blaðið - 22.07.2005, Blaðsíða 38

blaðið - 22.07.2005, Blaðsíða 38
38 IFÓLK FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 blaóiö SMÁboraarinn HVERBORGAR VIRÐISAUKASKATTINN? Smáborgarinn er auðvitað eins og aðrir smáborgarar - ákaflega hneykslaður á skattsvindli ann- arra. Þess vegna rekur hann í ro- gastans þegar auglýst er í útvarpi, sjónvarpi og blöðum að einstakar verslanir slái virðisaukaskattinn af varningi sínum um tiltekinn tíma. Hvenær varð það í verka- hring verslanaeigenda að stýra skattlagningu þjóðarinnar? Á þessum árstíma eru útsölur í hverri verslun og hver versluna- rekandinn á fætur öðrum reynir allt hvað af tekur að koma varn- ingi sínum í verð. 1 því gríðarlega vöruframboði sem íslendingar hafa úr að velja um þessar mund- ir er augljóst að ekki verður öllu umbreytt í seðla yfir búðarborði. Heilu fjöllin af tískuvarningi sitja enn á borðum smásalanna þegar liðið er á fjórðu og fimmtu viku útsölunnar og það er fullljóst að hluti þessarar vöru sem þykir smart í dag en púkó í næstu viku kemst aldrei í „brúk“. Þessi vara endar á rekstrarreikningi undir liðnum afföll og telst þá frádrátt- arbær frá skatti fyrir verslunareig- andann. Auglýsingar um afnám virðisaukaskatts er ein aðferð við að laða til sín viðskiptavini sem af fúsum og frjálsum vilja breyta út- söluvörunum í peninga. Smáborgarinn veltir því fyrir sér hvort verslanir sem auglýsa afnám virðisaukaskatts á varn- ingi sínum stundi einhverskonar smyglarakaup eða hvort þetta sé til marks um bókhaldsleikfimi einhverskonar. Hvernig getur verslun lækkað verð á útsöluvarn- ingi, lækkað verð á vöru sem þeg- ar hefur verið lækkuð í verði, um það sem nemur 24.5%? Má lesa úr þessu að álagning á vöruna hafi verið svo óheyrileg í upphafi að í raun hafi upphafleg verðlagning verið rán í björtu dagsljósi? Eða þýðir það að versl- un afnemi virðisaukaskatt af út- söluvarningi í reynd að verið sé að selja vöru sem þegar hafi verið afskrifuð - sem þýðir þá væntan- lega að hún hefur þegar verið færð sem afdráttarliður frá skattfærsl- um rekstursins? Að minnsta kosti er þetta allt frekar dularfullt og ljóst að hefð- bundnar leikreglur þar sem al- menningur kýs yfir sig stjórnvöld sem svo aftur ákvarða hversu miklar skattbyrðar skuli leggja á almenning eru eitthvað farnar að riðlast. Er þetta enn eitt merki þess að opnun kerfisins hafi leitt til þess að stjórnmálamenn lýð- veldisins hafi sífellt minnkandi völd? Smáborgarinn kunni þó all- tént betur við það að hann hefði eitthvað um það að segja hverjir ákveða skattafrádráttinn - en að menn skipuðu sig til slíkra starfa sjálfir finnst honum til marks um sprungu í lýðræðinu. SUtalhá raut Su Doki u -1 [4. gáta 4 7 1 8 2 9 6 9 2 7 1 9 6 1 3 3 4 4 7 9 8 4 8 7 5 3 5 8 4 3 9 7 Lausn á 14. gátu verður að íinna i blaðinu á manudag. Su Doki t- 1; tusn við 13. gátu 9 4 5 2 7 8 i 6 3 7 8 1 6 3 5 2 4 9 2 6 3 4 9 1 7 8 5 1 3 j 6 8 i 5 9 4 7 2 4 2 7 1 1 6 3 5 9 8 8 5 9 z 2 4 6 3 | 1 6 1 2 9 8 7 3 T1 4 5 7 8 Jj 4 2 9 1 6 3 9 4 5 1 6 8 2 7 Leiðbeiningar Su Doku gengur út á að raða tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð box sem innihalda 9 reiti. