blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 38

blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 38
38IFÓLK MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 blaöiö ÍSLENSK STJÓRNVÖLD OG BANDARÍKIN Smáborgaranum er svo sannarlega ekki skemmt þessa dagana. Hann er reyndar alveg bálreiður og yfir sig hneykslaður og móðgaður á háttalagi íslenskra stjórn- valda um þessar mundir og er skapi næst að flytja úr landi og afneita þjóðerni sínu. Þannig er mál með vexti að Smáborgar- inn hefur löngum gagnrýnt fyrrverandi og núverandi forsætisráðherra landsins fyrir að styðja innrás Bandaríkjamanna í (rak án þessa að telja sig þurfa samþykki nokkurs einasta manns. Afdrifarík ákvörð- un tveggja manna fyrir hönd heillar þjóð- ar - ákvörðun sem allir hinir 290.000 íbúar hennar voru ósáttir við. Það er ekki fyrr en á allra seinustu misserum að Smáborgar- anum hefur örlítið runnið reiðin - er að minnsta kosti hættur að tala um þessa fá- sinnu við hvert tækifæri. Þetta verður þó geymt en ekki gleymt. Smáborgarinn taldi að núna myndu stjórn- I völd hugsa sig tvisvar ef ekki þrisvar um þegar ákvarðanatökur varðandi Bandarík- in eru annars vegar. Það virðist ekki vera. Sleikjuháttur stjórnvalda gagnvart risan- um í vestri er svo viðbjóðslegur og smán- arlegur að það er okkur öllum til skammar. Fellibylurinn Katrína gekk yfir Bandaríkin í lok ágúst og varð til þess að meira en 1.000 manns týndu lífi. Ennþá fleiri misstu heimili sín og ennþá ríkir mikill glundroði þar sem fellibylurinn gekk yfir. Borgin New Orleans er ekki svipur hjá sjón og Ijóst er að það mun taka mörg ár að koma borginni í fyrra horf. Islensk stjórnvöld brugðust skjótt við og ákváðu að leggja til 500.000 dollara til að hjálpa til við upp- byggingu og hjálparstarf. Allt gott og blessað um það að segja enda var pening- unum vel varið. Þann 8. október skók öflugur jarðskjálfti norðurhluta Pakistan og Kasmír-hérað. Nú þegar hefur verið staðfest að 80.000 manns hafi farist og talan fer hækkandi. Aðstæður til hjálparstarfs eru mjög bágar og ennþá vantar mikið upþ á til þess að hægt verði að sinna því sem skildi. fslensk stjórnvöld brugðust við. Létu 300.000 dollara af hendi rakna. 200.000 dollurum minna en til Bandaríkjanna. Þau skilaboð sem almenningur fær með því er að hvert mannslíf í Bandaríkjunum sé meira virði en hvert mannslíf í Pakistan - þar sem allar aðstæður eru margfalt verri en í Bandaríkj- unum. Smáborgarinn vildi gjarnan fá svör sem rökstyðja þessa undarlegu og með öllu óskiljanlegu ákvörðun. HVAÐ FINNST ÞER? Hvað finnst þér um Magga Eiríks? Helgi Björnsson, söngvari, sem heldur tónleika með lögum eftir Magnús Eiríksson í Óperunni annað kvöld: „Mér finnst Maggi Eiríks náttúrulega ekkert minna en snillingur. Annars væri ég ekki að taka upp heila plötu með lögum eftir hann, sem við kynnum svo á útgáfutónleikum á fimmtu- dagskvöld. Hann er okkar fremsti laga- og texta- smiður. Það segir sína sögu að þegar ég fór að skoða þessi lög hans, þá uppgötvaði ég það að ég kunni þau öll og textana líka. Samt var það nú svo að ég keypti aldrei Mannakornsplöturn- ar eða stúderaði lögin hans hérna áð- ur. En tónlistin hans hefur verið allt í kringum mann, í útvarpi, þar sem fólk sest niður með gítar eða hvað annað. Lögin eru hluti af íslensk- um þjóðarkarakter og mér finnst borðleggjandi að Magnús Eiríks- son beri nafnbótina þjóðskáld með rentu.