blaðið - 10.10.2005, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 bla6Í6
Versti skjálfti i sögu Pakistans
Öflugur jarðskjálfti veldur gríðarlegu mann- og eignatjóni í Pakistan, Indlandi ogAfgan-
istan. Þjóðir heims bjóðafram margvíslega aðstoð. Rigningar og aurskriður hefta björgun-
arstarf. Versti jarðskjálfti ísögu landsins að mati Musharrafforseta.
Sjóliði stendur við rústir byggingar f borginni Islamabad sem hrundi f jarðskjálftanum á laugardag.
Rússar útvega
Afgönum
hernaðartæki
Rússar hyggjast útvega hinum
unga og óreynda her Afganist-
ans þyrlur og annan útbúnað
að verðmæti 30 milljóna
Bandaríkjadala. Þetta gerist
rúmum 15 árum eftir að nærri
áratugarlöngu stríði Sovét-
manna og Afgana lauk. Rússar
munu útvega Afgönum fjórar
þyrlur, á annan tug farartækja
og samskiptatæki og annan
búnað, samkvæmt frétt Interfax
fréttastöðvarinnar. Ekki munu
þeir þó útvega þeim nein vopn
eða skotfæri.Á undanförnum
árum hafa Rússar látið Afgön-
um í té hernaðarbúnað að
verðmæti um 100 milljóna dala.
Hryðjuverka-
samtök óska
eftir starfsfólki
A1 Kaída-hryðjuverkasamtökin
hafa auglýst effir starfsfólki
á internetinu að sögn dag-
blaðsins Asharq al-Awsat sem
gefið er út á arabísku í London.
Starfið felst í gerð myndbanda,
tilkynninga og samantekt fjöl-
miðlaumfjöllunar um aðgerðir
samtakanna í Irak, Téténíu,
heimastjórnarsvæðum Palest-
ínu og öðrum átakasvæðum þar
sem vígamenn þeirra eru virkir.
Áhugasömum er bent á að setja
sig í samband við samtök sem
sjá um fjölmiðlatengsl fyrir
A1 Kaída. Ekki fylgdi sögunni
hvernig umsækjendur gætu
haft samband við samtökin.
Stuðningsmenn A1 Kaída
nota á annan tug vefsíðna til að
dreifa tilkynningum samtak-
anna. Hópar sem tengjast sam-
tökunum hafa einnig komið
sér upp sínum eigin síðum sem
skipta títt um lén þar sem þeim
er lokað af netþjónustuveitum.B
Staðfest hefur verið að um 20.000
manns fórust í jarðskjálftanum
sem reið yfir Suður-Asíu á laugar-
dag en yfirvöld í Pakistan óttast
að endanleg tala verði mun hærri.
Tölur yfir fallna eru að vísu mjög á
reiki og sagði Tariq Mahmmod, ráð-
herra í Kasmírhéraði, í gær að f því
héraði einu hefðu meira en 30.000
manns farist. Þá hefur ennfremur
verið tilkynnt um hundruð látinna
í nágrannaríkjunum Indlandi og
Afganistan.
Rigningar og aurskriður
hindra björgunarstarf
Þyrlur og flutningavélar fluttu
björgunarsveitir og vistir til ham-
farasvæðanna í gær. Rigningar og
aurskriður hindruðu þó björgunar-
starf þar sem þær slitu í sundur vegi
til afskekktra svæða. Alþjóðlegar
björgunarsveitir héldu til Pakistans
í gær og margar þjóðir hétu að veita
landinu frekari aðstoð af ýmsu tagi.
Pervez Musharraf, forseti Pak-
istans, bað alþjóðasamfélagið um
aðstoð vegna jarðskjálftans sem
hann sagði að væri sá versti í sögu
landsins. „Við höfum nægan mann-
afla en þurfum á fjárhagsaðstoð til
að takast á við harmleikinn," sagði
Musharraf. Hann sagði ennfremur
að þörf væri á þyrlum til að ná til
þeirra sem hafast við á afskekktum
stöðum auk þess sem þörf væri á
tjöldum, teppum, lyfjum og öðrum
nauðsynjum handa fórnarlömbun-
um. „Þetta er svo hræðilegt ástand
að maður getur vart ímyndað sér
það. Dauðsföllum fjölgar með
hverri klukkustund," sagði Aftab
Sherpao, innanríkisráðherra Pakist-
ans, í gær.
