blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 4

blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 blaöiö Starfsmannaleigan 2 B Fyrirtæki sem leigöu starfsmenn hugsanlega dregin til ábyrgðar Beiðni starfsmannaleigunnar um atvinnuleyfi fyrir tugi erlendra starfsmanna gæti verið fordœmisgefandi. Starfsmenn 2 B eru ennþá við störfþráttfyrir að hafa ekki atvinnuleyfi. ,Hægt er að fullyrða að tveir ráðn- ingasamningar séu í gangi. Raun- verulegur samningur í Póllandi og svo leppsamningur hér á landi,” segir Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar um málið. Með því væri reynt að leyna hver raunveruleg launakjör þessara manna eru hér á landi. 1 gær kærði Verkalýðsfélag Akra- ness 2 B vegna 10 starfsmanna sem Istak hefur á leigu. Segir félagið að þeir hafi ekki nauðsynleg atvinnu- leyfi. Sýslumaðurinn á Blönduósi hef- ur lögsögu í málinu en samkvæmt heimildum Blaðsins voru mennirn- ir 10 við vinnu i gær og ekki náðist í sýslumann til að fá upplýsingar um hvar málið stæði. Viðskiptalíf Nýr forstjóri Singer og Fri- edlander Ármann Þorvaldsson hefur verið ráðinn forstjóri breska bankans Singer & Friedland- er Group PLC. Þetta kom ffarn í fréttatilkynningu sem KB-banka sendi frá sér í gær. Ráðningin kemur í kjölfar yfir- töku Kaupþingsbanka á breska bankanum í júlf á þessu ári. Ármann Þorvaldsson gengdi áður starfi framkvæmdastjóra fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings banka en við því starfi tekur Helgi Bergs. f tilkynningunni kemur einnig fram að Tony She- arer, fráfarandi forstjóri Singer & Friedlander, muni starfa við hlið Ármanns út nóvember. Gissur Pétursson Notkunarfyrirtækin kærð? Þorbjörn segir að Samiðn undirbúi nú að draga notkunarfyrirtækin, þ.e. þau fyrirtæki sem nýttu sér þjónustu starfsmannaleigunnar, til ábyrgðar. „Við erum að setja formlegan feril í gang. Við höfum farið fram á upplýs- Þorbjörn Guðmundsson ingar um launakjör þessara manna og munum ekki gefa fyrirtækjunum langan tíma til að veita þær,” segir Þorbjörn. Hann fullyrðir að notkun- arfyrirtækin, í þessu tilfelli meðal annars ístak og Suðurverk, þurfi að tryggja að starfsmenn þeirra, þar á meðal þeir sem fengnir hafa verið í gegnum starfsmannaleigur, njóti lágmarkskjara. Á það verði hugsan- lega látið reyna næstu daga. Málið hugsanlega for- dæmisgefandi Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu- málastofnunar, segir að forráða- menn stofnunarinnar muni hitta fulltrúa starfsmannaleigunnar á næstu dögum. Hann segir að hjá stofnuninni liggi fyrir beiðni frá fyr- irtækinu um nokkra tugi atvinnu- leyfa fyrir pólska starfsmenn. Ekki liggur fyrir hvernig sú beiðni yrði afgreidd. „Ákveðnar forsendur sem menn þurfa að uppfylla til að fá útgefið at- vinnuleyfi, t.d. hvort vinnuafl skort- ir í ákveðinni grein. Það er hins vegar spurning hvernig þetta lítur út hjá fyrirtæki sem er ekki í fram- leiðslu, bara í útleigu,“ segir Gissur. Afgreiðsla starfsleyfanna gæti því verið fordæmisgefandi fyrir sam- bærileg mál. ■ Lögreglan Nýskipan lögreglumála verða samþykktar. Nefndin, sem hóf störf síðastliðið vor, skilaði í gær frá sér tillögum þar sem m.a. er lagt til að landinu verði skipt upp í sjö svo- kölluð lykilembætti þ.e. Reykavík, Borgarnes, Isafjörð, Akureyri, Seyð- isfjörð, Selfoss og Keflavík. Með stækkun lögregluumdæma er markmiðið að auka og efla þjón- ustu lögreglu við íbúa landsins og í framhaldi af því að styrkja lögregl- una á öllum sviðum. Tillögur nefnd- arinnar fara nú í kynningu en stefnt er að því að þeim Ijúki í desember á þessu ári. ■ Lögregluumdæmi á landinu verða dag ef tillögur framkvæmdanefndar 15 talsins í stað 26 eins og þau eru í um nýskipan lögreglumála á íslandi BlttilMngi mninoMsia Fjarstýfðif bílar i úrvali Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is Áleitin og einlæg, en um leið fyndin. ' Saga um samkyn- hneigða stúlku og * fjölskyldu hennar. Gunrvhildur Hrólfsdóttir \XYNDARMAL Grttnsán*/H(il 1 2 A - S i m i 5 6 8 10 0 0 - www.trnm.is Viðskipti: Erlend kred- itkortavið- skipti aukast Kreditkortanotkun Islendinga erlendis var um 2,9 milljarðar króna í septembermánuði. Þetta kemur fram í tölum sem Seðlabankinn sendi frá sér á mánudaginn. Þar kemur einnig fram að aukning á kreditkorta- notkun erlendis miðað við sama tímabil í fýrra nemur rúmlega 31%. Helsta skýring á þessu er hátt gengi íslensku krónunnar sem venjulega ýtir undir neyslu af þessu tagi. Greiningardeild Islandsbanka segir að þessi þróun kreditkorta- veltu sé ein birtingamynd ört vaxandi viðskiptahalla. Deildin leiðir að því líkur að fýrr eða síðar hljóti þessi halli að kalla á leiðréttingu í formi gengis- lækkunar og í kjölfarið muni samsetning neyslu breytast. Símasalan: Kostaði 786 milljónir Kostnaður vegna sölu Símans frá ársbyrjun 2004 til þess tíma er gengið var frá sölunni í september á þessu ári nam samtals 786 milljónum króna. Þetta kemur fram í skýrslu um söluna sem framkvæmdanefnd um einkavæðingu birti í gær. Stærstu útgjaldaliðirnir eru söluþóknun til ráð- gjafafyrirtækisins Morgan Stanley upp á 682 milljónir og kostnaður vegna lögfræði- ráðgjafar og greinagerða upp á rúmlega 61 milljón króna. „Sé tillit tekið til viðbótarað- greiðslu Símans í febrúar sl„ sem var 4.200 m.kr., nemur hlutfallslegur sölukostnaður um i,n% af söluandvirði Simans. Verður sú niðurstaða að teljast hagstæð, sé miðað við innlend og erlend við- mið í því sambandi,“ segir ennfremur í skýrslunni. Neytendur: Tiltrú neyt- enda minnkar Fólk er almennt svartsýnara á efnahagslífið nú en fyrir mán- uði. Þetta kemur fram í hinni svokölluðu væntingavísitölu Gallups sem birt var í gær- morgun. Vísitalan stendur nú í 112,3 stigum og lækkar annan mánuðinn í röð. Flestir hafa þó ennþá trú á efnahagslífinu og að það verði jafngott eftir sex mánuði en þó hefur þeim fjölg- að sem telja að ástandið muni versna. Greiningardeild Islands- banka telur m.a. að neikvæð umræða um hættumerki í hag- kerfinu skýri minnkandi tiltrú almennings á efnahagslífinu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.