blaðið - 14.09.2005, Síða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 bla6iö
Talabani forseti íraks segir að allt að 50.000 bandarískir hermenn
geti hugsanlega snúið til síns heimafyrir áramót. Bandartkjamenn
eru ekki með neina tímaácetlun um brotthvarfhermanna.
Bandaríkjamenn munu hugsanlega
kalla allt að 50.000 hermenn heim
frá írak fyrir árslok þar sem nóg
er af íröskum hersveitum sem eru í
stakk búnar til að taka að sér stjórn
vissra landshluta. Þetta sagði jalal
Talabani, forseti Iraks, í viðtali við
dagblaðið Wahington Post í gær.
Sagðist Talabani ætla að ræða fækk-
un bandarískra hermanna á fundi
með George W. Bush, Bandaríkjafor-
seta, og taldi enn fremur að Banda-
ríkjamenn gætu þegar hafið brott-
flutning hersveita. „Við höldum að
Bandaríkin hafi fullan rétt til að
flytja sumar hersveitirnar heim frá
Irak þar sem ég held að við getum lát-
ið okkar sveitir leysa þær af hólmi“,
sagði Talabani. „Að mínu mati verð-
ur hægt að kalla heim á milli 40 og
50.000 hermenn fyrir árslok.“
Ráðgjafi Talabanis hafði samband
við blaðið eftir viðtalið og sagði að
forsetinn vildi ekki gefa til kynna
sérstaka tímasetningu fyrir brott-
flutninginn enda færi það eftir því
hvernig til tækist í baráttunni gegn
uppreisnarmönnum. George Bush
hefur ekki viljað gera tímaáætlun
um fækkun herliðs í Irak.
Bandaríkin eru með um 140.000
hermenn í Irak og unnið er að þjálf-
un íraskra hersveita til að taka við
þeim en nýlegt mat bandaríska hers-
ins dregur í efa hernaðargetu írösku
hersveitanna.
Róstursamt í Bagdad og íTal Afar
Uppreisnarmenn vörpuðu sprengj-
um á hið víggirta græna svæði í mið-
borg Bagdad í gær. Tvær sprengjur
sprungu í grennd við hersjúkrahús
innan hins verndaða svæðis þar sem
einnig er að finna aðsetur ríkisstjórn-
ar Iraks, þingið og erlendar hjálpar-
stofnanir. Ekki er vitað um nein slys
á fólki í þessum árásum. Þá voru enn
fremur um 400 grunaðir uppreisnar-
menn handteknir í tilraun til að ná
borginni Tal Afar í norðurhluta lands-
ins aftur á sitt vald. ■
Meira en 500 látnir
Bush heimsækir hamfarasvæóin
Kapítalisminn blómstrar í Kína
Disneyland í Kína
Gestur á opnunardegi Dineylands f Hong
Kong fylgist með skrúðgöngu.
George W. Bush, Bandaríkjaforseti,
heimsótti New Orleans fyrr í vik-
unni. Þetta var fyrsta heimsókn
forsetans til borgarinnar síðan ham-
farirnar riðu yfir Mexíkóflóa. Áður
hafði hann flogið yfir borgina en
ekki séð eyðilegginguna af jörðu
niðri. Einnig heimsótti hann út-
hverfi borgarinnar sem varð illa úti
og borgina Gulfport í Mississippi.
Með þessu vildi Bush svara gagn-
rýni um slæm viðbrögð við hamför-
unum en forsetinn hefur ekki verið
óvinsælli síðan hann tók við emb-
ætti í ársbyrjun 2001.
Á sama tíma og George Bush heim-
sótti New Orleans sagði Michael
Brown, yfirmaður Almannavarna
Bandaríkjanna, af sér í kjölfar mik-
ils þrýstings og harðrar gagnrýni
vegna vinnubragða hans og við-
bragða við hamförunum.
Staðfest hefur verið að meira en
500 manns fórust í hamförunum
við Mexíkóflóa fyrir rúmum tveim-
ur vikum. Tala látinna á örugglega
eftir að hækka en embættismenn
telja að endanleg tala verði undir
10.000 manns.
George Bush, Bandaríkjaforseti, heim-
sækir fórnarlömb fellibylsins Katrinu í
borginni Gulfport f Mississippi.
Blindur ökumað-
ur bætir met
Suður Afríkumaður varð hraðskreið-
asti blindi ökumaður heims í síðustu
viku eftir að hafa ekið Maserati biffeið
á 269 km hraða. Fyrra metið sem bresk-
ur bankastjóri átti var 233 km/klst.
Hinn 33 ára Hein Wagner sem hefur
verið blindur ffá fæðingu naut aðstoð-
ar sjáandi leiðsögumanns við tilraun-
ina. Að ökuferðinni lokinni sagðist
Wagner vilja reyna þetta aftur á flugvél.
Tilgangur ökuferðarinnar var að vekja
athygh almennings á vanda blindra
og safna fé í stuðningssjóð fyrir sjón-
skerta. Wagner kvaðst hafa ekið án
tryggingar enda hafi enginn treyst sér
tilaðtryggjahann.
fraskir hermenn leika kotru viö íbúa í borginni Tal Afar.
Allt að 50.000
hermenn heim
Fjöldi fólks beið í ofvæni eftir að
Disneyland í Hong Kong opnaði
hlið sín almenningi í fyrsta sinn á
mánudag. Um 5.000 manns vinna í
skemmtigarðinum sem kostaði um
3,5 milljarða bandaríkjadala. Gert er
ráð fyrir að gestir verði 5,6 milljón-
ir á fyrsta árinu. Disney-fyrirtækið
bindur vonir við að skemmtigarður-
inn sem er sá ellefti í röðinni, verði
aðdráttarafl fyrir sterkefnaða kín-
verska ferðamenn sem hafa það orð
á sér að vera eyðsluklær.
Robert Iger, forstjóri Disney-fyrir-
tækisins, telur enn fremur að garð-
urinn verði fyrsta skref 1 frekara
landnámi fyrirtækisins í Kína þar
sem heilu kynslóðirnar hafa alist
upp án þess að komast í kynni við
Mikka mús og félaga. p
ashtanga jóga
byrjenda- og framhaldsnámskeið
power jóga
hatha jóga
meðgöngujóga
kennsla hefst 19. september
skráning í síma 553 0203 og istefan@mi.is
yoga shala
reykjavík
engjateigur 5
!