blaðið - 03.10.2005, Síða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 blaöiö
Farþegi kveik-
ir í strætó
Farþegi þéttsetins strætisvagns
í brasUísku borginni Rio de Ja-
neiro missti stjórn á skapi sínu
á dögunum og kveikti í bílnum
eftir að hann bilaði og bílstjór-
inn skipaði öllum að fara út.
Bílstjórinn sagði farþegum
að vagninn kæmist ekki lengra
og skipaði þeim að fara út
eftir að hann bilaði í fátækra-
hverfinu Campo Grande. Einn
farþeganna kom aftur með
áfengisflösku, hellti úr henni
í vagninum og kveikti síðan
í. Maður sem vinnur við að
innheimta fargjald var ennþá
i strætisvagninum og rétt náði
að stökkva út úr honum áður
en eldurinn læsti sig um hann.
Auk vagnsins skemmdust ná-
lægar síma- og rafmagnslínur.
Brennuvargurinn flúði af vett-
vangi og er hans nú leitað. íbú-
ar fátækrahverfa Rio leggja oft
eld að strætisvögnum til að mót-
mæla morðum lögreglu á sak-
lausu fólki þegar hún ræðst til
atlögu gegn eiturlyijagengjum.
Annað var uppi á teningnum
í þessu máli að mati lögreglu.
„Þetta var bara öskureiður og
taugaveiklaður farþegi,“ sagði
lögregluforingi í borginni.
Slökkviliðs-
menn í SS-
búningum
Tveir þýskir slökkviliðsmenn
eru í vandræðum eftir að hafa
gengið um í einkennisbúningi
SS-sveita nasista. Slökkviliðs-
mennirnir fundu búningana
þegar þeir voru að sinna örygg-
iseftirliti í gömlum bóndabæ í
Bæjaralandi. Þeir klæddust flík-
unum og gengu siðan fram og
aftur í þeim fyrir framan hóp
af skátum sem voru í tjaldúti-
legu í nágrenninu. Mennirnir
viðurkenndu fyrir saksóknara
að hafa klæðst búningunum
en báru því við að þeir hefðu
aðeins gert það af forvitni og til
gamans. Ólöglegt er að bera eða
eiga nasistatákn í Þýskalandi.
Utanríkisráðherrar ESB funda vegna Tyrklandsmálsins
Reynt að höggva á hnútinn
Þjóöernissinnar í Tyrklandi mótmæltu fyrirhuguðum viðræðum um aðild landsins að
Evrópusambandinu í höfuðborginni Ankara í gær.
Utanríkisráðherrar aðildar- veita Tyrkjum ekki fulla aðild að
ríkja Evrópusambandsins sambandinu heldur einhvers konar
hittust á neyðarfundi í gær- aukaaðild.
kvöldi til að reyna að höggva á þann Jack Straw, utanríkisráðherra
hnút sem myndast hefur vegna Breta sem hafa lengi verið fylgjandi
aðildarviðræðna sambandsins við inngöngu Tyrkja í Evrópusamband-
Tyrki sem hefjast eiga í dag. Meg- ið, sagðist í gær hafa áhyggjur afþví
ináherslan á fundinum var lögð á að hin trúarlega og pólitíska gjá sem
kröfur Austurríkismanna um að hafi myndast milli kristinna ríkja
og múslímskra gæti breikkað enn
frekar í kjölfar málsins. Recep Erdog-
an, forsætisráðherra Tyrklands, tók
í sama streng og varaði Evrópusam-
bandið við þvi að verða að „klúbbi
kristinna“ með því að neita að hefja
viðræður. „Annað hvort ákveður
Evrópusambandið að vera virkur
játttakandi í heimsmálunum eða
jað lætur sér nægja að vera klúbbur
cristinna," sagði Erdogan.
Skiptar skoðanir um aðild Tyrkja
Skiptar skoðanir eru um hugsan-
lega aðild Tyrkja að Evrópusam-
bandinu innan landa sambandsins.
Meðal annars hafði málið áhrif á
að drögum að stjórnarskrá Evrópu-
sambandsins var hafnað í þjóðar-
atkvæðagreiðslu í Frakklandi og
í Hollandi fyrr á árinu en margir
kjósenda sögðust hafa hafnað drög-
unum vegna mögulegrar aðildar
Tyrkja. Einnig eru skiptar skoðanir
um ágæti Evrópusambandsaðildar
meðal Tyrkja sjálfra og í gær stóðu
andstæðingar hennar að mótmæl-
um á götum Ankara, höfuðborgar
Tyrklands. ■
Skriður áfriðarferlið:
Sharon og Abbas funda
Ariel Sharon, forsætisráðherra ísra-
els, og Mahmoud Abbas, forseti Pal-
estínu, samþykktu í gær að hittast
bráðlega og reyna að bæta samstarf
á milli Israelsmanna og Palestínu-
manna. Vonir eru bundnar við að
aftur komist skriður á friðarferlið
eftir öldu ofbeldis síðan ísraels-
menn fóru af Gasasvæðinu í síðasta
mánuði. ísraelskir og palestínskir
embættismenn segja að engar tíma-
setningar hafi verið ákveðnar fyrir
fund. Ráðgert hafði verið að hafa
fund í gær en hætt var við hann
vegna ónógs undirbúnings og vegna
ástandsins sem ríkti á Gasasvæðinu
í liðinni viku.Þetta var fyrsta símtal
leiðtoganna í fimm vikur en Abbas
hringdi í Sharon til að óska honum
gleðilegs nýs árs sem hefst sam-
kvæmt tímatali gyðinga í dag. Shar-
on bar Abbas einnig bestu kveðjur
í tilefni Ramadan, föstumánaðar
múslima, sem hefst í vikunni. ■
Innanhússkýrsla um Sellafield
Víða pottur brotinn í öryggismálum
Gefið er í skyn að víða sé pottur
brotinn í öryggismálum kjarnorku-
vinnslustöðvarinnar í Sellafield sam-
kvæmt innanhússkýrslu sem sunnu-
dagsútgáfa breska dagblaðsins The
Independent hefur komist yfir.
