blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 23
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005
VIÐTALI 23
99...........................................
„Enda er það svo að efég hitti fóik sem lítur út fyrir að hafa
lesið eina bók á ævi sinni, og trúir á hana án nokkurra var-
nagla, þá reyni ég að forða mér eins og fætur toga."
bókmenntaunnendur. Til eru kvik-
myndagerðarmenn sem gera kvik-
myndir, einkum og sér í lagi fyrir
þrönga hópa sem heita „kvikmynda-
unnendur“. Mér finnst ég ekkert
hafa fram að færa á þessum markaði.
,Bókmenntaunnendum“ kann ég
ekki að segja nein ný bókmenntatíð-
indi. „Kvikmyndaunnendum“ kann
ég ekki að segja neitt nýtt úr heimi
kvikmyndanna. Mitt erindi er ekki
við listunnendur eingöngu heldur
við alla. Alla sem vilja sjá, lesa eða
hlusta og gefa sig að því sem ég er
að gera.“
Pólitfkin og heimsstríðin
Þú hefur verið kenndur við Fram-
sóknarflokkinn, ertu ennþá fram-
sóknarmaður?
„Ég byrjaði pólitísku ævina í
Heimdalli. Svo fannst mér ég verða
skynsamari og gerðist félagslega
sinnaðri. Á námsárum mínum í
kvikmyndagerð í Svíþjóð breyttist
ég f sósíaldemókrat og kom heim
með þær skoðanir í farteskinu. Það
sem tengdi mig við pólitík í hugum
fólks, meir en ástæða var til, er að
ég varð ritstjóri Þjóðviljans í eitt ár.
Þá stimplaði Morgunblaðið mig sem
kommúnista og Rússadindil sem
ég kannast ekki við að hafa verið
nokkru sinni á ævinni. Þessi sífelldu
uppnefni gerðu manni gramt í geði
og í staðinn fyrir að láta sér segjast
þá forherðist maður. Ég velti því
fyrir mér hvort þetta væri rétt og
komst að því að ég væri miðjumaður
í pólitík og þá fannst mér að ég ætti
samleið með Framsóknarflokknum.
Hins vegar á ég greinilega ekki sam-
leið með neinum flokki lengur. Ég lét
skrá mig úr Framsóknarflokknum
þegar sá flokkur var kominn í stríð
við írak. Ég vissi ekki að íslenskur
bændaflokkur hefði stríðsrekstur á
stefnuskrá sinni.“
Hvað sérðu þegar þú horfir yfir svið-
ið og á þjóðfélagið. Ótrúlega margir
virðast vera helteknir afDavíð Odds-
syni. Ertþú það líka?
„Ég held að ég hugsi minna um
Davíð Oddsson en hann um mig og
ég geri ekki ráð fyrir að hann hugsi
mikið um mig. Ég hef hins vegar oft
furðað mig á því hversu margir eru
uppteknir af Davíð Oddssyni. Hans
skoðanir á hlutum hafa aldrei plag-
að mig. Einhverjum skoðunum sín-
um hefur honum tekist að troða upp
á þjóðina, sumum til góðs, öðrum
til bölvunar og það er bara eins og
það er. Þetta ósýnilega ægivald sem
hann hefur í hugum margra hefur
hann aldrei haft í mínum huga.“
Hefurðu áhyggjur af einhverju í
þessu þjóðfélagi?
„Nei, ekki sérstaklega. Þjóðfélagið
er frjálsara og opinskárra en sveita-
mannaþjóðfélagið sem ég fæddist
inn í og kúrði dálítið feimið inni í
sjálfu sér. Ég hef reyndar áhyggjur
af því að ungt fólk virðist verða að
eltast við innantóma hluti. Það lang-
ar til að verða frægt og heldur að það
verði frægt ef það sést í sjónvarpi.
Það veit ekki að enginn verður fræg-
ur af því að sjást einhvers staðar.
Maður verður frægur, ekki af sjálf-
um sér, heldur af verkum sínum.
Mér finnst að mannkyninu hafi
miðað áfram um hænufet. En auð-
vitað vildi ég að þróunin gengi
hraðar. Ef maður liti yfir sviðið úr
gervitungli fyndist manni augljóst
að sú tegund sem ræður ríkjum hér
á jörðinni er grimm og miskunnar-
laus og lítur svo á að hún eigi plánet-
una ein og skuldlaust. Sem Marsbúi
hefði ég áhyggjur af þessari plánetu.
En sem maður sem er alinn upp í
þessu stríði manneskjanna þá sé ég
ekki að ástandið sé verra en það hef-
ur verið.“
Óttinn við hópa
/ bók þinni Einhvers konar ég er dreg-
in upp mynd af einfara. Ertu alltaf
sami einfarinn?
„Ég er félagslyndur einfari. Ég á
samheldna fjölskyldu. Svo nýt ég
þess að tala við gott fólk þar sem
skilningurinn nær lengra en orðin.
Sem einfari á ég erfitt með að stað-
setja mig í hóp. Ég get átt samleið
með hinum ýmsu hópum spotta og
spotta en ég veit ekki um neinn hóp
á jörðinni nema þá allt mannkynið
sem ég geng með alla leið til grafar.
Það sem ég óttast í sambandi við
hópa er hin mikla trú þeirra á að
þeir hafi höndlað stóra sannleikann.