“ Sýnið Britney þolinmœði Söngvarinn Justin Timberlake hefur sagt aðdáendum Britney Spears og blaðamönn- um að að sýna henni þolinmæði en hún hefur nýlega eignast soninn Sean Preston. Aðdáendur eru ólmir á eftir myndum af drengnum og stolnar myndir hafa verið birtar ólöglega af barninu á Internetinu. Justin Timberlake talaði til aðdáenda og bað þá að gefa henni frið en þetta er í fyrsta skipti sem Justin sýnir henni opinberleg- an stuðning eftir að þau hættu saman fyrir tveimur árum. „Ég held að þarna hafi verið gengið of langt enda eru þetta hennar myndir. Það er fáránlegt að manneskjur eins og hún sem eru að eignast sitt fyrsta barn séu ekki látnar í friði,“ sagði Justin. Lögfræðingar Britney náðu að stoppa myndirnar frá því að dreifast út um allt og stjórnendum vefsíð- unnar var hótað lögsókn. Yoko Ono: Sagði Bono að hann vœri sonur Lennon Bono hefur sagt að Yoko Ono hafi komið til sín þegar hann var um tvítugur og sagt hann vera son John Lennon. Bono segist varla hafa getað fengið betra hól frá nokkrum. Bono segir að platan John Lennon and the Plastic Ono Band, þar sem Lennon syngi um látna móður sína, hafi hjálpað sér í sorginni þegar hann missti móður sína skyndilega þegar hann var 14 ára. „Mér leið eins og að hann (L e n n o n) ' væri að syngja um mínar eigin tilfinningar,“ sagði Bono. Er Gwyneth ófrísk aftur? Það hefur birst víða í fjölmiðlum erlendis að Gwyneth Paltrow sé aftur orð- in ólétt. Dóttir hennar er nú orðin 16 mánaða en hún er fyrsta barn hennar og manns hennar Chris Martin úr Coldplay. Móðir Gwyneth er sögð hafa tilkynnt óvænt um óléttuna á verðlaunaafhendingu í Hollywood. Þegar hún var spurð hvort hún sé að verða amma aftur sagði hún: „Já ég held það, ég hef reyndar ekki athugað það nýlega.“ Fjölmiðlar segja hana hafa verið að reyna að fela spenninginn en að hún sé að springa af gleði. B Af netinu eftir Jim Unger Össur Skarphéðinsson: Baráttusöngvarnir glymja enn í eyr- um utan af Ingólfstorginu. Grúinn þar var rétt áðan einsog í þéttpakk- aðri síldartunnu á Siglufirði á síld- arárunum miklu. Klukkan liðlega hálfsex og Austurvöllur undarlega mannlaus. Austurstrætið líka. Það eru auðvitað allir sem á annað borð eru í miðbænum ennþá úti á Ingólfs- torgi. Nú heyri ég að hljóðna og lík- lega er fundurinn að verða búinn. Ég fór af því mér var orðið kalt... Uppúr tvö sá maður allstaðar flauma fólks - aðallega kvenna - á leið upp á Skólavörðuholtið þar sem baráttugangan í tilefni dagsins átti að hefjast. Á göngustígunum við Suðurlandsbrautina voru meira að segja hópar fólks á leið í gönguna. Við Einar Karl komum saman á Skólavörðuholtið korter í þrjú og þá var mannhafið eins og fyrir framan Péturskirkjuna í Róm þegar verið er að kynna kjör nýs páfa. http://web. hexia.net/roller/page/ossur// Svanfríður Jónasdóttir: Hinn 24. október fyrir þrjátíu árum sat ég heima með nýfætt barn með- an aðrar konur fóru og stöppuðu stáli hver í aðra á fjölmennum fund- um bæði í Reykjavík og á Akureyri. Ég hallaði mér hins vegar að John Lennon og spilaði „Woman is the nigger of the world,, eins hátt og vog- andi var. Líklega hefði ég nú reikn- að með að árið 2005 yrði ástandi orðið betra, jafnréttið meira, ef