brody. Leikstjóri: Casey La Scala. 2003.
...hiolabrettastráka- oq stelpur
6:00-13:00 13:00-18:30 18:30-21:00
16.45 Bikarkvöld Endursýndur Þáttur frá fimmtudagskvöldi. 17.05 Leiðarljós (Guiding Light) 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Blttinúl (16:26) (Jakers!) 1B.30 Ungar ofurhetjur (10:26) (TeenTitans) 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljósiö 20.10 Hr.Bones Suður-afrfsk gamanmynd frá 2001.Töfralæknir er sendur til að leita að syni konungs ættflokksins en kemur til baka með bandarískan golfleikara. Leikstjóri er Gray Hofmeyr og meðal leikenda eru Leon Schuster, David Ramsey, Faizon Love, Robert Whitehead og Jane Benney.
WL 'M 06.58 Island í bítið jy Æ 09.00 Bold and the Beautiful W (Glæstar vonir) 09.201 fínu formi (styrktaræfingar) 09.35 Oprah Winfrey (Oprah Winfrey 2004/2005) 10.20 Island i bitifi 12.20 Neighbours (Nágrannar) Ein vinsælasta sápuóperan í Ástraliu, Bretlandi og viðar. Leyfð öllum aldurshópum. 12.451 fínu formi (þolfimi) 13.00 Perfect Strangers (97:150) (Úrbæíborg) 13.25 60 Minutes II2004 (60 Minutes II2005) 14.10TheGuardian (18:22) (Vinur litla mannsins 3) 14.55 Jag (14:24) (e) 15.40 Bernie Mac 2 (19:22) (e) (Nut Job) 16.00 Barnatími Stöövar 2 He-Man, Beyblade, Shin Chan, Finnur og Fróöi 17.30 Slmpsons (Simpson-fjölskyldan) 17.53 Neighbours (Nágrannar) 18.18 (slandfdag 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 Islandfdag 19.35 Simpsons (Simpsonfjölskyldan 7) 20.00 Joey (22:24) 20.30 Það var lagið Nýr Islenskur skemmtiþáttur fyrir alla fjölskylduna þar sem söngurinn er (aðalhlutverki. f hverjum þætti keppa tvö lið að viðstöddum gestum í mynd- veri. (báðum liöum eru pfanóleikarar sem jafnframt gegna hlutverki liðsstjóra. Fjórir söngvarar koma fram í hverjum þætti en Jón Ólafsson sér um laga- val og spurningar.
© 18.00 Cheers 18.30 Worst Case Scenario (e) 19.15 Þak yfir höfuölð (e) 19.30 Still Standing (e) 20:00 Ripley's Believe it or Notl f “Ripley's Believe it or Not!” er feröast um víða veröld og fjallað um sérstaka og óvenjulega einstaklinga og aðstæður. 20.50 Þakyfir höfuðið
Pl SIRKUS 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 Seinfeld 3 (The Note) 19.30 Islenski listinn 20.00 Seinfeld 3 (TheTruth) 20.30 Friends (20:24) (Vinir) Ein vinsælastasjónvarpsserfa sem gerð hefur verið og ekki að ástæðulausu. Fylgstu með Ross, Rachel, Joey, Phoebe, Monicu og Chandl- erfrábyrjun.
18.30 Gillette-sportpakkinn 19.00 Motorworld 19.30 World Supercross (Angel Stadium) 20.30 fslandsmótið f golfi 2005
EÆFf!SI 06.00 The Wedding Planner (Brúökaupsplön) 08.00 Twin Falls idaho (Síamstvíburarnir) 10.00 61 (Hafnaboltahetjur) 12.05 Heroe's Mountaín (Hetjusaga) 14.00 The Wedding Planner (Brúðkaupsplön) Stórskemmtileg rómantísk gamanmynd um Mary Fiore sem vinnur við aö skipuleggja brúð* kaupsveislur. 16.00Twin Falls Idaho (Síamstvíburarnir) 18.0061 (Hafnaboltahetjur) 20.05 Heroes Mountain (Hetjusaga) Sannsöguleg siónvarpsmynd um atburð sem vakti heimsathygli. Árið 1997 var hópur fólks á sklða- svæði viöThredbo I Ástrallu þegar aurskriða lagði mannvirkin í rúst. Fólkið átti enga von 1 þessum náttúruhamförum og björgunarmönnum mætti ófögur sjón. öllum að óvörum fannst þó lifsmark í brakinu og hér er rakin saga sem er algert krafta- verk. Aðalhlutverk: Craig McLachlan, Tom Long, Anthony Hayes. Leikstjóri: Peter Andrikidis. 2002.