Samkvæmt skýrslunni er kjarnorku-
vinnslan, sem fram að þessu hefur
verið talin ein hin best rekna í land-
inu, sögð vera „hugsanlega hættuleg"
og „að erfitt sé að starfrækja hana á
viðunandi hátt.“ Stjórnendur kjarn-
orkuvinnslustöðvarinnar segja aft-
ur á móti að öryggi sé forgangsmál
hjá þeim. Samkvæmt skýrslunni
neyddu stjórnvöld vinnslustöðina
til að fá franska fyrirtækið Cogema
til að aðstoða það við að taka á vand-
anum. Slæmur andi er sagður ríkja
á vinnustaðnum og starfsmenn hafa
jafnvel unnið skemmdarverk á bún-
aði stöðvarinnar. Meðal annars hafa
vírar í vélum verið skornir i sundur,
trommlur fylltar af geislavirkum
vökva og ekki tilkynnt á viðunandi
hátt um bilanir í öryggísbúnaði.
Tveimur
landgöngu-
liðum rænt
A1 Kaída hryðjuverkasamtökin
gáfú í gær bandarískum heryfir-
völdum í írak sólarhringsfrest
til að sleppa tveimur kvenföng-
um eftir að þau rændu tveimur
bandarískum landgönguliðum
í vesturhluta íraks. Verði Banda-
ríkjamenn ekki við kröfunum
„þurfa þau ekki að hafa fyrir því
að leita að börnunum sínum,“
segir í yfirlýsingu á vefsíðu
sem samtökin nota gjarnan
til að koma skilaboðum á
framfæri. Steve Boylan, ofursti
og talsmaður herafla Banda-
ríkjamanna í Irak, sagðist ekki
hafa heyrt af neinum mann-
ránum og taldi að þarna væri
um óstaðfestar sögusagnir að
ræða. Yfirlýsingin var undir-
rituð með nafni sem yfirleitt
fylgir opinberum yfirlýsingum
samtakanna en eklci hefúr
verið hægt að staðfesta áreið-
anleika hennar. Samtökin hafa
oft rænt og drepið embættis-
menn og hermenn í landinu.
Uppreisnar-
menn í
Alsír hafna
sáttmála
Baráttusamtök Salafista, stærsta
hreyfing uppreisnarmanna í
Alsír, hafa hafnað friðarsáttmál-
anum sem samþykktur var í
þjóðaratkvæðagreiðslu á föstu-
dag og lýst því yfir að þau muni
halda heilögu stríði áfram.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá samtökunum sem birt var á
internetinu. „Atkvæðagreiðslan
er tímasóun. Alsír þarf ekki á
sáttmála um frið og þjóðarein-
ingu að halda, heldur sáttmála
um íslam,“ segir í tilkynning-
unni sem leiðtogi samtakanna
undirritar. Þetta er í fyrsta sinn
sem samtökin lýsa skoðun
sinni á hinu mjög umdeilda
máli en ekki hefur verið gengið
úr skugga um hvort tilkynn-
ingin sé ósvikin. Starfsemi
samtakanna er bönnuð í land-
inu en þau tengjast A1 Kaída
samtökum Osama Bin Laden.
I atkvæðagreiðslunni sam-
þykktu Alsírbúar tilboð stjórn-
valda um að bjóða uppreisnar-
mönnum sem mundu berjast
fyrir íslömsk ríki upp á sakar-
uppgjöf að hluta. Vildu stjórn-
völd með þessu binda enda á
borgarastríð sem geisað hefur
í landinu í meira en áratug og
kostað meira en 150.000 manns
lífið, aðallega óbreytta borgara.
Útboð >
Útboð Utboð
Útboð á bifreiðum og ýmsu öðru frá Varnarliðinu verður dagana 29.-3. október. Bifreiðarnar verða til sýnis á plani Bílasölunnar Hrauns
við Reykjanesbraut gegnt álverinu. Hægt er að skila inn tilboðum á vefslóðinni www.geymslusvaedid.is
Geymstusvæðið ehf
Nánari upplýsingar á heimaslðll okkar www.geymslusvaedid.is og í síma 565 4599