Jarðskjálfti upp á 7,6 á Richter
Stjórnvöld leggja megináherslu á
að koma þeim í burtu sem þurfa á
læknisaðhlynningu að halda, koma
á laggirnar sjúkramiðstöðvum og
húsaskjóli fyrir þúsundir manna
sem eiga hvergi höfði sínu að halla.
Jarðskjálftinnsemvarð að morgni
laugardags mældist 7,6 stig á Richt-
ers kvarðanum og er talinn vera sá
öflugasti sem orðið hefur í héraðinu
í meira en öld. Skjálftinn fannst á
stóru svæði í suður Asíu allt frá
miðhluta Afganistan til Bangladesh
á Indlandi. Nokkrir eftirskjálftar
hafa komið í kjölfar hans.
Upptök rétt hjá Muzaffarabad
Jarðskjálftinn átti upptök sín rétt
hjá Muzaffarabad, höfuðborg þess
hluta Kasmírhéraðs sem lýtur
stjórn Pakistana. í Muzaffarabad
hrundu margar byggingar til
grunna og krikketleikvangur borg-
arinnar var notaður til að hýsa heim-
ilislaust fólk og veita fórnarlömbum
neyðaraðstoð. Hinir slösuðu biðu
þess í gær að verða fluttir flugleið-
is á sjúkrahús í Islamabad. Bæir og
þorp í nágrenninu fóru margir illa
út úr skjálftanum og jöfnuðust sum-
ir nánast við jörðu. Aðeins örfáar
byggingar standa enn í bænum Bala-
kot sem áður iðaði af lífi.
í gær leituðu þorpsbúar í Balakot
með berum höndum og einföldum
verkfærum að eftirlifendum í rúst-
um skóla sem jafnaðist við jörðu í
skjálftanum. Faizan Farooq, 19 ára
námsmaður í þorpinu, sagðist hafa
heyrt neyðaróp skólabarna stuttu
eftir að skjálftinn reið yfir á laugar-
dag. Degi síðar var ekkert lífsmark
í rústunum. „Við getum ekki gert
þetta án hjálpar hersins. Enginn hef-
ur komið okkur til aðstoðar,“ sagði
Farooq. ■
Þorp grefst undir aurskriðu
Björgunarmenn leita aö líkum í þorpinu Panabaj f Guatemala sem grófst undir aurskriðu.
ENSKA ER OKKAR MAL
okktir n,tí/
Enskunámskeið að hefjast
Okkar vinsælu talnámskeið auka oröaforöa og sjálfstraust
* Talnámskelð - 5 vikur
• Barnanámskeíð frá 5 til 12 ára
• Viðskiptanámskeið
* Mólfræðt og skrift
* Eínkatfmar
* Námskeið fyrir 8-10. bekk
* Málaskólar I Englandi
* Umræðuhópar
Enskuskólinn
Vertu velkomin í heimsókn og ráðgjöf
Hringdu i síma 588 0303 • FAXAFENI 8 • www.enskuskolinn.is
Majaþorp sem grófst undir tonnum
af leðju og braki eftir aurskriðu í Gu-
atemala verður hugsanlega lýst graf-
reitur. Talið er að allt að 1400 manns
hafi farist í aurskriðunni sem varð í
kjölfar þess að fellibylurinn Stan reið
yfir svæðið. Eftir margra daga úrhelli
rann leðja, tré og grjót niður hlíðar
eldfjallsins San Lucas og inn í maja-
þorpið Panabaj á meðan íbúar voru
enn í fasta svefni á miðvikudag í síð-
ustu viku. Um 1400 íbúar þorpsins
hurfu í hamförunum og eru taldir af.
Jorge Briz, utanríkisráðherra lands-
ins, sagði Reuters fréttastofunni að
rúmlega 500 Hk hefðu fundist en sú
tala myndi að öllum líkindum að
minnsta kosti tvöfaldast.
Þar sem yfirvöld óttast að svo
margir séu grafnir undir leðjunni
hafa þau lýst því yfir að þau kunni að
hætta leit og lýsa svæðið fjöldagröf.
„Við höfum meiri áhyggjur af því að
koma matvælum til fólks sem lifir,“
sagði Ana Luisa Olmedo, talsmaður
Almannavarna Guatemala.
Með dauðsföllunum í Panabaj
kann tala þeirra sem talið er að hafi
farist í kjölfar fellibylsins Stans í Gu-
atemala að þrefaldast en einnig fórust
margir af hans völdum í E1 Salvador,
Mexíkó, Níkaragúa og í Hondúras. ■