blaðið - 14.09.2005, Blaðsíða 26
26 I FYRIR KONUR
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MaöÍA
Húsmœður œttu aðfá 43 milljónir á ári
Skammarlega lág laun
fyrir umönnun að mati
hagfræðings hjá ASÍ
Flestir þekkja að minnsta kosti
eina ofurmömmu. Hjá ofur-
mömmum er heimilið alltaf tand-
urhreint, fötin alltaf eins og ný,
börnin hrein og vel klædd, hver
máltíð búin til frá grunni auk
þess sem brauðið og bakkelsið
er heimabakað. Hún er nokkurs
konar einkabílstjóri sem keyrir
börnin í og úr skóla og tómstund-
astarfi auk þess að vera í sjálf-
boðastarfi sem foreldrafulltrúi í
skólanum og tómstundunum. í
nútímasamfélagi er allt hugsað út
frá peningum og því kominn tími
til að skoða hvað ofurmamman
er í raun að spara samfélaginu og
hvað hún ætti að fá í laun.
Ef laun ofurmömmunnar eru skoð-
uð þá vaknar upp sú spurning hvern-
ig hægt sé að reikna það út þar sem
enginn sérstakur mömmutaxti er til.
Ofurmamman sinnir í raun ýmsum
störfum svo sem bakstri, þrifum,
barnapössun, akstur svo eitthvað sé
talið til. Bandaríska fyrirtækið, Edel-
man Financial Services, lagði saman
árslaun verkamanna í 17 iðngreinum
og fékk út árslaun annasamrar móð-
ur sem voru rúmlega 43 milljónir.
Umönnunarstörf vanmetin
Stefán Úlfarsson, hagfræðingur hjá
Alþýðusambandi Islands segir þessa
tölu vera mjög athyglisverða. „Ég
hef ekki forsendur til að segja hvort
talan sé of há eða of lág en það sem
slær mig fyrst er að þetta sýnir að
þessi umönnunarstörf kvenna á
heimilum hafa verið vanmetin. Jafn-
vel þó þessi störf sem unnin voru á
heimilinu séu komin út á markað-
inn þá eru þau ennþá vanmetin og
við erum að borga skammarlega lág
laun fyrir þessi störf.“
Ekki hagstætt að kon-
urvinni heima
Stefán segir að það sé þó ekki hag-
stætt að konur vinni heima, að
minnsta kosti ekki séð út frá hag-
fræðinni. „Það er hægt að hugsa
þetta út frá tveimur forsendum.
Það er hægt að hugsa þetta kalt út
frá hagfræðinni og þá myndi mað-
ur mæla með að konur nytu sömu
möguleika og karlar í að mennta
sig, vinna sig upp metorðastigann
og komast í störf úti á vinnumark-
aði þar sem hæfileikar þeirra liggja.
En svo er hægt að hugsa þetta út frá
gamaldags, rómantískum forsend-
um og segja að það sé fjölskyldunni
til góðs ef það er húsmóðir á heimil-
inu sem heldur öllu saman.“
Hærri laun
Stefán segir það augljóst að verð-
mæti liggi í umönnunarstörfum.
,Það sem slær mig er að þessi tala
sýnir það hversu mikil verðmæti
liggja í þessum hefðbundnu kvenna-
störfum, hvort sem þau eru unnin
innan veggja heimilisins eða annars
staðar. Ef ég ætti að draga einhverj-
ar ályktanir af þessu þá væru það
þær að það væri rétt að borga hærri
laun fyrir þessi umönnunarstörf.“
svarihvit@vbl.is
Heilsunudd þegar þér hentar
Með fullkominni tölvustyringu og hátækni nuddbúnaði framkallar Rongtai
RT-H09 nuddstóllinn áhrifaríkt nudd frá toppi til táar. Með því að styðja á hnapp
á meðfylgjandi fjarstýringu velur þú það nuddkerfi sem þér hentar hverju sinni.
