blaðið - 03.10.2005, Qupperneq 30
30 I ÍPRÓTTM
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 blaöiö
Allan og Laufey best
Allan Borgvardt og Laufey Ólafsdóttir voru valin bestu leikmennirnir á lokahófi KSÍ
Glæsilegt lokahóf Knattspyrnu-
sambands íslands var haldið
á Broadway, Hótel íslandi á
laugardaginn. Þar voru verðlaun-
aðir þeir leikmenn, þjálfarar og
dómarar sem þóttu skara fram úr
á nýliðu sumri í Landsbankadeild
karla og kvenna.
Leikmenn efstu deildar karla hafa
kosið besta og efnilegasta leikmann
hvers árs síðan 1984 þegar markvörð-
urinn Bjarni Sigurðsson var kosinn
bestur og Guðni Bergsson efnileg-
astur. í efstu deild kvenna fór kosn-
ingin fyrst fram árið 1986. Kristín
Arnþórsdóttir úr Val var þá kosin
besti leikmaðurinn og Halldóra
Gylfadóttir úr ÍA var kosin efnileg-
ust. í ár voru Allan Borgvardt, sókn-
armaður FH, og Laufey Ólafsdóttir,
miðjumaður Vals, valin bestu leik-
mennirnir en Allan gekk reyndar til
liðs við norska liðið Viking áður en
mótinu lauk. Allan skoraði þrettán
mörk í þeim fimmtán leikjum sem
hann spilaði með íslandsmeisturum
FH í Landsbankadeildinni. Þetta er
í annað sinn sem hann er valinn
bestur en hann fékk einnig þessa
nafnbót árið 2003. Laufey skoraði
alls tólf mörk í þrettán leikjum með
Val í Landsbankadeild kvenna en
Valsstúlkur lentu í öðru sæti deildar-
innar. Laufey var einnig valinn besti
leikmaðurinn í fyrra.
Hörður og Gréta efnilegust
Hörður Sveinsson, framherji Kefl-
víkinga, og Gréta Mjöll Samúelsdótt-
ir, framherji Breiðabliks, voru valin
efnilegust í Landsbankadeildunum
í ár. Hörður skoraði níu mörk í sautj-
án leikjum fyrir Keflvíkinga en hann
er einnig fastamaður í U-21 árs lands-
liði okkar Islendinga. Gréta skoraði
ellefu mörk í þrettán leikjum með
Breiðabliki í sumar en hún gat ekki
tekið við verðlaunum sínum þar
sem hún er í Bosníu/Herzegóvínu
þar sem U-19 ára landslið Islendinga
er að leika í undankeppni EM. Gréta
fór á kostum ytra en hún skoraði sjö
mörk í þremur leikjum og átti stór-
an þátt í því að ísland komst áfram
úr riðlakeppninni.
Lið ársins
Fimm FH-ingar, fjórir Valsmenn og
tveir Fylkismenn skipa lið ársins í
Landsbankadeild karla í ár auk þess
sem þjálfari ársins var valinn Ólaf-
ur Jóhannesson, þjálfari FH, þriðja
árið í röð. Lið ársins er skipað þeim
Daða Lárussyni (FH), Guðmundi
Sævarssyni (FH), Auðuni Helgasyni
(FH), Grétari Sigfinni Sigurðssyni
(Val), Bjarna Ólafi Eiríkssyni (Val),
Matthíasi Guðmundssyni (Val),
Baldri Aðalsteinssyni (Val), Viktori
Bjarka Arnarsyni (Fylki), Helga Val
Daníelssyni (Fylki), Tryggva Guð-
mundssyni (FH) og Allan Borg-
vardt (FH). Sex Blikastúlkur eru
í liði ársins í kvennaboltanum og
auk þess þrjár frá Val, ein frá KR
og ein frá IBV. Þjálfari ársins er
Úlfar Hinriksson þjálfari Breiða-
bliks sem varð Islands-og bikar-
meistari. Lið ársins er skipað þeim
Þóru B. Helgadóttur (Breiðabliki),
Ástu Árnadóttur (Val), Bryndísi
Bjarnadóttur (Breiðabliki), Guð-
rúnu Sóeyju Gunnarsdóttur (KR),
Ólínu Guðbjörgu Viðarsdóttur
(Breiðabliki), Eddu Garðarsdóttur
(Breiðabliki), Ernu B. Sigurðardótt-
ur (Breiðabíiki), Hólmfríði Magnús-
dóttur (ÍBV), Laufeyju Ólafsdóttur
(Val), Margréti Láru Viðarsdóttur
(Val) og Grétu Mjöll Samúelsdóttur
(Breiðabliki).
