blaðið - 03.10.2005, Blaðsíða 19
blaðið MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005
VIDTAL 119
99.....................................................
„Halldór hefur hins vegar aldrei verið maður fjöldans. Hann hefur aldrei
átt auðvelt með að þola andstöðu og aðrar skoðanir en sínar eigin. Ég er
hræddur um að hann safni í kringum sig ofmörgum já-mönnum."
miklu máli. Davíð Oddsson hefur
náð til fólksins enda hefur hann yfir-
leitt verið skemmtilegur á að heyra
og opinskár, þótt hann hafi stund-
um verið einsýnn og sett undir sig
hausinn.“
En hvað um Halldór?
„Ef þú átt við hvort Halldór hafi þessa
sömu útgeislun þá held ég að hann
hafi hana ekki. Því miður.“
Þú naust alþýðuhylli á þinni tíð.
Gerðir þú eitthvað sérstakt til að ná
tilfólks?
„Ég vil ekki segja að ég hafi gert neitt
sérstakt til þess, en ég hef alltaf haft
gaman af að ræða við fólk. í forsæt-
isráðherratíð minni var ég með
viðtalstíma og þangað kom fólk og
talaði um sín mál. Eg lærði mikið af
þeim fundum. Ég held að það sé um
að gera að vera bara maður sjálfur,
vera hreinskiptinn. Allir gera mistök
og ég sá aldrei ástæðu til að neita því
ef mér urðu á mistök. Þegar ég var
innan um fólk fannst mér alltaf að
ég væri einn af þeim og mér finnst
það enn í dag. Enn vinda margir sér
að mér til að ræða um daginn og veg-
inn og mér finnst það þægilegt."
Græðgin er orðin drifkraftur
Hvað segirðu um gríðarlegt veldi við-
skiptablokka hér á landi?
„Ég ber vissa virðingu fyrir dugnaði
og djörfung þessa fólks. Hins vegar
er of mikið komið á of fáar hendur
í okkar litla þjóðfélagi. Ég verð að
segja það. Þegar græðgin er orðin
drifkrafturinn, leika verstu eigin-
leikar mannsins lausum hala. Menn
eru jafnvel farnir að boða að græðgi
sé nauðsynleg til að efnahagslífið
blómstri. Þetta vil ég ekki sam-
þykkja. Við þurfum að standa gegn
græðginni.
Hvað hafa menn að gera með að
borga sér í laun margar milljónir
á mánuði. Til hvers? Geturðu sagt
mér það? Þegar menn segja að þjóð-
artekjurnar hafi stóraukist, hvar
hafa þær fyrst og fremst aukist?
Stjórnmálamenn eiga ekki að lækka
skatta meðan þeir geta ekki séð fyrir
þörfum fólksins. Ég sé ekki eftir því
að borga skatta. Mér finnst það sjálf-
sagt til að bæta velferð þeirra sem
minna mega sín. Ég er með mjög
góð eftirlaun og hef ekkert að gera
við meira. Til hvers voru menn að
setja ný eftirlaunalög og stórhækka
eftirlaun sjálfs sín? Mér finnst eins
og græðgin hafi seilst inn í alla
króka og kima.
Ég lærði margt af föður mínum.
Þegar ég keypti þessa lóð hér á Arn-
arnesinu árið 1963 þá voru óseldar
fimm sjávarlóðir á tanganum. Ég fór
til pabba og bað hann um aðstoð við
að fá lán til að kaupa lóðirnar því ég
þóttist viss um að stórgræða á þeim.
„Þarftu á því að halda?" spurði hann
og bætti við: „Ég held að þú munir
hafa meiri áhyggjur og vanlíðan af
að eiga þessar fimm lóðir í nokkur
ár en sem réttlætir þann gróða sem
þú kannt að bera af því.“
Hann neitaði að hjálpa mér. Ég
hefði stórgrætt ef ég befði keypt en
ég hafði aftur á móti engar áhyggjur.
Ég er sannfærður um að faðir minn
hafði á réttu að standa. Menn eiga
ekki að seilast eftir meiru en þeir
þurfa á að halda til að sjá sér og sín-
um nánustu farborða. Þetta virðist
gleymt hjá stórum hluta þjóðarinn-
ar, því miður.“
Hvaðfinnst þér um Baugsmálið?
„Ég er fegnastur því að þurfa hvergi
að koma nálægt því máli og vil sem
minnst um það segja. Baugsmálið er
sjálfstætt mál fyrir dómstólum og
á að hafa sinn gang þar. Mér finnst
það komið út í persónulegt skítkast,
sem ég er búinn að fá mikið meira
en nóg af og auðvitað er það ótrúlegt
að persónulegur tölvupóstur, hvað
sem í honum stendur, skuli vera
kominn í fjölmiðla."
Vafasamt tjölmiðlaveldi Baugs
Davíð Oddsson hefur kvatt stjórn-
málin. Hvaðfinnstþér um hann?
