blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 16
KARLA
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 blaðift
Fyndin ogfáránleg tœki
Fjarstýrð golfkúla
Margir karlmenn eru þekktir fyrir tækjasýki sína enda er fátt ánægjulegra en að skarta nýju og flottu tæki
sem fáir eiga. Ekki eru öll tæki seld á íslandi enda er úrvalið þvílíkt að það myndi fylla heila Smáralind og
annað eins. Á Netinu má þó finna fjöldann allan af fyndnum, skemmtilegum og fáránlegum tækjum. Hér
eru nokkur sem fundust á síðunni www.iwantoneofthose.com
Ótrúlega flott skotglös sem eru úr ís og
halda því skotinu vel kældu. Það er auð-
velt að búa til skotglösin enda eru þetta
í rauninni bara ísklakar. Kosturinn við
kældu skotglösin er sá að það er óþarfi
að takmarka sig við vatnið, hægt er að
búa til skotglösin úr ávaxtasafa, sprite
eða hverju sem hugurinn girnist.
Hver kannast ekki við að vera orðinn þreyttur
á gömlu músinni sem lítur alltaf eins út.
Þessi flotti rauði bíll (mús) er léttur
og með virk aftur-og framljós.
Tölvuvinnan verður óneitanlega
mikið skemmtilegri með þessari
glæsilegu mús.a
■ Smurþjónusta •
Góð hugmynd fyrir þá sem vilja stríða
golffélögunum því þessi væna golfkúla er
fjarstýrð. Þegar kveikt er á kúlunni þá fer
hún í tilviljanakenndar áttir. Þessi mun án
efa vekja upp mikinn hlátur og töluverð
viðbrögð á golfvellinum
Það er talað um að litir séu heilandi og
því er þessi glæsilega klukka ekki af verri
endanum. Hún skiptir um liti á klukku-
stundarfresti og hefur um tólf liti að velja,
það er án efa gaman að vakna við þessa
litríku dýrð.
Það þarf engar trommur þegar
svona kjuðar eru á lofti. Hver
kjuði er með innbyggðum
hátalara og þegar þeir eru
slegnir út í loftið þá heyrist
"j trommuhljóð. Hægt er að velja
á milli þess að hafa klassískan
trommutakt, rafrænan trommu-
takt og gjallandi trommutakt auk þess sem ekki má gleyma
Ijósinu sem prýðir kjuðana.
• Peruskipti •
• Rafgeymar*
Fljúgðu með hana á vit ævintýranna um jólin.
Bla6iS/lngó
Komdu henni
á óvart
Ekki er seinna vænna fyrir þá
karlmenn sem eru forsjálir að
fara að hugsa um hvað þeir ætla
að gefa ástinni sinni í jólagjöf.
Sumar gjafir má kaupa með
litlum fyrirvara á meðan aðrar
þarfnast meiri tíma. Hér koma
nokkrar hugmyndir fyrir þá sem
vilja koma elskunni skemmtilega
á óvart:
• Láttu búa til púsluspil með
mynd af ykkur saman, henni, þér
eða börnunum. Jafnvel gæludýrinu
ef þið eigið slíkt. Þetta er hægt að
gera í ljósmyndabúðum og prentstof-
um.
• Pantaðu tíma handa henni í
nudd, litun og plokkun, slökun eða
eitthvað slíkt og komdu henni á
óvart á Þorláksmessu - sendu hana
í dekur á meðan þú klárar jólainn-
kaupin.
• Á e-bay er hægt að fá ógrynn af
alls kyns vörum. Ef konunni þinni
líkar notuð föt eða antík-hlutir,
skoðaðu þá með henni á e-bay eitt
kvöldið og reyndu að veiða það upp
úr henni hvað henni finnst fallegt.
Laumastu svo til þess að panta hlut-
inn þegar hún sér ekki til. Þetta er
bæði öðruvísi og ódýrt.
• Fyrir þá sem vilja virkilega
koma á óvart og eru í barnlausri
sambúð er um að gera að fara alla
leið í herlegheitunum og kaupa utan-
landsferð. Pakka ofan í tösku fyrir
hana svo lítið beri á á Þorláksmessu
og stinga svo af á aðfangadag - eiga
rómantísk jól með stráhatt og kokk-
teil við hönd fjarri öllum látunum.
• Skrifaðu fallegt ástarljóð og láttu
skera það á filmu sem límt er á glugg-
ann. Smart og rómantískt.
• Pantaðu tíma í hljóðveri og
taktu upp fallegt ástarlag eða eitt-
hvað lag sem þið eigið saman - hún
verður örugglega himinlifandi - í
það minnsta hissa. p
Puma rakspíri
Ferskur og
líflegur ilmur
Rakspírinn Puma Man kom nýlega í
búðir og á hann án efa eftir að verða
vinsæll. Ilmurinn er óvenju máttug-
ur enda má finna sterkan mosakeim
sem blandast kryddkenndum sedr-
usviði. Ilmurinn er ferskur og lífleg-
ur og hentar flestum karlmönnum í
leik og starfi. Glasið er blátt og karl-
mannlegt, skreytt kattardýrinu sem
er rautt og heillandi.
svanhvit@vbl.is
Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáöu
ráögjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiöina sem
hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða
á fasteignathjonusta@landsbanki.is
410 4000 landsbanki.is