blaðið - 10.10.2005, Síða 22
22 I JÓLAUNDIRBÚNINGUR
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 blaöiö
islenska hlaðborðið
komið trá Dönum
-síldy rúllupylsa og lúða í majónesi
Sylvía Gunnarstein er smur-
brauðsjómfrú frá Færeyjum en
hún lærði iðn sína í Danmörku
og þekkir þar af leiðandi danska
matarmenningu einkar vel. Hún
segir jólahlaðborðið eins og við
þekkjum það vera hefð komin fá
Danmörku.
.Islendingar stæla alltaf Danina en
vilja ekki tala dönsku,“ segir Sylvía
meira í gríni en alvöru.
„Þetta íslenska jólahlaðborð kem-
ur frá Danmörku og smurbrauðið
auðvitað líka. Danir borða mjög
svipað á jólum og það sem er á
okkar hlaðborðum, við erum mjög
dönsk í matarhefðum," segir Sylvía.
Hún segir hefðina vera að á jóladag
bjóða Danir fjölskyldunni i jólafro-
kost en þá borða íslendingar vana-
lega hangikjöt.
Góða gamla síldin
,Það er svo margt sem er á boðstól-
um um jólin í Danmörku. Það er
alltaf heit lifrakæfa með beikoni
og eplum, laukur er borðaður með
því. Svo er spægipylsa og rúllupylsa
og lax eða lúða í majónesi. Kjötboll-
ur með lauk og brúnni sósu er líka
mjög dæmigert á jólum í Danmörku.
Svo er alltaf svínasteik með brúnuð-
um kartöflum og einhverju súrmeti,
asíum eða rauðrófum. Að lokum
er Ris a la mande í eftirrétt sem er
mjög vinsælt og mjög gott. Svo má
að sjálfsögðu ekki gleyma síldinni,
síldin skipar stóran sess á dönsku
jólahlaðborði og þaðan hefur síldin
borist hingað til lands. Ég hef alltaf
sagt að sá sem ekki kann að meta
síld kann ekki að meta góðan mat,“
segir Sylvía og hlær.
Muna: skipta um disk!
Sylvía segir að það sem einkenni
danska hlaðborðið sé að það eru
ekki svo margar tegundir í boði
þannig að maður nærþvi að smakka
allt. Hér á landi sé hins vegar oft of
mikið í boði þannig að maður kemst
ekki yfir allt.
„Tólf réttir eru í raun alveg nóg á
jólahlaðborði. Að hafa ío tegundir
af síld er bara alltof mikið. Tvær til
þrjár eru nóg. Þá getur maður notið
matarins ennþá betur.“
Þessi hlaðborðshefð er svo göm-
ul að Danir eru vel sjóaðir í henni.
íslendingar eru enn að tileinka sér
þessa hefð.
„Það skiptir máli að skipta alltaf
um disk. Maður byrjar á síldinni og
notar undir hana sérdisk og það er
í lagi að nota þann disk undir aðra
fiskrétti. Svo fer maður í kjötið og
tekur þá annan disk og enn annan
fyrir heitu réttina. Svo eru eftirrétt-
ir á öðru borði.“
Með jólamatnum drekka Danir
sérbruggaðan jólabjór sem einnig
fæst hér í kringum jólin og sötra
Gammel dansk, sem er lystaukandi.
Sylvía rekur smurbrauðsstofu
Sylvíu sem er til húsa að Laugarvegi
170. Hún rekur einnig veisluþjón-
ustu og hefur meðal annars annast
jólahlaðborð fyrir norrænu félögin
hér á landi. ■
Jólahlaðborð 18.19.25.26. nóvember og 2.3. 9.10.16.17. desember
Krakkajólahlaðborð 20.27. nóvember og 4.11 jS. desember
JÓHANNES KRISUÁNSS
ÓMAR RAGNARSSON
BIRTA OG BÁRÐUR
HIUÓMSVaaTIN FEÐGARNIR
HAUKUR HEIÐAR INGÓLFSSON
Sjá nánar á www.hotel-ork.is
iirfo@hotel-ork.is W
Boróapan tanir i sima 483 4700 hótel örk
Sylvia Gunnarstein smurbrauðsjómfrú
BlaM/Steinar Hugi
lambafílle með.
V/ Hagatorg, 107 Reykjavík. Borðapantanir í síma 525-9930
Læv í Súlnasal Hótel Sögu!
Kvöldverður! Sýning! Dans!
Hljómsveitin Sclgú ClclSS leikurí sýningunni
og á dansleikdó sýningu lokinni.
rilvalin skemmtun fyrirsmærri fyrirtæki og hóp*