Mafían best
Stuðningsmenn FH voru valdir
stuðningsmenn ársins 2005 í Lands-
bankadeild karla. Mafían, eins og
stuðningsmennirnir eru yfirleitt
kallaðir, hlaut verðlaunin annað ár-
ið í röð en verðlaunin hafa aðeins
verið veitt i tvö ár. Þeir hlutu einn-
ig verðlaun fyrir að vera stuðnings-
menn 7.-12. umferðar og 13.-18. í sum-
ar en stuðningsmenn Keflavíkur
voru stuðningsmenn 1.-6. umferðar.
Auk frábærs stuðnings í allt sumar
fengu þeir mikla athygli fyrir að
vera fyrstir hér á landi til að útbúa
svokallaða mósaíkmynd með pappa-
spjöldum fyrir leik liðsins gegn Val
þar sem FH tryggði sér íslandsmeist-
aratitilinn.
Kristinn besti dómarinn
Kristinn Jakobsson var valinn besti
dómarinn í Landsbankadeildinni á
lokahófi KSÍ á Broadway. Kristinn,
sem er einn reyndasti dómari okkar
íslendinga, fékk einnig þessi verð-
laun árið 2003. Kristinn var valinn
besti dómari 1.-6. umferðar og 7.-12.
umferðar í Landsbankadeildinni í
sumar af fjölmiðlamönnum og því
bjuggust nokkuð margir við því að
hann hreppti verðlaunin sem varð
og raunin.
Verðlaunahafar:
Bestur: Allan Borgvardt
Best: Laufey Ólafsdóttir
Efnilegastur:
Hörður Sveinsson
Efnilegust:
Gréta Samúelsdóttir
Dómari: Kristinn Jakobsson
Stuðningsmenn: FH
Chelsea burstaði
Liverpool á Anfield
Chelsea-menn sýndu mátt sinn
og megin þegar þeir burstuðu
Liverpool á Anfield Road í gær. Evr-
ópumeistararnir fengu á sig fjögur
mörk gegn Englandsmeisturunum
sem hafa nú unnið alla átta leiki
sína í deildinni, skorað i þeim átj-
án mörk, fengið á sig tvö og hafa
níu stiga forystu á Charlton sem er
í öðru sæti. Djimi Traore var söku-
dólgurinn í fyrsta markinu þegar
hann missti boltann klaufalega og
straujaði svo Didier Drogba inni
»• í vítateignum og Frank Lampard
skoraði úr augljósri vitaspyrnunni.
Lampard fékk gult spjald fyrir fagn-
aðarlæti sín sem hann beindi að
stuðningsmönnum Liverpool eins
og meðfylgjandi mynd sýnir. Ste-
ven Gerrard gaf heimamönnum von
þegar hann jafnaði metin eftir horn-
spyrnu en vendipunkturinn í leikn-
um var mark Damien Duff rétt fyrir
hálfleikinn eftir að Didier Drogba
hafði leikið á Sami Hyypia og hrein-
lega skilið hann eftir eins og skóla-
strák. Joe Cole skoraði svo þriðja
markið eftir góða rispu frá Drogba
sem skaut misheppnuðu skoti sem
Cole setti auðveldlega yfir línuna.
Vörn Liverpool gleymdi sér svo al-
gjörlega á lokamínútunum þegar
Drogba fékk langt innkast upp völl-
inn, sendi fyrir þar sem Arjen Rob-
ben framlengdi boltann á Geremi
sem skoraði og innsiglaði glæstan
sigur Chelsea. Eiður Smári Guðjohn-
sen var ekki í leikmannahópi Chels-
ea að þessu sinni en hann er að jafna
sig eftir handarbrot sem hann varð
fyrir á æfingu í síðustu viku.