ég á annað borð hefði horft svo langt fram í tímann. Það gerði ég hins vegar ekki; ég hafði hvorld hug- myndaflug til að hugsa fram á nýja öld né að sjá mig fyrir mér komna yfir fimmtugt. Líklega hef ég aldrei reiknað með að lifa svo fjarlæga at- burði. Nú er hvort tveggja orðið. Og enn er kvenfrelsið lifandi baráttu- mál því enn er Woman the nigger of the world. http://www.jafnadar- menn.is/svanfridur/ 1-9 O Jim Unger/cbst. by United Media, 2001 Ég vil biðja þig um að afhenda lyklana að fyrirtækisbílnum." HEYRST HEFUR... Kastljósiðhef- ur kafsiglt íslandi í dag í stríðinu um áhorfendur á eftir kvöldfréttum. Það er greinilegt að RÚV hefur unnið mikinn sigur í „fangaskiptunum miklu.“ Mun- urinn á þessum tveimur „pró- grömmum“ felst í tvennu. Ann- ars vegar er umgjörð Kastljóssins mun betri en lslands í dag og í öðru lagi eru mun öflugri spyrl- ar í Kastljósinu. Þannig hafa þeir átt hvern stórsprettinn á fætur öðrum síðustu daga á meðan sæt- ar stúlkur og bóhemskur andi Þorsteins J. hefur ráðið ríkjum í Islandinu. Uppnám er í liði Framsókn- aríReykjavíksökumskelfi- legrar útkomu flokksins í könnunum. Telja menn almennt að Alfreð Þorsteinsson sé búinn að ganga sjálfum sér og flokknum til húðar. Mönn- f*** um þyEir ólíldegt að Anna Kristins- dóttir geti bætt stöðu flokksins nægilega til að halda einum fulltrúa inni. Að- stoðarmaður forsætisráðherra, Björn Ingi Hrafnsson, hefur lengi verið með borgarfulltrúa í maganum og af skrifum á blogg- síðu hans má ráða að hann veltir alvarlega fyrir sér að fara gegn borgarfulltrúunum. Helsti Akki- lesarhæll hans er þó að innan flokksins er hann almennt tal- inn bera töluverða ábyrgð á ýms- um hrakförum forsætisráðherra á sviði almannatengsla. Margir forystumenn á borð við Jónínu Bjartmarz hafa minni en engan áhuga á að vegur hans eflist inn- an flokksins. Hann er því talinn eiga von á harðri andstöðu við framboð sitt... N D a g - sjónvarpsvfsir Skjás eins, Skjárinn, var bor- inn í hús í gær. Fróði er að vísu skráður útgef- andi en þetta blað lofar góðu. Tvennt vekur þó athygli þegar því er flett. skrá annars samkeppnisaðilans, RÚV, fær góða umfjöllun og ^eins er hvergi að finna eiginlega sjónvarpsdagskrá vikunnar eða mánaðarins. Aðeins er stiklað á stóru með helstu þætti. Aðstand- endur Dagskrár vikunnar geta því andað léttar, að minnsta kosti í bili þar til Skjásmenn fara í beina samkeppni við þá. Ekki fylgir sögunni hversu oft Skjár- inn á að koma út. Bolli Thoroddsen, 24 ára for- maður Heimdallar, stefn- ir á 5. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Það vekur athygli að á heimasíðu hans þar sem Bolli rekur fortíð sína og af- rek, sem eru töluverð, sést ekki getið um hverjir bera ábyrgð á því að koma honum í þennan heim. Móðir hans er Margrét Björnsdóttir, sem er helsti ráð- gjafi Ingibjargar S. Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, og faðir Skúli Thoroddsen, sem meðal annars hefur tekið þátt í prófkjörum Samfýlkingarinnar á Reykjanesi. Bæði voru á sínum tíma lfka virk í Alþýðubanda- laginu þar sem þau voru meðal sterkustu stuðningsmanna Ólafs Ragnars Grímssonar. Bæði eru því reyndir plottarar og tæpast á það að draga úr líkum Bolla að njóta reynslu þeirra við að skipu- leggja slaginn.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.