blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 37

blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 37
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 DAGSKRÁ I 37 Mamma Kylie flýgur til Parísar Móðir Kylie Minogue hefur flogið af stað til Parísar til að vera við hlið dóttur sinn- ar sem berst við brjóstakrabbamein. Kylie hefur verið í lyfjameðferð í París og hefur haft kærasta sinn Olivier Martinez við hlið sér og yngri systur sína Dannii. Móðir Kylie hefur verið á heimaslóðum sínum í Ástralíu fyrst eftir að dóttir hennar fór til Parísar en kærasti hennar fór með henni. Vinir Kylie hafa sagt hann styðja hana vel og hafi hætt við allt sem hann hafi verið búinn að plana. Síðustu fregnir herma að þau stefni á að fara til Ástralíu um jólin til að vera með vinum og fjölskyldu. ■ 4 EITTHVAÐ FYRIR... ...fótboltaaðdáendur Sjónvarpið - Gerð myndarinnar Africa United - kl. 22.35 Þáttur um gerð heimildamyndar- innar Africa United sem er um fót- boltalið á íslandi sem eingöngu er skipað erlendum leikmönnum. ...fyrirsœtur Skjár 1 - America’s Next Top Model IV - kl. 20:00 Fjórtán stúlkur keppa um titilinn og enn er það Tyra Banks sem held- ur um stjórnvölinn og ákveður með öðrum dómurum hverjar halda áfram hverju sinni. 4 Sirkus - What Not To Wear (4:5) - kl. 20.30 Raunveruleikaþáttur þar sem fata- smekkur fólks fær á baukinn. Hér eru snjallar tískulöggur kallaðar til verka og árangurinn lætur ekki á sér standa. ■ Stutt spjall: Oddur Ástráðsson Oddur er fréttamaður og er að fara að vinna á Nýju fréttastöðina sem fer í loftið í byrjun nóvember Hvernig hefurðu það í dag? gerður hjá Oddi. Hver einasti dagur býður Alveg þrusufínt, ég er að sötra kaffi þessa upp á eitthvað nýtt. stundina í góðra vina hópi. Hvenær byrjaðirðu fyrst að vinna í fjölmiðlum? Eg byrjaði að vinna í fjölmiðlum í febrúar fyrir um átta mánuðum síðan en er búin að flakka innan fyrirtækisins 365. Langaði þig að vera blaðamaður þegar þú varst lítill? Nei, nei mig langaði að verða kafari. Það varð ekkert úr því og ég verð sennilega aldrei kafari. Hvernig finnst þér að vinna við blaðamennsku? Mér finnst það mjög skemmti- legt og spennandi og það er eitthvað nýtt sem maður lærir á hverjum einasta degi. Ertu spenntur að byrja að vinna í sjónvarpi? Já þetta verður rosalega gaman, það kitlar egóið. Geturðu lýst dæmi- gerðum degi hjá Oddi? Það ereng- inn dagur dæmi- — Hver finnst þér besti tími dagsins? Ég er meira fyrir kvöldin heldur en morgn- ana. Ég er hressastur seint á kvöldin. Hvað er uppáhalds sjónvarpsefnið þitt? Ég verð að segja fréttir af því að það er það eina sem ég horfi á í sjónvarpinu. Er vinnan sem fréttamaður öðruvísi en þú bjóst við? Já og nei, þetta er skemmtilegra en ég hafði þorað að vona en um leið meira krefjandi. Hvað er uppáhalds útvarps- stöðin þín og útvarpsmaður? Ég hlusta mestáTalstöðina vegna þess að enginn flýr sem heima hrekkurog ég verð að viðurkenna að ég hef endalaust gaman af I ngva Hrafni, ég elska hann mest og ta hann mest í senn. Hver er uppáhalds bíó- myndin þín? Big Le- bowsky, ekki spurning. ■ spurning dagsins Hverjir eru uppáhalds gamanþættirnir þínir? Kristján Sturluson King ofQueensog Malcolm in the Middle. Gísli Valur Þorvaldsson Cheers Ágúst A. Aðalsteinsson The Seventy Show Katrín María Emils- dóttir Vinir Guðríður Jónsdóttir Spaugstofan Girls Aloud dúkkur fyrirjól Ýmislegt er framleitt fyrir jólin og má þar nefna dúkk- ur sem líkjast frægu fólki. Framleiðendur Barbie hafa ákveðið að búa til Girls Aloud dúkkur fyrir jólin og dúkkurnar hafa þegar verið hannaðar. Aðalmarkhópur- inn eru börn frá sex til ellefu ára. ■ Charlize vinnur verðlaun sem besta leikkonan Leikkonan Charlize Theron var valin leikkona ársins á Hollywood Film verðlaunahátíðinni en hún fékk verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni North County. Joaquin Phoenix var valinn leikari ársins fyrir leik sinn í Walk the Line sem er heimildamynd sem unnin hefur verið eftir ævi Johnny Cash. Susan Sarandon fékk verðlaun sem bestu leikkonan í aukahlut- verki í Elizabethtown og Matthew Bro- derick fyrir leik sinn í The Producers. Meðal þeirra leikara sem mættu á hátíðina voru Jennifer Ani- ston og Jake Gyllenhaal. ■ ■

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.