blaðið - 22.07.2005, Qupperneq 37
blaðið FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005
DAGSKRÁ I 37
■ Fjölmiðlar
Sirkusinn
og ég
Það er ekki nýtt umkvörtunarefni
að fjölmiðlar fjalli of mikið um fjöl-
miðla og fjölmiðlafólk. Ekki skal ég
mótmæla því að blaðamenn séu sjálf-
hverf stétt en það má víst leggjast í
slíka sjálfhverfu í fjölmiðlapistli og
í dag ætla ég að stíga skrefið til fulls
í sjálfhverfunni og fjalla um sjálfan
mig.
Um daginn skrifaði ég frétt um
það hvernig Helgi nokkur Hermanns-
son stæði í feluleik gagnvart sýslu-
manninum í Reykjavík. Helgi þessi
vinnur sem dagskrárstjóri á Sirkus
en það má hann ekki samkvæmt lög-
bannsúrskurði sýslumanns þar sem
hann vann áður hjá Skjá 1 í sams
konar stöðu og hafði þar undirritað
samning um að hann mætti ekki
fara beint í vinnu hjá keppinauti.
Það var kannski merkilegt við þessa
frétt að ábendingin um hana kom
frá Helga sjálfum. Blaðinu barst
nefnilega sjónvarpsdagskrá Sirkus
til birtingar á þessari opnu, en við
lestur hennar kom í ljós að dagskrá-
in var upprunnin hjá Helga sem þó á
opinberlega aðeins að sinna verkefn-
um 365 utanlands.
Þetta var nú meginatriði fréttar-
innar en síðan var einn aukapunkt-
ur í henni: sumsé að hugmyndin
að gamaninnskotunum Bananaz
í Kvöldþætti gramskálksins Guð-
mundar Steingrímssonar ætti rætur
að rekja til hugmynda, sem tvær ung-
ar konur hefðu kynnt Helga meðan
hann var í vist á Skjá 1. Að því að
mér skilst eru þær að kanna hvort
þær geti leitað réttar síns á einhvern
hátt, en hér skal ekki frekar en ég
gerði í fréttinni, lagður dómur á það
hvað þær hafa fyrir sér í málinu.
En mér fannst gaman að því að
lesa um það í dálkinum Fólk í Frétta-
blaðinu degi síðar að þessi frétt
væri ágætt dæmi um „kranablaða-
mennsku“. Raunar var eftirtektar-
vert að þar var ekki minnst einu orði
á aðalefni fréttarinnar, sumsé það
að 365 miðlar og Helgi Hermanns-
son væru að gera sér það að leik að
sniðganga lögbannsúrskurðinn. Á
hinn bóginn voru athugasemdir
gerðar við frásögnina af meintum
hugmyndastuldi á Sirkus. Þar var
sérstaklega nefnt að ég hefði fálega
tekið tilraunum til þess að koma
andstæðum sjónarmiðum á fram-
færi og þar af leiðandi aðhylltist ég
kranablaðamennsku.
Jájá, það mætti sjálfsagt segja. Ef
það hefði legið þannig í því. Við
vinnslu fréttarinnar var nefnilega
reynt að ná sambandi við forráða-
menn stöðvarinnar án árangurs. En
hitt get ég staðfest, að ég tók tilraun-
um til þess að koma andstæðum sjón-
armiðum á framfæri fremur fálega,
aðallega af því að þeim bar engan
veginn saman. í Fréttablaðinu var
því haldið fram (líkt og mér hafði
verið sagt af einum blaðamanni þar
á bæ) að umsjónarmenn Bananaz
hefðu snúið sér beint til Guðmund-
ar Steingrímssonar með hugmyndir
sínar og hann hafi fallist á þær. Ann-
ar umsjónarmannanna hafði sagt
mér degi áður að þær hefðu snúið
sér beint til Árna Þórs Vigfússonar
sjónvarpsstjóra Sirkuss sem hefði
fallist á hugmyndir þeirra. Enn áð-
ur hafði mér hins vegar borist svar
Gunnars Smára Egilssonar, fram-
kvæmdastjóra 365, við fyrirspurn
um tilurð Bananaz. Hann segir að
Bananaz-stúlkurnar hafi komið að
máli við sig með prufur á diski en
hann hafi komið þeim áleiðis til
Árna Þórs.
