blaðið - 17.08.2005, Page 12

blaðið - 17.08.2005, Page 12
12 I NEYTENDUR MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2005 ! blaðiö Hjálpar fólki að hjálpa sér sjálft —Ráðgjafarstofa umfjármál heimilanna Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna er samstarfsverk- efni fjórtán aðila, en félags- málaráðuneytið ber ábyrgð á rekstrinum. Aðrir eru m.a. lánastofnanir, Reykjavíkur- borg, íbúðalánasjóður, ASÍ, BHM og BSRB, Rauði kross fslands, Þjóðkirkjan, Samband íslenskra sveitarfélaga og Lands- samtök lífeyrissjóða. Auk þess eru tveir styrktaraðilar, Kredit- kort hf. og Samband íslenskra tryggingarfélaga. Ráðgjafar- stofan vinnur að því að leysa greiðsluerfiðleika fólks með ráðgjöf og veita fræðslu um fjár- mál heimilanna til einstaklinga og hópa. Ráðgjöfin er ókeypis og einnig er hægt að hringja og fá ráðgjöf gegnum síma frá klukkan 9-12 og 13-15 alla virka daga. Þjónusta við landsbyggðina Svæðisvinnumiðlun Vesturlands, Akraneskaupstaður og Verkalýðs- félag Akraness, Akureyrarkaup- staður og Verkalýðs og sjómanna- félag Keflavíkur og nágrennis hafa undirritað þjónustusamning við Ráðgjafarstofuna þannig að fólk búsett á þessum stöðum get- ur pantað sér viðtal við ráðgjafa á fyrirfram ákveðnum dögum sem kemur á staðinn. Auk þess hefur þjónustusamningur verið gerður við Kópavogsbæ. I fyrra var gerður þjónustusamningur við Árborg. Ásta Sigrún Helgadóttir er for- stöðumaður Ráðgjafarstofunnar og Elna Sigrún Sigurðardóttir er einn af fjórum ráðgjöfum hennar, en þrjár aðrar konur starfa sem ráðgjafar á stofunni. Þær hafa mikla reynslu af ráðgjöf, tvær eru viðskiptafræðingar, ein er hagfræðingur og ein er byggingar- fræðingur. Einstæðar mæður stærsti hópurinn .Stærsti einstaki hópurinn sem leit- ar til Ráðgjafarstofunnar eru ein- stæðar mæður. Síðan höfum við líka verið að vekja athygli á því að einhleypir karlmenn eru vaxandi 99..................... Fjárhagsvandi er þó ofthluti aföðrum vandamálum segja þær Elna og Ásta og oft kemur fólk og vill ræða vandann og komast til botns í honum. Sumir eru uppfullir af sjálfsblekkingu á meðan aðrir virkilega vilja taka sig á. hópur þó að hjón með börn sé næststærsti hópurinn," segir Ásta. Ásta og Elna segja umsóknum hafa fækkað lítillega undanfarið ár. „Við sjáum ákveðið fylgi við breytingar á lánareglum bank- anna og vaxtakjörum. Við skoð- um í hverjum mánuði umframeft- irspurn og í dag er kannski ekki nema vikubið á meðan áður fyrr var fólk á biðlista viku eftir viku og það komst aldrei inn, kannski ekki fyrr en eftir mánaðabið. Bið- in er versti óvinur vanskilamanns- ins, það koma dráttarvextir og annað ofan á það sem skuldað er. Þetta er grundvöllur að því að við höfum getað snúið okkur meira að fræðslu og forvörnum sem er mikilvægt í þessum málaflokki. Við reynum að miðla reynslunni sem myndast hér til almennings. Þetta er í raun draumastaða Ráð- gjafarstofunnar," segir Ásta en þær Elna benda þó á að vegna auk- innar þjónustu bankanna séu þær þó að fá erfiðari mál þó að færri séu. Fólk komi ekki fyrr en um allt þrýtur til Ráðgjafarstofunnar. Misjafnar aðstæður Fjárhagsvandi er þó oft hluti af öðrum vandamálum segja þær Elna og Ásta og oft kemur fólk og vill ræða vandann og komast til Nýtf/og ferskt blað á næsta blaðsölustað Áskrift 586 8005 www.rit.is botns í honum. Sumir eru uppfull- ir af sjálfsblekkingu á meðan aðrir virkilega vilja taka sig á. „Það er grundvallaratriði að fólk hafi vilja til að bæta ástandið. Við erum í raun bara að hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft, við erum auð- vitað engin kraftaverkastofnun,” segir Ásta og Elna heldur áfram, „Það er líka huglægt hvað fólk er til- búið að gera. Sumir vilja skera nið- ur símareikning og áskriftargjöld á meðan aðrir segja slíkan niður- skurð alls ekki koma til greina.“ Misstór vandi Ásta segir það misjafnt hvenær fólk upplifi það að það sé komið í fjárhagsvanda. „Einhver fer kannski einu sinni yfir á heftinu og finnst það vera stórmál á meðan annar skuldar tuttugu milljónir en finnst það bara allt í lagi. Það er mjög mis- munandi hvenær og hvernig fólk upplifir fjárhagsvanda,“ segir hún. Það eru ýmis ráð til þess að koma í veg fyrir að lenda í fjár- hagsvanda til að byrja með. „Það er mikilvægt að staldra alltaf við og hugsa áður en lán er tekið eða skuldbreyting er gerð á láni. Hefur heimilið bolmagn til þess að borga þessi lán? Fólk verður að átta sig á að þarna er verið að skuldbinda sig, jafnvel til marga ára. Svo er alltaf gott að halda heimilisbókhald, halda öll- um kvittunum til haga, setja þær á pinna og skoða svo eftir mánuð- inn. Er eitthvað sem hefði mátt sleppa því að kaupa?" segir Elna. Einfalt reikningsdæmi Ásta bætir við að þetta sé í raun bara einfalt reikningsdæmi. „Ef maður lítur á þetta réttum augum þá snýst þetta bara um útgjöld og tekjur. Fólk er með X tekjur og svo er auðvelt að reikna út - séu útgjöldin meiri en tekj- urnar sérstaklega til lengri tíma er hættumerki á ferðinni.“. Ásta og Elna segja stærsta hóp- inn sem kemur til þeirra vera á milli þrítugs og fertugs enda sé það kannski eðlilegt - fólk er að koma úr námi, er að borga upp námslán og jafnvel kaupa sér fast- eign. Þegar ákveðið er að leita sér Asta Sigrún Helgadóttir t.v. og Elna Sigrún Sigurðardóttir t.h. ráðgjafar hjá Ráðgjafarstofunni tekur við einfalt ferli. „Fólk pantar sér tima hjá ein- um af ráðgjöfum okkar og þá fær það senda umsókn. Það kemur svo með umsóknina útfyllta þeg- ar kemur að tímanum þeirra. Þá er farið yfir umsóknina og geng- ið úr skugga um að hún sé rétt útfyllt. Fólk skrifar síðan undir til að Ráðgjafarstofan fái heim- ild til að afla sér upplýsinga um skuldir og tekjur hjá viðkomandi fyrirtækjum og stofnunum. Við tökum okkur síðan um það bil viku til að vinna umsóknina og til að finna leiðir til að bæta stöð- una hjá fólki. Þá þarf kannski að skera niður útgjöld, breyta lán- um og hagræða skuldum. Það er síðan fólksins að vinna úr þeim ráðum sem við gefum, þetta er einnig verkfæri til að leita samn- inga hjá lánardrottnum,“ segir Elna. katrin.bessadottir@vbl.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.