Við eigum skilið meiri virðingu
„Við eigum skilið meiri virðingu en
við fáum, ekki frá Liverpool heldur
fólki almennt," sagði Jose Mourinho
stjóri Chelsea eftir leikinn. „Titil-
baráttunni er ekki lokið. Við erum
kannski með örlítið fleiri stig en
önnur lið en þetta er samt ekki bú-
ið. Liðið mitt sýndi mikinn persónu-
leika og allt liðið spilaði frábærlega.
Didier Drogba var stórkostlegur.
Hvernig hann sýndi yfirburði sína
var magnað. Við erum núna komnir
með átta leiki, átta sigra og með sex-
tán mörk í plús í markatölu. Sumt
fólk segir að við séum leiðinlegir en
það eru bara trúðar. Það er bara ekki
rétt,“ sagði Mourinho að lokum.
Loeb varði titilinn
rrakkinn Sebastien Loeb varði
um helgina heimsmeistaratit-
il sinn í rallakstri þegar hann
náði öðru sæti í keppninni í Japan
á eftir Svíanum Marcus Grönholm.
Loeb, sem ekur fyrir Citroen, komst
á verðlaunapall í 13 af 16 keppnum
á þessu tímabili og er þegar búinn
að bæta met með því að vinna átta
keppnir á tímabilinu. Síðast vann
hann sex keppnir og bætti um betur
í ár en hann hefur hlotið 107 stig úr
keppnunum þrettán þegar enn eru
þrjár keppnir eftir. Grönholm er
í öðru sæti með 71 stig. Loeb þufti
að ná verðlaunasæti til að tryggja
sér titilinn en Norðmaðurinn Petter
Solberg á Subaru leiddi keppnina í
Japan þar til á 24. sérleið þegar hann
keyrði á grjót og þurfti að hætta
keppni. Ástralinn Chris Atkinson
endaði svo í þriðja sæti. Loeb er
annar Frakkinn til að verða heims-
meistari í rallakstri en árið 1994
varð Didier Auriol meistari. Hann
er svo fjórði maðurinn til að verja tit-
ilinn á eftir Finnunum Juha Kankk-
unen (1986/87) og Tommi Makinen
(1996/99) og ítalanum Massimo Bi-
asion (1988/89).
„Ég varð að klára þetta"
„Til að vera hreinskilinn þá var mér
alveg sama hvort ég endaði í fyrsta,
öðru eða þriðja sæti í keppninni
- ég vildi bara verða heimsmeistari,“
sagði Loeb eftir rallið. „Ég vildi ekki
blandast í titilbaráttuna við Pett-
er og Marcus því þá hefði ég orðið
ansi pirraður út í sjálfan mig ef þeir
hefðu verið á hælunum á mér og ég
hefði gert einhver mistök.“ Solberg
var mjög vonsvikinn að missa af
fyrsta sigrinum sínum síðan í Mexí-
kórallinu í mars en segir að hann
hefði hreinlega neyðst til að hætta
keppni eftir að hafa skemmt fjöðr-
unarbúnaðinn i bíl sínum: „Við gát-
um bara ekki forðast grjótið, það var
alveg í akstursstefnunni,“ sagði sárs-
vekktur Solberg. „Þetta gerðist svo
hratt og þannig var það bara. Ég er
gjörsamlega miður mín. Ég hef ekk-
ert meira um málið að segja.“
1 fi Á I 1 L1 _ ..
A0 1 F| KSLOKUIVI Knattspyrnusérfræðingarnir Willum og Gummi Torfa fara yfir mestu tilþrifin í KVÖLD KL 21 00 ásamt mistökunum sem áttu sér stað í leikjum helgarinnar.
1 11 - ■ « * • * * ■ I m f TRYGGÐU PER ASKRIFT | m-mmm mm m mm ^ 'W í SÍMA 800 7000, Á WWW.ENSKI.IS f’-lljfff Q V, EÐA í NÆSTU VERSLUN SÍMANS. B O L T 1 N N