blaðið - 17.08.2005, Síða 4
Norrœnir
umhverfisráðherrar
Vilja efla
umhverfisvæna
tækni
Norðurlöndin hyggjast efla sam-
vinnu um að styðjaþróun og nýtingu
umhverfisvænnar tækni. Þetta kom
fram á fundi umhverfisráðherra
landanna í Grænlandi á dögunum.
Áhersla verður m.a. lögð á tækni
sem miðar að því að draga úr meng-
un frá skipum, auka orkunýtni í
byggingum og minnka neikvæð um-
hverfisáhrif landbúnaðar. Einnig
verður reynt að þróa efnahagslega
hvata til að efla umhverfisvæna
tækni.
Umhverfisráðherrar landanna
ræddu ennfremur samhengi um-
hverfisverndar og baráttunnar gegn
fátækt í heiminum. Álag á vistkerfi
jarðar færi vaxandi og að bæta
þyrfti umgengni mannkyns um þau
ef þau eiga að geta staðið undir vax-
andi neyslu og velferð þjóða heims.
Frumvarp um rétt
samkynhneigðra
Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær var
samþykkt tillaga forsætisráðherra
um að samið verði eitt heildstætt
frumvarp, svokallað bandorms-
frumvarp, sem hefur það að mark-
miði að jafna rétt gagnkynhneigðra
og samkynhneigðra. Við samningu
frumvarpsins á að taka á niðurstöð-
um nefndar um réttarstöðu sam-
kynhneigðra sem lauk störfum fyrir
tæpu ári síðan.
Nefndin klofnaði í tveimur mál-
um, annars vegar afstöðu um ætt-
leiðingar á erlendum börnum og
hins vegar afstöðu um heimild fyr-
ir tæknifrjóvgunum. Þ e i r
semmæld-
ust gegn
því vís- uðu til
þess að hags-
Frá Hinsegin dögum, hátíö samkynhneigðra
Tólf lögreglulið
í samstarfs-
verkefni
í frétt Blaðsins 11. ágúst sl. var
fjallað um samstarfsverkefni sam-
gönguráðuneytis, ríkislögreglu-
stjóra, Umferðarstofu og Vegagerð-
arinnar, og sagt frá því að 1.560
ökumenn hafi verið stöðvaðir á
þjóðvegum landsins þegar verkefn-
ið er hálfnað. Af hálfu lögreglunnar
koma eftirtalin 12 lögreglulið að
þessu samstarfsverkefni, auk emb-
ættis ríkislögreglustjóra: í Reykja-
vík, Kópavogi, Borgarnesi, á Selfossi,
Hvolsvelli, Akranesi, Hólmavík, í
Búðardal, á Blönduósi, Sauðárkróki,
Akureyri og Húsavík, og eru afskipti
af ökumönnum, sem sagt var frá í
fréttinni, afrakstur þeirra. ■
BlaÖiÖ/SteinarHugi
munir barna af því að alast upp
bæði með móður og föður vægi
þyngra en réttur einstaklinga til að
eignast börn.
Helstu tillögur nefndarinnar:
• Samkynhneigð pör geti fengið
óvígða sambúð skráða hjá Hagstofu
íslands
• Lagaákvæðum sem veita sambúð
karls og konu sérstök réttindi verði
breytt svo þau taki einnig til sam-
kynhneigðra.
• Samkynhneigðum pörum í stað-
festri samvist verði heimilað að
frumættleiða íslensk börn
• Sett verði lög til að sporna við mis-
munun samkynhneigðra á vinnu-
markaði. ■
Spá áframhaldandi
hækkun stýrivaxta
Hraðar hendur
í hraðskák
í gær þurfti heldur betur að hafa
hraðar hendur þegar keppt var
um heimsmeistaratitil í hraðskák
tölvuforrita. Það voru höfundar
forritanna sem sáu um að koma
mönnunum um taflborðið en þeir
höfðu í nógu að snúast þar sem tölv-
urnar gátu hugsað millljónir leikja á
hverri sekúndu.
Mótið er hliðarskref frá þrettánda
heimsmeistaramóti tölva „World
Computer Chess Championship".
