blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 32

blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 32
32 I AFÞREYING MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 blaöiö Nýr Football Manager Síðasta föstudag kom í búðir nýjasta viðbótin í Football Manager keðjunni og nefn- ist hún einfaldlega Football Manager 2006. Frá því að hinir bresku Collyer bræður, Oliver og Paul, sköpuðu fyrsta Champi- onship Manager leikinn árið 1992 hafa leikirnir verið gífurlega vinsælir. Fyrirtæki bræðranna, Sport Interactive, vann síðan að þróun seríunnar í meira en tíu ár í samvinnu við tölvuleikjaframleiðandann Eidos. Sport Interactive ákváð samt sem áður að söðla um fyr- ir nokkrum misserum og hófu að gefa út knattspyrnustjóraleik undir eigin formerkjum og kölluðu Football Manager en hann er byggður á þekkingu og reynslu þess teymis sem hafði áður skapað Champion- ship Manager seríuna. Sá leikur naut gríðarlegra vinsælda og ljóst er að tölvuleikjaaðdáendur hafa haldið tryggð við Sport Interactive þegar kemur að knattspyrnustjóraleikjum, þó að Championship Manager serían sé ennþá í fullum gangi hjá Eidos.Ýmsar nýjungar eru í leiknum og er til dæmis hægt að sjá hæð og þyngd leikmanna í fyrsta skrpti, hægt verður að tala yfir hausa- mótunum á leikmönnum í hálfleik aukþess að samningar knattspyrnustjóra eru kynntir til sögunnar í fyrsta sinn. Skikkaður í skó íþróttaráð gagnfræðiskóla í Ohio fylki hefur þurff að biðja fótboltaleikmanninn Bobby Martin, leikmann gagnfræði- skóla Whites ofursta í Dayton, afsökunar eftir að dómarar bönnuðu honum að taka þátt í leik í september síðastliðn- um. Ástæðurnar sem gefnar voru fyrir banninu voru þær að hann klæddist ekki þeim skófatnaði eða hnéhlífum sem reglurnar útheimtu. Þetta væri líldega ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Martin fæddist án fóta og notar þá hendur sínar til að komast um völlinn. Martin sagði í kjölfar þess að honum var meinuð þátt- taka í leiknum að þetta hefði verið f fyrsta sinn á sínum sautj- án árum sem að honum hefði verið látið líða sem fötluðum. 109 SU DOKU talnaþrautir SOLUHÆSTU DVD Leiðbeiningar Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum írá 1 -9 lárétt og lóörétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. 1 3 5 8 5 1 9 6 7 4 1 6 4 5 8 1 7 9 4 3 6 2 4 1 1 3 2 4 3 7 Lausn á siðustu þraut 5 9 6 3 8 1 7 4 2 3 1 4 7 6 2 9 5 8 8 7 2 5 9 4 1 3 6 4 8 5 9 7 6 3 2 1 1 2 7 8 4 3 5 6 9 9 6 3 1 2 5 8 7 4 2 5 9 4 1 7 6 8 3 7 4 1 6 3 8 2 9 5 6 3 8 2 5 9 4 1 7 1. Batman Begins 2. Kingdom of Heaven 3. Sin City 4. Kill Bill 2 5. Öskubuska 6. KillBilll 7. Robots/vélmenni 8. Bionide 3: skuggavefurinn 9. GuessWho 10. Pacifier HARÐVIÐARVALS Gulltryggð þjónusta! Krókhálsi 4*110 Reykjavík • Sími 567 1010 • www.parket.is Mannúðarmál Að ættleiða hund Það að gerast heimsforeldri og styrkja munaðarlaus, fátæk eða um- komulaus börn til betra lífs með því að greiða fyrir skólagöngu, læknis- hjálp, fæði og klæði er gefandi og gott hlutverk. Það á samt sem áður ekki við alla. Nú er komin fram prýðileg lausn fyrir þá sem vilja leggja sitt að mörkum til að stuðla að betri heimi en vilja frekar einbeita sér að öðrum flötum tilverunnar. DogsTrust, stærsta hjálparstofnun hunda sem starfrækt er í Bretlandi, hefur byrjað á því að bjóða fólki upp á að gerast stuðningsaðilar hunda. DogsTrust rekur 15 áfangaheimili og sér um 12.000 hunda árlega. Þetta kostar vitanlega allt peninga og því hefur DogsTrust brugðið á það ráð að bjóða utanaðkomandi fólki upp á þennan möguleika. Flestir hundanna sem enda hjá DogsTrust fá góð og ástrík heimili að nýju sam- kvæmt heimasíðu samtakanna en sumir þeirra ná ekki að aðlaga sig að nýjum aðstæðum ýmist vegna erfiðrar fortiðar eða heilsuvanda- mála. Því er fólk beðið um að borga eitt pund vikulega til þess að hægt sé að veita þessum hundum áfram- haldandi húsaskjól og hlýju. Hérna er mögulega tækifærið sem margir hafa beðið eftir, tækifæri til þess að gefa veikum hundi annað tækifæri til að öðlast hamingju. Til að gerast stuðningsmaður er hægt að fara inn á heimasíðu samtakanna, http:// www.dogstrust.org.uk, og velja sér hund til að styrkja. Stuðningsmenn fá reglulega upplýsingar um ævin- týri nýja besta vinarins auk þess sem þeir fá sendan íburðarmikinn ' byrjendapakka við skráningu sem inniheldur meðal annars mynd af hundinum þínum og sérstakt stuðn- ingsmannaskírteini sem smellpass- ar í veskið.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.