blaðið - 03.10.2005, Page 10
10 I ERLEBfDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 blaöiö
Reykstrókur stígur um 50 kílómetra
í loft upp úr stærsta eldfjalli El Salva-
dor í gær.
Eldgos í El
Salvador
Að minnsta kosti tveir hafa
farist og tveggja til viðbótar
er saknað eftir eldgos sem
braust út í Ilamatepec, stærsta
eldíjalli E1 Salvador, á laugar-
dag. Þúsundir íbúa í nágrenni
eldfjallsins neyddust til að
yfirgefa heimili sín en að
minnsta kosti 10.000 manns
búa á svæðinu. Jörð nötraði og
skalf þegar eldgosið hófst og
logandi grjóthnullungar þeytt-
ust í loffið. Svartur skýstrókur
náði um 15 kílómetra upp í loft
og öskufall eyðilagði kaffiupp-
skeru og olli skemmdum á
trjágróðri. Ilamatepec er hæsti
tindur E1 Salvador, 2381 meter
yfir sjávarmáli, og er um 65
kílómetra vestur af höfuðborg-
inni San Salvador. Eldíjallið
hefur ekki gosið í rúma öld.
Um fjögurra kílómetra svæði
umhverfis eldfjallið var úrskurð-
að hættusvæði af innanríkis-
ráðuneyti landsins aukþess
sem hætta var talin stafa að ná-
lægum þorpum. Antonio Saca,
forseti É1 SÉilvador, sagði að gos-
ið væri meðalstórt og bað lands-
menn um að halda ró sinni. ■
Arásirnar taldar
tengjast A1 Kaída
Menn tengdir Al Kaída samtökunum eru grunaðir um að hafa skipulagt árásirnar á Balí
sem urðu 26 að bana. Svipuðum aðferðum beitt og ífyrri árásum. Gœti haft alvarlegar af-
leiðingarfyrirferðamannaiðnaðinn ogfjárfestingar útlendinga í landinu.
Tveir menn sem tengdir eru A1
Kaída samtökunum eru grunaðir
um að hafa skipulagt sjálfsmorð-
sprengjuárásirnar á Balí sem
urðu að minnsta kosti 26 að bana
og særðu meira en 100 manns.
Tilræðismenn sprengdu sig í loft
upp nánast samtímis á þremur
þéttsetnum veitingastöðum á
laugardagskvöld. Ekki er talið að
skipuleggjendurnir hafi sjálfir
verið meðal tilræðismannanna en
það á eftir að bera kennsl á þá.
Svipaðar aðferðir og í fyrri árásum
Mennirnir tveir sem tilheyra
Jemaah Islamiyah hópnum eru einn-
ig sakaðir um að hafa lagt á ráðin
um mannskæðar árásir á nætur-
klúbba á eyjunni árið 2002 sem og
tvær aðrar árásir 2003 og 2004. „Að-
ferðirnar eru mjög svipaðar þeim
sem notaðar voru í fyrri sprenging-
um, meðal annars voru bakpokar
notaðir en leifar þeirra fundust á
vettvangi,“ sagði Ansyaad Mbai, yfir-
maður aðgerða gegn hryðjuverkum
hjá öryggismálaráðuneytinu. Susilo
Bambang Yudhoyono, forseti lands-
ins, vildi þó ekki nefna neina söku-
dólga í gær. „Á þessari stundu ætti
ég ekki að benda á hvaða hópar bera
ábyrgð á verknaðinum en það geta
Ættingjar fórnarlamba hryðjuverkaárásarinnar á Balí syrgja fyrir utan líkhús á eyjunni í gær.
að sjálfsögðu ýmsar ástæður legið
að baki,“ sagði hann.
Viðbúnaður var aukinn í Jakörtu,
höfuðborg Indónesíu, í kjölfar árás-
anna á Balí. Um 18.000 lögregluþjón-
ar stóðu vörð við mikilvæga staði í
borginni svo sem við erlend sendi-
ráð og á vinsælum opnum svæðum.
Mannskæðar bílasprengjur sprungu
við glæsihótel í borginni árið 2003
og við sendiráð Ástralíu árið 2004.