■ Af netinu
Islenskt sjónvarp á leið til fjandans?
Djöfull eru íslenskir dagskrárgerð-
armenn að fara til fjandans þessa
dagana. Ég ritaði nú nokkur orð um
Silvíu Nótt hérna um daginn svo
leit ég á Kvöldþáttinn áðan. Það er
náttúrulega fyrir neðan allar hell-
ur hvað þessi þáttur er arfaslakur.
Þáttastjórnandinn virðist vera ein-
hver ungur leikari. Ekki myndi ég
ráða þennan mann. Hann þreytir
mig þessi maður. Svo fer maður að-
eins að líta yfir það sem er í gangi í
íslenskri þáttagerð þessa dagana og
fær þetta út:
RUV: Hvernig er það, er RÚV
bara ekki að gera neitt íslenskt efni
þessa dagana? Þeir ættu allavega að
eiga einhverja peninga. Ég man eftir
þættinum Óp sem er á veturna. Hel-
víti þvingaður þáttur einhvern veg-
inn og mér finnst hann virka svona
eins og einhverjir feitir gaurar á aldr-
inum 50-60 ára hafi setið á fundi og
komið með þá hugmynd að þeir verði
nú að gera þátt fyrir unga fólkið. „Já,
við verðum að vera nýstárlegir og
sinna unga fólkinu." Smella einhverj-
um seðlum á einhverjar bullukollur
sem gera lélegan þátt sem enginn fíl-
ar í rauninni. Mjög slakt.
Stöð 2: Svipað og hjá RÚV. Virð-
ist vera lítið í gangi í sumar fyrir
unglinga. Þeir eiga hins vegar tvo
svakalega „hittara“, Fóstbræður og
svo Svínasúpan. Fóstbræður eru
væntanlega það nettasta sem fram-
leitt hefur verið í íslensku sjónvarpi.
Vonandi að við fáum Svínasúpuna
aftur í vetur. Þeir eru búnir að
kaupa Strákana úr 70 mín til sín. Jú,
vissulega eru þeir nettir en hráleik-
inn á Popptiví var skemmtilegri og
það er að komast léttur Óp fílingur í
kringum þetta eftir að þeir fóru yfir
á Stöð 2.
Skjár 1: Hér erum við komnir út
í sjónvarpsstöð sem er auglýsinga-
rekin og engir peningar væntanlega
til þarna miðað við Stöð 2 og hvað
þá RÚV. Þeir hafa hins vegar verið
duglegir að framleiða íslenskt efni
og það er eitthvað þarna í gangi
fyrir unglinga. Silvía Nótt er þarna
náttúrulega. Hef talað um hana áð-
ur, hún er drasl. Djúpa laugin var að
klárast hjá þeim. Frekar súr þáttur
og ég myndi ekki nenna að horfa á
hann nema einhver sem maður þekk-
ir væri að keppa. Þeir eru líka að
framleiða allskonar drasl fyrir ein-
hverja aðra aldurshópa. Allt í drasli,
Brúðkaupsþátturinn Já, Fólk og eitt-
hvað fleira. Þeir eiga hrós skilið fyrir
að vera að reyna að gera þetta allt úr
næstum þvi engu. Skjár 1 hefur nú
reynt ýmislegt í gegnum tíðina, það
sem stendur hins vegar alveg uppúr
hjá þeim er íslensk kjötsúpa. Þar fór
Erpur rappari á kostum sem Johnny
National og þetta var viðbjóðslega
fyndið. Þetta var frumlegt, flippað
og eitthvað sem maður hafði ekki
séð áður. Hann var reyndar sakaður
um að vera að „rippa“ Ali G en ég sá
ekkert Ali G fyrr en þetta var hætt
þannig að það var í góðu lagi. Þessi
gaur er hins vegar útbrunninn i dag
en þetta var barn síns tíma þessi þátt-
ur. Spurning hvort að þættir eins og
Silvía Nótt séu eitthvað að reyna að
koma með eitthvað svipað flipp og
Kjötsúpan var á sínum tíma. Það er
allavega ekki að virka ef svo er.
Skjár 1 er að fara að framleiða ís-
lenskan bachelor. Ég veit nú ekki al-
veg hvaða peninga þeir hafa til þess
en þetta hljómar dauðadæmt. Ætla
samt ekki að dæma fyrr en ég sé
þetta.
http://blog.central.is/marasg/