Af þessu tilefni sneri ég mér í
hring. Lái mér hver sem vill þó ég
hafi tekið þriðju skýringunni frá Sir-
kus fálega.
Andrés Magnússon
21:00-23:00
23:00-00:00
21.50 Móðurást (Some Mother's Son)
Bresk btómynd frá 1996 um hungurverkfall Bobbys
Sands og fleiri (ra (bresku fangelsi árið 1981. (
myndinni er sjónum beint að mæðrum tveggja
fanganna og tilraunum þeirra til að bjarga Iffi sona
sinna. Leikstjóri erTerry George og meðal leikenda
eru Helen Mirren, Fionnula Flanagan, David O’Hara,
John Lynch.Tim Woodward og Ciarán Hinds.
Kvikmyndaskoðun telur myndina ekki hæfa fólki
yngra en 12 ára.
21,30Two and a Half Men (13:24)
(Tveir og hálfur maður)
Gamanmyndaflokkur um þrjá stráka, tvo full-
orðna og einn á barnsaldri. Charlie Harper er
piparsveinn sem skyndilega verður að hugsa um
fleira en hið Ijúfa líf. Alan bróðir hans stendur I
skllnaði og flytur til Charlles ásamt Jake syni sln-
um. Hér sannast enn og aftur að karlmenn deyja
ekki ráðalausir. I aðalhlutverkum eru Charlie
Sheen, Jon Cryer og AngusT. Jones.
21.55 Osbournes 3(a) (2:10)
(Osbourne-fjölskyldan)
22.20 Grind (Hjólabrettastrákarnir)
21.00 Wildboyz-NÝTTI
21.30 MTVCribs
l'MTV Cribs" þáttunum bjóða stjörnurnar fólki að
skoða heimili sin hátt og lágt og upplýsa áhorf-
endur um hvað þær dunda sér við heimavið.
22.00 Tremors
22.45 Sjáumst með Sllvfu Nótt (e)
21.00 Travis - Live in Hamburg
(Tónleikar meðTravis)
Tónleikar skosku hljómsveltarinnarTravis sem
haldnir voru I þýsku borginni Hamburg.
22.35 Kvöldþáttur (brot af þvl besta)
Brot af þvl besta úr Kvöldþáttum vikunnar.
23.20 David Letterman Það er bara einn David
Letterman. Góðir gestir koma I heimsókn og Paul
Shaffer erásínumstað.
21.30 Islandsmótið í golfi 2005
Samantekt frá öðrum keppnisdegi en Sýn verður
með belna útsendingu frá (slandsmótinu I högg-
leik á laugardag og sunnudag.
22.30 World PokerTour 2 (HM i póker)
22.00 Borderline (Órar)
Ðramatfskur glæpatryllir. Sálfræðingurinn Lila
Colleti er nýskilin við eiginmann sinn. Þau eiga
tvær dætur og hann fékk forræðið. Hún starfar
mikið með glæpamönnum og þvf þótti dómaran-
um öruggara að dæturnar væru hjá pabbanum.
Lila er skiljanlega miður sln og ekkl batnar
ástandiö þegar einn skjólstæðinga hennar fær
þá hugmynd að ryðja eiginmanninum úr vegi.
I staðinn heldur óþokkinn að hann fái ástir sál-
fræðingsins. Stranglega bönnuð börnum.
23.40 Þrfr kóngar (Three Kings)
Bandarlsk strfðsmynd frá 1999. Fjórir bandarískir
hermenn í Persaflóastrfðinu reyna að stela
gullstöngum frá Kúveit sem Saddam Hussein
hefur tekið og falið. Það er við ramman relp að
draga og f aðgerðinni hitta þeir fyrir strlðsfanga
sem þeir ákveða að reyna að bjarga. Leikstjóri
er David O. Russel og aðalhlutverk leika George
Clooney, Mark Wahlberg, lce Cube, Spike Jonze.