Gáfaður maður í Róm til forna orð-
aði þetta snilldarlega. Hann sagði:
„Timeo hominem unius libri“ - sem
útleggst: Ég óttast einnar bókar
manninn. Enda er það svo að ef ég
hitti fólk sem lítur út fyrir að hafa
lesið eina bók á ævi sinni og trúir á
hana án nokkurra varnagla þá reyni
ég að forða mér eins og fætur toga.“
Víkjum að brennivíninu, var reynsl-
an afþví sár?
„Sár? Nei, bara erfið, held ég. Ég
byrjaði að drekka sem unglingur og
sá þá einungis jákvæðu hliðarnir á
því lífi. Víman sló á félagsfælni og
þunglyndi - meðan hún entist. Þeg-
ar hún hætti að virka þá fór mér að
líða enn verr. Einfaldasta svarið við
því var að drekka sem allra oftast.
Þetta varð til þess að ég missti stjórn
á lífi mínu. Það var ekki fyrr en ég
viðurkenndi þetta vandamál fyrir
sjálfum mér og öðrum að ég gat slit-
ið mig frá þessu.“
Þú nefndirþunglyndið, afhverju staf-
arþað?
„Eftir því sem ég veit best er það
talið stafa af ónógri boðefnafram-
leiðslu. Utanaðkomandi aðstæður
hafa líka áhrif á efnaskipti líkam-
ans. Þessi geðsjúkdómur, þunglyndi,
tengist því bæði líkama og sál. Ég
tek lyf við þessu og sé ekkert að því
annað en að það er óþægilegt.“
Varstu stundum svo þunglyndur að
þú íhugaðir að svipta þigltfi?
„Ég íhugaði það oft en líf mitt hef-
ur alltaf verið það náið og tengt öðru
fólki að verknaður eins og sjálfsvíg
hefur ekki verið raunverulegur val-
kostur. Ég tel það vera guðsmildi
- sem sumir kalla heppni - að geð-
veikin skuli aldrei hafa náð að taka
af mér öll völd.“
Finnst þér ekki erfitt að tala um
svona hluti?
„Nei, það finnst mér ekki. Mér
finnst hins vegar erfitt hversu margt
fólk virðist eiga erfitt með að tala
um þá. Mér finnst nauðsynlegt að
við segjum hvort öðru frá því sem
við erum að upplifa og drögum ekk-
ert undan. Við eigum til dæmis ekki
að vera haldin tepruskap gagnvart
jafn sjálfsögðum hlut og kynlífi. Sú
bæling sem ríkti á tímabili gagnvart
kynlífi skapaði niðurlægjandi klám-
iðnað. Klámiðnaðurinn er ekkert
annað en heiftúðugt andsvar við
bælingu og eitt af sjúkdómseinkenn-
um hennar. Ég hef aldrei vitað til
þess að frumstæðir þjóðflokkar sem
lifa í harmoníu við náttúruna og um-
hverfi sitt þurfi á klámiðnaðarmönn-
um að halda.“
Trúinog dauðinn
Hvaða lífssýn hefurðu, ertu trúaður?
„Já, það held ég. Ég held að öll trú-
arbrögð séu tjáning á þeirri tilfinn-
ingu mannsins að það sé til eitthvað
handan við mannlega skynjun og
mannlega greind. Eitthvað sem mað-
urinn geti hvorki skilið né skilgreint
en trúarbrögðin reyni það hins veg-
ar. Kirkjan þjónar þessari trúarþörf
minni vel. Ég er ekki endilega í
flokknum en mér líður vel í guðshús-
um af öllum tegundum. Ég kann vel
að meta tilraun trúaðra til að koma
því í orð sem aldrei verður hægt að
segja eða skilja. Hins vegar er ekkert
minna til af trúuðum vitleysingum
en trúlausum en það er önnur saga.“
Tilhugsunin um að deyja, finnst þér
hún slœm?
„Alls ekki. Ég kvíði því reyndar
að mér endist ekki lífsþróttur til að
njóta lífsins til hinstu stundar. Það
er dapurlegt þegar lífsnautnin dvín-
ar og fólk þarf að bíða eftir dauðan-
um. Ég vil ekki að það hendi mig. Ég
reyni það sem ég get til að rækta kær-
leika til lífsins. Eg reyni að stunda
andlega og líkamlega heilsurækt,
fylgjast með og taka þátt í lífinu á
minn hátt svo ég hafi sem mesta
nautn af því. Það er óvíst hvort svona
tækifæri bjóðist manni aftur."
kolbrun@vbl.is
www.toyota.is
Sker sig úr þegar öryggi er annarsi^
Fimm stjörnu öryggi
Avensis fékk hæstu einkunn sem gefin hefur verið íárekstrarprófi Euro NCAP eða heilar
fimm stjörnur fyrir öryggi. Þar vógu þungt öflugir loftpúðar og sterk yfirbygging.
En sérstaða Avensis er ekki aðeins bundin við öryggi. Hann var líka kosinn bíll ársins í
flokki fjölskyldubíla af tímaritinu WhatCar?
Avensis Wagon er hágæða fjölskyldubíll, ríkulega búinn og rúmgóður.
Eftirtektarverður kostur sem sker sig úr hvar sem hann fer.
Prófaðu verðlaunagripinn Avensis Wagon og sjáðu hvort hann smeilpassi
ekki fyrir fjölskylduna þína.
Verð frá 2.340.000 kr.
TODAY TOMORROW TOYOTA
Toyota
Nýbýlavegi 4
KÓPAVOGUR
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
AKUREYRI
Sími: 460-4300
Toyotasalurinn
Njarðarbraut 19
REYKJANESBÆR
Sími: 421-4888
Toyotasalurinn
Fossnesi 14
SELFOSS
Sími: 480-8000