„Ég get sagt margt gott um Davíð
og okkar samstarf. Eg talaði oft við
hann þegar hann var borgarstjóri og
ég forsætisráðherra og okkar sam-
skipti voru ágæt. Langstærsta afrek
Davíðs var að sameina Sjálfstæðis-
flokkinn, því sá flokkur var áður
samsafn af héraðshöfðingjum þar
sem hver höndin var upp á móti ann-
arri. Þetta gerði lífið óbærilegt fyrir
bæði Geir Hallgrímsson og Þorstein
Pálsson. Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur staðið heilshugar á bak við Davið,
allavega hefur maður ekki séð opna
bresti. Davíð setti markið strax á
einkavæðingu og honum tókst að
koma henni í gegn með góðri aðstoð
samstarfsflokka.
Davíð getur verið stoltur af því að
hafa náð öllum sínum sjónarmiðum
fram, nema í íjölmiðlamálinu. Ég
tel að íraksmálið hafi verið hans
stærstu mistök. Ég er sammála því
að það þarf að setja fjölmiðlalög en
ég taldi frumvarpið sem Davíð lét
semja mjög gallað. Nýtt frumvarp
þarf að koma fram. Ég tel að hið
mikla fjölmiðlaveldi Baugsmanna
sé mjög vafasamt og ég fagna því
að aðrir fjölmiðlar skuli ennþá vera
til. Hvernig eru Fréttablaðið og aðrir
miðlar Baugs fjárhagslega staddir?
Spyr enginn að því? Er engin þörf
að spyrja að því? Eru þeir kostaðir
af öðru fé sem Baugur fær frá sínum
verslunum og hagnaði erlendis og
innanlands? Ég er enginn andstæð-
ingur Baugs en mér finnst Baugs-
veldið orðið hættulega stórt.“
Þú ert mikill náttúruverndarmað-
ur. Ertu uggandi yfir virkjanafram-
kvæmdum ríkisstjórnarinnar?
„Ríkisstjórnina vantar hugsjón og
stefnu á sviði umhverfismála. Mér
líst ekki á álvæðingu landsins. Við
verðum að gæta okkar á því að vera
ekki of háðir einni atvinnugrein. Ég
er einlægur náttúruverndarsinni
og sé hættumerkin mikil og mörg.
Við erum að spilla umhverfi okkar
miklu meira en við gerum okkur
grein fyrir og stefnum í mikla erfið-
leika. Erfiðleikarnir eru ekki einung-
is í umhverfismálum heldur einnig
í efnahagsmálum. Við fögnum verð-
bólguhjöðnun en förum of hratt í
hlutina og óvarlega. Á minni pólit-
ísku tið var sagt að það væri alvar-
legt þegar skuldir einstaklingsins
væru orðnar jafnháar ráðstöfunar-
tekjum. Nú eru skuldirnar tvöfaldar.
Getur þetta gengið? Hvað gerist ef
ein stoðin brestur? Við gætum ekki
að okkur. Vonandi verður engin koll-
steypa.“
Nú ertþú orðinn 77 ára,finnurðu fyr-
ir aldrinum?
„Ég vinn mikið líkamlega vinnu,
stunda smíðar og skógrækt, spila
golf og syndi, hef samband við
margt fólk og sit í nokkrum stjórn-
um sem sinna umhverfis-, mannúð-
ar- og hugsjónastörfum. Ég finn að
ég þreytist meir en áður á löngum
ferðalögum. Mér líður best þegar
ég er uppi í sumarbústað, ekki síst
með eiginkonu minni og börnunum
og hef nóg að gera. Vakna klukkan
átta, smíða eða planta trjám, fer í
heita pottinn klukkan fimm og fæ
mér einn lítinn „single malt“ skota
af bestu gæðum. Það er yndislegt.“
kolbrun@vbl.is
LOÐUR KYNNIR FRABÆRA ÞJONUSTU I NYRRI
KYNSLÓÐ BÍLAÞVOTTASTÖÐVA.
- Betri meðferð á bílnum með mjúkum og fleyglaga burstaendum.
- Bónið endist lengur og bíllinn verður áberandi hreinn og glansandi með
úrvals hreinsiefnum og sápum.
- Alvöru bílaþvottastöð sem ræður við flestar stærðir bíla.
- Nánast engin bið eftir þvotti, afkastagetan er allt upp í 60 bílar á
klukkustund sem er mun meira en hjá hefðbundnum stöðvum.
Opið virka daga kl. 8-19 og um helgar kl. 10-18
Fullkomnasta þvottastöðin á Islandi
ÉÉ|H|k^ er í Bæjarlind 2, kjallara
Tökumbílaá
35x12,5 tommu
dekkjum
SVAMPBURSTAR
BYLTINGARKENND NÝJUNG
í BÍLAÞVOTTI Á ÍSLANDI
\J S/ j / • / ^ Ik-v / J Gældu við bílinn með léttum\ y
C> og mjúkum svampburstum / í
^ aaaahhhhhhl \\'