Kvikmyndaskoðun telur myndina ekki hæfa fólki
yngraen 16ára.e.
23.15 TheSwan(e)
00:00-6:00 01.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
00.00 French Kiss (Franskur koss) Aðalhlutverk: Kevin Kline, Timothy Hutton, Meg Ryan. Leikstjóri: Lawrence Kasdan. 1995. Leyfö öllum aldurshópum. 01.45 Sex, Lles and Videotape (Kynlíf, lygar og myndbönd) Stranglega bönnuð börnum. 03.25 Fréttir og Island i dag Fréttir og Island f dag endursýnt frá þvf fyrr f kvöld. 04.45 Tónlistarmyndbönd frá Popp TiVi
‘ 00:00 Dead Like Me (e) Við rifjum upp kynnin af George og félögum hennar sálnasöfnurunum sem hafa það að að- alstarfi að aðstoða fólk við vistasklptln úr heimi hinna lifenda 1 heim hinna dauðu. 00.45 Tvöfaldur Jay Leno (e) 02.15 Óstöðvandi tónllst
00.05 David Letterman 00.50 Friends (20:24) (Vinir) Ein vinsælasta sjónvarpsserfa sem gerð hefur verið og ekki að ástæðulausu. 01.15 Kvöldþáttur (brot af þvf besta) 02.00 Seinfeld 3 (TheTruth) Þriðja fáttaröðin með grlnistanum og Islandsvinln- um Seinfeld og vinum hans.
00.00 Heimsbikarinn f torfæru 0035 K-1Hér mætast sannkölluð hörkutól f sparkboxi, karate og fjölmörgum öðrum grein- um sem allar falla undir bardagalþróttir. Sýnt er frá K-1 Max World í Japan frá 18. nóvember 2003.
00.00 Clear And Present Danger (Bein ógnun) Stranglega bönnuð börnum. 02.20 Fargo Stranglega bönnuö börnum. 04.00 Borderline (Órar) Stranglega bönnuð börnum.
■ Molar...
Jordan slær
heimsmet
Jordan ætlar aldeilis að taka það
með trompi í brúðkaupi sínu og
Peter Andre í september. Stúlkan
sú er einmitt þekkt fýrir allt annað
en að fara fínt í hlutina og vill að
brúðarkjóllinn verði um 900 metra
langur, en það er heimsmet. Jordan
hefur með leynd pantað kjólinn og
hyggst þar með slá þriggja ára gam-
alt heimsmet. Vinur Jordan segir:
„Jordan lítur frábærlega út í kjólnum.
Það mun enginn trúa hve stór hann
er fyrr en þeir sjá hann. Hún vildi
að allir myndu muna eftir þessum
sérstaka degi hennar og það munu
þeir svo sannarlega gera.“
Eva fær hálsríg
Eva Longoria hefur sést með karl-
mann upp á arminn og það ansi
hávaxinn karlmann. Stjarnan úr
Aðþrengdum eiginkonum hefur
staðfest að hún eigi í sambandi við
körfuboltamanninn Tony Parker.
Það er töluverður stærðarmunur á
milli þeirra þar sem Eva er frekar
lágvaxin.
■ Á hvaða tíma horfirðu helst á sjónvarpið?
Hörður Valdimarsson
„Um klukkan sjö og þá á frétt-
irnar.“
Þórunn Gunnarsdóttir
„Ég horfi á sjónvarp frekar
seint á kvöldin.“
Ómar Grétarsson
„Ég horfi á sjónvarp eftir
klukkan tíu á kvöldin. Ég er
að vinna það lengi.“
Emma Lovísa Diego
„Það er mest á kvöldin, svona
eftir tíu.“
Elsa Serrenho
„Ég horfi á sjónvarpið á kvöld-
in, fer eftir því hvað er í því.“
Adam Snær Atlason
„Ég horfi mest á sjónvarp eftir
sjö á kvöldin.“