Stóllinn nuddar þig líkt og fagmaður þegar þú vilt og þar sem þú vilt. Rongtai
nuddstóllinn er hannaður með þig og þínar þarfir í huga. Við bjóðum þér að
koma í nudd í verslun okkar að Skúlagötu 63 til að sannfærast.
www.ecc.is
ECC 5kúlagötu 63
Sími 5111001
Opið 10-18
Stelpur og
smokkar
Ég tók þátt í því að dreifa smokkum
til vegfarenda á Hinsegin dögum í
haust, ásamt nokkrum samstarfs-
mönnum mínum á SkjáEinum. Við
sátum á bílpalli á Laugaveginum og
buðum þeim sem vildu upp á ókeyp-
is smokkapakka. Tilgangurinn var
vitanlega að minna á að það borgar
sig að setja öryggið á oddinn og op-
in umræða um smokkinn borgar
sig. Alnæmi, klamidía, ótímabærar
þunganir... þarf að segja meira til að
mæla með smokknum?
Það sem vakti athygli mína var
að ungar stúlkur voru duglegastar
að rétta fram hendurnar og þiggja
smokkana. Þær voru alveg ófeimnar
við að bera sig eftir verjunum.
Tímarnir hafa breyst frá því að
ég var unglingur. Ég man svo vel
eftir því þegar ég sá stelpu í fyrsta
skipti með smokk i fórum sínum. Á
rúntinum niðrí bæ, í þá daga þegar
unglingar gengu hring eftir hring í
kringum Hallærisplanið, hitti ég 14-
15 ára stelpu sem sýndi mér smokk
sem hún var með á sér. Hún sagðist
búa í úthverfi og ef hún fengi ekki
far heim með einhverjum um nótt-
ina þá þyrfti hún að verða sér úti
um gistingu. Og þá var eins gott að
vera með smokk á sér sagði hún. Ég
gleymi aldrei þessari stelpu. Það er
eiginlega allt hræðilegt við þetta
nema það hvað hún var ófeimin við
smokkinn - hún var á undan sinni
samtíð að ganga með smokka á sér.
En hvers vegna fór hún ekki bara
fyrr heim með strætó? Hvað var
hún eiginlega að flýja heima hjá sér?
Og hvers vegna reiknaði hún með
að þurfa að „borga“ fyrir næturgist-
ingu með þessum hætti? Við þessu
fást ekki svör og ég hef aldrei séð
hana aftur.
I Kenýa hitti ég unglinga sem hafa
misst foreldra sína úr alnæmi. Þeir
eiga ekki fyrir smokkum og læra
það í skólanum að besta vörnin gegn
alnæmi sé að stunda skírlífi fram yf-
ir giftingu. Það væri óskandi að ung-
lingarnir fengju að ráða þessu sjálfir,
hefðu aðgang að smokkum eða gætu
varðveitt meydóminn fram yfir gift-
ingu. En því er ekki þannig farið. Á
veggjum í fátækrahverfi í Nairobi
höfðu borgaryfirvöld séð ástæðu
til að láta mála skilaboð á veggina,
sem sýndu á myndrænan hátt að
kynferðisofbeldi er bannað og að
nauðgun er glæpur. (Ekki var hægt
að skrifa skilaboðin vegna ólæsis í fá-
tækrahverfinu). íbúar þarna sögðu
mér að árásir og kynferðisglæpir
væru daglegt brauð og unglingar í
hættu. Þau geta ekki varið sig.
Og ég hugsaði með mér hvað við
höfum það gott á íslandi. Hér er
smokkum dreift ókeypis í skrúð-
göngu sem fagnar margbreytileika
mannlifsins. Það er gott að ung-
lingar eru ekki lengur feimnir við
smokkinn. En ég vona samt að ung-
lingsstélpur í dag fari frekar fyrr
heim með strætó en að verja sig með
sama hætti og stelpan sem ég hitti á
Hallærisplaninu forðum daga. ■
Smart í skólann
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Ný sending
Leðurjakkar
Litir: svárt - brúnt
hvítt - rautt
áður 14.990
nú 11.990