blaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 2
2 I IWWLEWDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 blaóiö
EGLA bréfabindi frá MÚLALUNDI
fást í næstu bókaverslun
CC Helðsklrt (3 Léttskýjað @ Skýjað © Alskýjað ✓ - Rlgnlng, litilsháttar //' Rlgnlng 5 5 Súld Snjðkoma
^J Slydda JJ Snjðél
Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vin
Algarve
Dublin
Glasgow
16
22
18
09
18
19
14
16
19
19
21
10
18
23
11
18
14
08
17
24
15
14
-r *
&
//
/ //
//
/ //
//
/ //
fi 4‘
J3 6 ”
&
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands
^ Ámorgun
*
0°
','4
///
2°
Múlalundur sími 562 8500
www.muidundur.is
i
,.i eínum grænum
bjóðum heildarlausnir
í snjókeðjum
Vlðgerölr
PJónusta
/, • t3£&'
Súöavogi 6 104 Reykjavik Sfmi 577 6400
Forsetinn
sendir
samúðar-
kveðjur
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
íslands sendi í gær samúðar-
kveðjur til leiðtoga þeirra ríkja
sem verst urðu úti í jarðskjálít-
unum á laugardag. Pervez
Musharraf forseti Pakistan,
Abdul Kalam forseti Indlands
og Hamid Karzai forseti Afg-
anistan fengu samúðarskeyti
frá forsetanum þar sem hann
áréttar jafnan nauðsyn þess
að alþjóðasamfélagið komi til
hjálpar á slíkum neyðartímum
sem nú hrjá löndin. Hann vék
einnig að reynslu íslendinga
af náttúruhamförum sem
skapað hafi sterka samkennd í
hugum íslendinga og stuðl-
að að þróun hjálparstarfs. I
bréfinu til forseta Indlands
riíjaði Ólafur upp fund þeirra
s.l. sumar þar sem Indverjar
leituðu eftir því að íslendingar
myndu miðla þekkingu sinni
og tækni í þessum efnum til
Indverja. Nýlega hafa verið lögð
drög að því að sú samvinna
geti hafist á skipulegan hátt og
vonar forsetinn að hún geti í
framtíðinni dregið úr hörmung-
um íbúa og hættu á mannfalli.
íslenska út-
varps-
félagið end-
urvakið
Islenska útvarpsfélagið, sem á
sínum tíma var frumkvöðull
í frjálsri fjölmiðlun á Islandi,
hefur verið endurvakið. Þannig
hefur nafninu á fjölmiðlafyr-
irtækinu Pýrit verið breytt í
Islenska útvarpsfélagið, en
kennitalan er sú sama og var á
Pýrit áður. Útvarpsfélagið rekur
útvarpsstöðvarnar Kiss FM
89,5 og XFM 91,9. Vegna stór-
aukinna umsvifa heftir félagið
flutt aðsetur sitt að Skipholti
31. Eigendur Islenska útvarps-
félagsins eru Ár og dagur,
útgáfufélag Blaðsins og Skjár 1.
Samfylkingin:
Móti lækkun
á tekjuskatti
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
lýsti þeirri skoðun sinni á fundi
á laugardag að hætta bæri
við áformaðar skattalækkanir,
hækka fjármagnstekjuskatt og
huga í alvöru að því að taka
evruna upp sem gjaldmiðil.
Kvað hún inngöngu í Evrópu-
sambandið vel koma til greina
til þess að ná því markmiði. Þá
vildi hún lækka matarskatt um
helming, þannig að þrjú þrep
virðisaukaskatts væru í landinu.
Hér er um töluverða áherslu-
breytingu að ræða hjá Samfylk-
ingunni, en í síðustu viku vildu
þingmenn flokksins ekki kann-
ast við stefnubreytingu I þá átt.
vogi um helgina. Hann bar sigur úr býtum á sunnudeginum en þetta er í fyrsta
sinn sem hann tekur þátt í sýningu sem þessari. Á myndinni er Tristan, sem er 17
mánaöa fress, í fangi eiganda síns Sólveigar Runóifsdóttur sem var hæstánægð
meö úrslitin.