Annað slíkt verður síðdegis á morg-
un þegar keppt verður í Slembiskák
Bobby Fischer. ■
loftkœling
■OrW ís-húsid 566 6000
Seðlabanki íslands hefur hækkað
stýrivexti sína um fjögur prósent á
síðustu 13 mánuðum. Á sama tíma
hefur Seðlabanki Evrópu haldið sín-
um vöxtum óbreyttum í tveimur
prósentum. Munur stýrivaxta hér
og á evrusvæðinu hefur því farið úr
3,5% í 7,5%. Þetta kom fram í Morg-
unkorni íslandsbanka í gær. Þar seg-
ir ennfremur að bankinn spáir því
að Seðlabankinn hækki stýrivexti
upp í allt að 10% fyrir árslok, en þeir
standa í 9,5% í dag. Á sama tíma er
gert ráð fýrir óbreyttum stýrivöxt-
um á evrusvæðinu, og því bendir allt
til þess að munurinn á stýrivöxtum
hér á landi og evrusvæðinu komi til
með að aukast frekar á næstunni og
að hann verði kominn í 8 prósentur
um áramótin. Ennfremur gæti farið
svo að munurinn fari jafnvel enn
hærra á næsta ári. í Morgunkorninu
er bent á að þetta komi skuldsettum
landanum vel þar sem stærsti hluti
erlendra skulda hans sé í skamm-
tímalánum í evrum. ■
Bregöast við tíðum ránum
Teknir verða í notkun tímalæstir ör-
yggisskápar í apótekum Lyfju á næst-
unni. Með því vilja forráðamenn
fyrirtækisins bregðast við fjölgun
rána og innbrota í verslanir Lyfju á
undanförnum misserum. Umrædd-
ir skápar eru alltaf læstir og eftir að
stutt hefur verið á öryggisnúmer til
að opna þá tekur það öryggiskerfi
skápsins fyrirfram ákveðinn tíma
að aftengja læsinguna og opna. Öll
ávana- og fíknilyf verða geymd í um-
ræddum skápum, en það eru þær
lyfjategundir sem fíkniefnaneytend-
ur hafa einkum sóst eftir við innbrot
í apótek. Öryggisprófanir á vegum
Lyfju sýna að það tekur lögreglu og
öryggisverði Securitas að meðaltali
tæpar 2 mínútur að mæta á staðinn
þegar brotist er inn í fyrirtækið eða
gerð er tilraun til ráns. Gert er ráð
fyrir að opnunartími hinna nýju
öryggisskápa verði nokkuð lengri
en það. Forráðamenn Lyfju fullyrða
engu að síður að þetta muni ekki
tefja afgreiðslu af þeim lyfjum sem
í skápunum verða geymd.
1 tilkynningu frá Lyfju um málið
segir:
„Með auknum öryggisráðstöfun-
um vonast stjórnendur Lyfju til þess
að fíkniefnaneytendur hugsi sig um
tvisvar áður en þeir ráðist til atlögu
í apótekunum því engin leið er að
nálgast umrædd ávana- og fíknilyf
fyrirvaralaust“. ■
Fyrlrfram ákveöinn tíma tekur að opna
nýja öryggisskápa Lyfju
Helmingi
minni veiði í
júlí en í sama
mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa í ný-
liðnum júlímánuði var tæpleag
87 þúsund tonn. 1 sama mánuði
í fyrra var aflinn hinsvegar
tæp 172 þúsund tonn eða um 85
þúsund tonnum meiri afli. Enn-
fremur minnkaði aflaverðmæti
milli þessara mánaða verulega,
eða um tæp 26%. Það sem af er
þessu ári hefur verðmæti fisk-
aflans dregist saman um 1,3%
miðað við sama tímabil í fyrra.
Lítil veiði á uppsjáv-
artegundum
Ef afli í einstökum flokkum
er skoðaður kemur í ljós að
botnfisksafli dróst saman um
tæp 8 þúsund tonn milli ára.
í júlí síðastliðnum var aflinn
30.400 tonn en var 38.000 tonn
í sama mánuði í fyrra. Skel- og
krabbadýraafli var 1.800 tonn
nú samanborið við 5.600 tonn
í júlí í fyrra. Mestur samdrátt-
ur er hinsvegar í afla uppsjáv-
artegunda. í fyrra nam aflinn
rúmum 125 þúsund tonnum en
var aðeins tæp 52 þúsund tonn
í nýliðnum júlímánuði.
Heildarafli íslenskra skipa
það sem af er árinu 2005 nem-
ur 1.252.000 tonnum og er það
24.300 tonna meiri afli en á
sama tímabili ársins 2004.
iTrip verði
löglegt
Til skoðunar er hvort breyta
eigi reglum um nýja notkun
FM-hljóðvarpstíðna, svo hlusta
megi á tónlist og annað efni úr
t.d. MP3 spilurum í venjulegum
FM-útvörpum. Búnaðurinn
er seldur m.a. undir nafninu
iTrip með iPod spilara Apple
fyrirtækisins í Bandaríkjun-
um. Hann gerir fólki kleift að
tengja spilara við útvarpsvið-
tæld t.d. í bílum og senda út á
FM-tíðnum. Það er Evrópska
samstarfsnefndin um íjar-
skipti (ECC) sem fer yér málið.
Undanfarið heíur búnaði sem
þessum fjölgað ört hérlendis
en um nokkurt skeið hefur
slíkur búnaður verið seldur í
Bandaríkjunum. Sala á honum
er hins vegar bönnuð á evr-
ópska efnahagssvæðinu. Vonir
standa til þess að nýjar reglur
verði samþykktar á næsta fundi
ECC, sem haldinn verður í
október næstkomandi. Gefst þá
tækifæri fyrir framleiðendur
að setja á markað löglegan CE-
merktan búnað á EES-svæðinu.
■
■
TILBOÐ 1 Alla virka daga
HÁDEGISVERÐARTILBOÐ 690 . ■ Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborði
Frá 11.00-13.30
TILB0Ð 2 Alla daga vikunnar
30 % AFSLÁTTUR AF HEILUM SKAMMTI í HITAB0RÐINU
gildirfrá 17.30 - 2100
Sðltún 3 Bæjarllnd 14-16
Tilboðln gllda ekki með heimsendingu S 562 9060 S 564 6111
mEKONC
t h o i I e n s h matstofa
flfc