Fælir ferðamenn frá landinu
Fjölmargir erlendir ferðamenn yfir-
gáfu Balí eftir sprengingarnar. Talið
er að ferðamannaiðnaður á svæðinu
verði fyrir áfalli í kjölfar sprenging-
anna líkt og gerðist eftir árásirnar
2002. Þá má ennfremur búast við
því að hryðjuverkin fæli erlenda fjár-
festa frá landinu.
Árásirnar áttu sér stað mánuði
eftir að Yudhoyono, forseti lands-
ins, varaði við hugsanlegum hryðju-
verkaárásum. Forsetinn heimsótti
Balí í gær til að sjá afleiðingar tilræð-
anna með eigin augum. Hann for-
dæmdi árásirnar og hét því að leita
uppi tilræðismenn og koma lögum
yfir þá. „Það eru mikil vonbrigði að
þetta skuli hafa gerst aftur á Balí og
dregur í efa starf leyniþjónustunn-
ar,“ sagði Agung Laksono, forseti
þingsins. Ken Conboy, sérfræðing-
ur í öryggismálum í höfuðborginni
Jakörtu, sagði aftur á móti að erfitt
væri að koma í veg fyrir árásir sem
þessar. ■
Ibúar Dresden
ganga til kosninga
Gerð RF-270
HxBxD=145x60x60 cm
170 Itr.kælir
61 Itr. frystir
Hvítur kr. 44.900
Stál kr. 63.900
Gerð RF-310
HxBxD=173x60x60 cm 1
193 Itr. kælir i
92 Itr. frystir ,
Hvítur kr. 54.900 1
Stálkr. 69.900 t
Gerð RF-315
HxBxD=173x60x60 cm
229 Itr. kælir
61 Itr. frystir
Gerð RF-360
HxBxD=191x60x60cm
225 Itr. kælir
90 Itr. frystir
Hvítur krT59.900
Álgrár kr. 65.900
Stáljir. 74.900
m
Gerð RF-390
HxBxD=200x60x60 cm
253 Itr. kælir
90 Itr. frystir
Hvíturkr. 64.900
Stál kr. 78.900
íbúar borgarinnar Dresden í Þýska-
landi gengu til þingkosninga í gær
en kosningum var frestað um tvær
vikur eftir andlát eins frambjóð-
anda. Hinir 220.000 borgarbúar
sem eru á kjörskrá skera því end-
anlega úr um hvernig þingsætum
verður deilt á þýska þinginu. Úrslit-
in í Dresden hafa þó ekki áhrif á nið-
urstöðu kosninganna á landsvísu.
Kristilegir demókratar fengu aðeins
þremur þingsætum meira en sósí-
aldemókratar í þingkosningunum
fyrir tveimur vikum. Þeir munu þó
ekki geta tapað nema í mesta lagi
einu sæti í kosningunum í Dresden
vegna þess hve flókið þýska kosn-
ingakerfið er. ■
Angela Merkel, kanslaraefni kristilegra
demókrata. Kosningarnar í Dresden
munu ekki hafa afgerandi áhrif á heildar-
niðurstöðu þýsku kosninganna.
JiijxdjJíJj1
Snaigé kæliskáparnir eru sparneytnir (A orkuflokkur) og lágværir (38-41 dB-A).
Danfoss kælivél, hægri eða vinstri hurðaropnun, glerhillur, flöskuhilla.
2ja ára ábyrgð og fullkomin varahluta- og viðgerðarþjónusta.
Snaigé kæli- og frystiskáparnir eru
sparneytnir ("A" orkuflokkur) og
lágværir (38-41 dB-A).
Danfoss sér um jökulkælinguna.
Sparneytinn,
svo af ber
Gerð C-140
I HxBxD=85x56x60 cm
i 127 Itr. kælir
1 Hvíturkr. 26.900
Gerð R-130
HxBxD=85x56x60 cm
81 Itr. kælir
17 Itr.frystir
Hvíturkr. 29.900
Hvítur kr. 31.900
Hvfturkr. 34.900
Gerð F-245
HxBxD=145x60x60 cm 1
205 Itr. frystir i
“ I
/
Hvlturkr. 42.900
Snaigé
KÆU- 0G FRYSTISKÁPAR
Fríform
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
Opið:
Mánudaga - föstudaga kl. 9-18
Laugardaga 10-15