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í hverri línu og innan hvers Lausn á 13. gátu box. Allar gátur er hægt að ráða út frá þeim tölum sem gefnar eru upp i upphafi. Leitað er að talnapörum og reynt að koma þeirri þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta boxinu vinstra megin og því neðsta líka, ætti ekki að vera erfitt að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu. Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt að skrá þá hjá sér og halda áfram. Michael Jackson að fíytja til Evrópu? Michael Jackson er sagður vera að flytja til Evrópu og ætlar jafnvel að endurreisa búgarðinn sinn, Never- land, í Þýskalandi eða Sviss. Fjöl- miðlar í Þýskalandi sögðu frá því að Jackson fjölskyldan væri að leita sér að landi nálægt Berlín. Faðir Micha- els sagði að sonur sinn væri mikill aðdáandi Þýskalands og þætti borg- in frábær. Þýskir aðdáendur Micha- els komu meðal annars til að styðja hann í réttarhöldunum. Sagt er frá því að Michael líði ekki vel í Banda- ríkjunum, hann vilji búa í Evrópu en hafi enn ekki ákveðið hvort að hann vilji fara til Sviss eða Berlínar. Flytji söngvarinn til Þýskalands er talið að hann vilji byggja ævintýraland sitt ná- lægt Brandenborgarhliðinu í Berlín. öeGO ódýrt bensín + ávinningur! Sadie finnur til með Siennu Saide Frost, fyrrverandi eiginkona Jude Law, segist finna til með núver- andi konu hans, Siennu Miller, og segir að hún hafi allskyns ráð handa henni. Sadie talaði opinberlega í fyrsta sinn nýlega síðan að Jude viðurkenndi að hafa haldið framhjá unnustu sinni Si- ennu. Segir Sadie að þetta hafi verið mikið áfall fyr- ir sjálfan sig og að hún hafi ekki bú- ist við þessu af honum. Einnig sagði hún um Siennu: „Ég vil bara segja það opinberlega að ég kenni í brjósti um hana. Hún er ung og á góðan fer- il framundan - en ég finn il með henni. Eg hef allskyns ráð handa henni en ég vil ekkert tala um það opinber- lega. Ef að hún hring- ir í mig þá munum við tala lengi saman. Ég get bara gefið henni ráð ef að hún biður um það. Ann- ars, ætla ég ekki að skipta mér af þessu. Þetta er eitt- hvað sem að þau verða að leysa í samein- ingu.” I Reynt að lá nálgunarbann í Farrel máli Reynt er að fá tímabundið nálgunar- bann gegn Nicole Narain sem reynir að dreifa kynlífsmyndbandi af sér og Colin Farrel. Dómari í málinu hef- ur bannað konunni að selja, dreifa eða að spila myndbandið. Næst verð- ur málið tekið fyrir ío.ágúst. Farrel kærði Nicole fyrir að reyna að dreifa myndbandinu í gegnum netið. Sag- an segir að konan, sem er sögð vera eigandi klámfyrirtækis á internet- inu, hafi haft samband við fjölmiðla og boðið þeim spóluna. Farrel grein- ir frá því að umrædd spóla hafi aldr- ei átt að fara í umferð og að þau hafi gert munnlegan samning um að myndbandið yrði aldrei gert opin- bert. Talið er að málið geti skaðað feril leikarans. ■ HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR? Steingeit (22. desember-19. janúar) $ Þú þarft að endurskoða aðferðir þínar. Þú þarft ekki að breyta algiörlega um aðferðafræði neldur ættirðu kannski ao fá ráð frá þeim sem eru nánir þér. V Það verður gaman að fara út á lífið með vinunum í kvöld. En passaðu þig á að tæma ekki bankareiknineinn. Það er hægt aö skemmta sér án þess að fara á nausinn. Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) $ Láttu heyra í þér þegar góða hugmyndin kemur. Þú munt vita af því pegar hún kemur og aðrir munu einnig sjá gilai hennar. V Þú geislar í dag. Aðrir munu taka eftir ör- yggi þínu og heillandi persónuleika. ©Fiskar (19. febrúar-20. mars) $ Þú hefur svo margar góðar hugmyndir að þær munu trufla þig í vinnunni. Skrifaða þær nið- ur og geymdu þær þar til seinna. V Gefðu þér frí í dag, þú hefur gert nóg. Þú þarft ekki ao hætta alveg að hjálpa öðrum en reyndu að vera raunsæ/r með hvað pú hefur tíma og orku fyrir. Hrútur (21. mars-19. apríl) $ Veldu samstarfsfélaga þína vel eða veldu að minnsta kosti þá sem þú getur treyst. Félagslegir hæfileikar þínar eru miklir núna svo þú getur treyst þeim. V Ástvinurþinnverðurfrábærídag.hreinskiln- islega sagt. Hann styður þig að fullu í dag. Njóttu þess en gleymdu ekki að segja hve þakklát/ur þú ert. ©Naut (20. apríl-20. maí) $ Viðskiptavinur mun reyna á þolinmæðina þína ef þú gefur honum færi á því. Reyndu að láta pað fara inn um annað eyrað en út um hitt. V Eitthvað sem ástvinur þinn segir mun snerta taug. Þú getur æst þig eoa hunsað það. Það mun koma þér á óvart hve mikið auðveldari seinni valkosturinn er. ©Tvíburar (21. maí-21. júní) $ Nýr vinnufélagi mun aldeilis hrista upp í vinnustaðnum og heídur þér á tánum. Bilið á milli ykkar mun þó minnka fljótt. ^ Þú ert bara að einbeita þér að vinnunni um þessar mundir og sambandio er í öðru sæti. Það er allt í lagi að gera það stundum en best er þó að hafa jafnvægið í lagi. ©Krabbi (22. júní-22. júlí) $ Tilfinningar þínar virðast ekki hæfa á vinnu- staðnum í dag enaa eru vinnufélaearnir miklu kaldari en venjulega. Ekki láta það á pig fá. V Ekki gera of mikið úr hlutunum. Komdu í veg fyrir of viðkvæma stund með því að nota gáf- urnar. Ljón (23. júlí- 22. ágúst) $ Nú er tími til að gleyma þessu verkefni sem hefur svona truflandi ahnf á þig. Það verður ekki auðvelt en þú veist þú þarft á pvi að halda. V Farðu varlega í sambönd um þessar mundir, hvort sem er rómantísk eða vináttu. Þú ert vön/ vanur því að stjórna en stundum er betra að láta annan um stjórnina. Meyja (23. ágúst-22. september) $ Breyttu stíl og viðhorfi örlítið og athu^aðu hvort einhver tekur eftir breytingunum. Ef þu get- ur fengið jákvæð viðbrögð frá viðskiptavinunum þá er það frábært. V Það er sem eðlilegir hlutir í hversdagsleik- anum séu allt öðruvísi en venjulega. Ekki berjast gegn því. Það er gaman að breyta til stundum. ®Vog (23. september-23. október) $ Samskiptahæfileikar þinir eru í hámarki og bað jafnast ekkert á við sannfæringarkraft þinn. Notaðu þetta til að safna nýjum viðskiptavinum. V Ein af bestu leiðunum til að skilja aðra er að skilja sjálfan sig út og inn. l>ú verður að finna út hvað þú vilt i raun og veru áður en þú getur ætlast til að aðrir viti hvað peir vilja. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) $ Yfirmaður boðar miklar breytingar sem munu hafa áhrif á þig og þína nánustu vinnufélaga. Það verður óróleiki í vinnunni, vertu viðbúin/n því. V Breyttar tilfinningar geta boðað breytingar í framtíðinni. Hvað svo sem gerist.þá eru breyting- ar alltaf af hinu góða. Bogmaður (22. nóvember-21. desember) 5 Hugsaðu fram og aftur um verkefnin sem liggia fyrir. Skoðaðu vtnkla sem þú hefur ekki skoðað áður, hver veit nema þú rekist á eitthvað gagnlegt. V Þú kemst að þvf að þú hefur sérstakan hæfi- leika til að tengjast fólki. Það er í góðu lagi að nota þann hæfileika i vinnunni.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.