Verkfalli
afstýrt
Skrifað var undir nýjan kjara-
samning Starfsmannafélags
Akraness annarsvegar og
Launanefndar sveitarfélaga
hinsvegar um helgina. Það
þýðir að verkfalli, sem átti að
hefjast í morgun, er frestað til
miðnættis 13. október. Atkvæða-
greiðsla mun fara fram meðal
félagsmannaj starfsmannafélags-
ins á morgun og miðvikudag.
Frá Reyðarfirði. Eina árangursríka sameiningin um helgina var á Austfjörðum.
Sameiningarkosningar
Allar felldar nema ein
íbúarþeirra sveitarfélaga sem til stóð að sameina um helginafelldu
tillögur þess efnis í öllum tilvikum nema einu.
Eina sameiningin sem af verður í
þessari atrennu verður á Austfjörð-
um þar sem tillaga um að sameina
Mjóafjarðahrepp, Fjarðabyggð, Aust-
urbyggð og Fáskrúðsfjarðahrepp
voru samþykktar. Smári Geirsson
forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð
og nefndarmaður í stóru sameining-
arnefndinni sem stóð að tillögunum
sem kosið var um á laugardaginri,
sagðist ánægður með niðurstöður
síns svæðis. „Við fórum í þetta verk-
efni með það fyrir augum að ná ár-
angri og ég ætla að vona að það hafi
menn gert annarsstaðar líka.“ Smári
sagði niðurstöður kosninganna ann-
arstaðar hafa komið sér á óvart. „En
það sem olli mér mestum vonbrigð-
um og kom mér mest á óvart var
þessi dræma þátttaka. Einhverra
hluta vegna tekst ekki að vekja áhuga
fólks á þessu verkefni og ég ætla að
vona að það verði farið ofan í saum-
ana á þessu.“ Smári sagði sum úrslit
hafa komið sér meira á óvart en önn-
ur og nefndi þar Skagafjarðarsvæðið,
Eyjafjörð og Árborgarsvæðið. „Ár-
angurinn er auðvitað miklu minni
en til stóð. Þó held ég að ef við lítum
til síðasta átaks árið 1993 þá fór ým-
islegt af stað þó að átakið sjálft hafi
ekki skilað miklum árangri. Sveitar-
félögum fækkaði mikið í kjölfar þess
átaks með sameiningum sem sveita-
stjórnirnar sjálfar höfðu frumkvæði
að. Það er ekki ólíklegt að svoleiðis
þróun fari af stað aftur.“ Að loknum
sveitarstjórnarkosningumnæstavor
munu sveitarfélög í landinu verða 89
að tölu, en árið 2003 voru þau 103.
Rogginn með niðurstöðurnar
Smári er annars mjög ánægður með
niðurstöðurnar á hans svæði. „Ég
tel að menn hafi gert sér grein fyrir
því að sá árangur sem náðst hefur
hér á svæðinu byggir mikið til á því
að Fjarðabyggð varð til 1998. Smærri
sveitarfélögin hér fýrir austan eru að
samþykkja með glæsibrag sem sýnir
að mínu mati að þau eru ekki hrædd
við að sameinast stærri sveitarfélög-
unum og það er vegna þess að það
ríkir mikið traust á meðal manna
hér á svæðinu sem ég er auðvitað
mjög ánægður með.“ I Fjarðabyggð
var mjórra á mununum, en að mati
Smára byggðist sú útkoma frekar á
því að menn í bænum hafi verið á
móti þeirri tímasetningu sem varlin
var á kosningarnar. „Ég held að mik-
il hluti þeirra sem sögðu nii í Fjarða-
byggð hafi því ekki endilega verið
andstæðingar sameiningar heldur
töldu sumir að ekki væri tímabært
að gera þetta strax, heldur væri
betra að bíða í nokkur ár þangað
til að helsta uppbyggingartímanum
hér á svæðinu væri lokið, og samfé-
lagið komið í betra jafnvægi.” Smári
sagðist að lokum vera rogginn með
niðurstöður síns svæðis sem sýnir
að þar búi framsýnt fólk sem er til-
búið til að móta nýtt og öflugra sam-
félag en þar er fyrir. ■
Við kaup á EGLA
bréfabíndum er stutt við
bakið á mörgum sem
þurfa á því að haida.
Veljum íslenskt!