blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 26

blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 26
26 I SAMSKIPTI KYNJAWNA MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 biaðÍA Hjónabandið verður útundan -í hröðu og kröfuhörðu samfélagi Kolbrún Björk Ragnarsdóttir, fjöl- skylduráðgjafi og iðjuþjálfi, hélt á dögunum námskeið í Bústaðakirkju fyrir hjón sem vildu bæta samskipta- mynstur sitt. Hún segir birtinga- form vandamála í hjónabandi vera af öllum gerðum. „Hvort það er tímaleysi, peningar, barnauppeldi eða eitthvað annað liggur alltaf einhver tilfinningaleg ósátt eða vanlíðan að baki. Margir sem leita í ráðgjöf finna einhverjar nýjar leiðir til að leysa vandamálin," segir Kolbrún. Hún segir erfiðleika í samskiptum oft vera orsök þess að fólk sé ekki að vinna úr sínum málum og velji því oft að skilja. „Að liðsinna fólki í svona sam- skipta- og tilfinningavanda og að kenna fólki meira um samskipti er mikil forvörn.“ Eðlilegt að takast á Kolbrún segir það vera eðli heil- brigðra sambanda þegar tveir aðilar takist á. „Aðilarnir eru ekki alveg eins og þeir takast ekki síður á til þess að þroskast. Það gefur okkur líka skemmtilegra líf. Þessi átök verða af því að það er svo margt að gera en það er ekki verið að forgangsraða. Þegar fólk byrjar í sambandi er him- ininn alltaf blár en síðan fer að skýja, oftar en ekki vegna þess að þessi samningur um það hvernig hlutirn- ir eigi að vera er ekki orðaður þegar sambandið hefst. Eitt af því sem ég geri með hjónum er að hjálpa þeim við að orða þennan samning eða sáttmála. Núna tek ég eftir því að Kolbrún Björk Ragnarsdóttir, fjölskylduráðgjafi og iðjuþjálfari ung hjón eru farin að leita meira í forvarnarvinnu og koma í svona við- töl til þess að tala um hlutina og læra hvernig hægt er að takast á við þá án þess að lenda í vandræðum eða til þess að minnka vandræðin. Þá er þessi hjónabandssáttmáli mjög góð leið til að hjálpa fólki að forgangsr- aða.“ Ákveðinn þröskuldur Kolbrún segir það ekki vera fólk sem hefur brennt allar brýr að baki sér sem kemur á svona samskiptanám- skeið. „Það er frekar fólk sem er með mál- in nokkurn veginn í lagi sem kemur á þessi námskeið. Ég fékk til dæmis símtal eftir námskeiðið sem ég hélt í Bústaðakirkju frá konu sem sagði (?TóppadeÍíidl Stök teppi á parket og flísar - mikið úrval Dreglar og slabbmottur fyrir veturinn Sisal og kókos gólfteppi frá 2,711 kr. Kópal -10 Itr 10% gljái 3,990 kr. Kópal - 4 Itr 10% gljái 1,990 kr. Ný sending af Veggfóðri og veggfóðursborðum Skrautlistar og rósettur - mikið úrval Betri og bjartari verslun • Sérpöntunarþjónusta , Lfttu við f Lrtaver - þa8 hefur avallt boigað sig! Opnunartími: Mán. - fös. 9.00 - 18.00 Lau. 10.00-16.00 tek TEPPABÚÐIN T7i®l Grensásvegur 18 • Sími: 581 2444 að í hennar hjónabandi hefðu ver- ið ákveðin vandamál og hún sagð- ist hafa vitað lengi að þau hjónin þyrftu að gera eitthvað. Ekki alveg vitað hvað og ekki alveg vitað hvert ætti að leita og ekki alveg verið tilbú- in að kyngja því að þau þurfi hjálp. Það er því þannig fólk sem kemur á námskeiðin, fólk sem komið er að ákveðnum þröskuldi, ekki þeir sem eru komnir með allt í rjúkandi rúst.“ Takast á viö neikvæðu gildin Aðspurð að því hvort fólk sé farið að sækja í svona námskeið eða ráðgjöf í meira mæli gegnum árin segist Kol- brún hafa tilfinningu fyrir því. „Ég hef engar tölur um það en ef ég má tala út frá tilfinningu þá er þetta að verða venjulegra og minna gildishlaðið að þetta sé neikvætt. Þó er það ekki alveg nógu langt kom- ið. Að halda svona hjónanámskeið hjálpar til við að takast á við þessu neikvæðu gildi.“ Á vef Hagstofu íslands er hægt að sjá að árið 2004 voru 133 hjónaskiln- aðir hjá þeim sem gift höfðu verið í meira en 20 ár. Koíbrún segir það í sjálfu sér útskýranlegt. „Út frá minni reynslu þá skilur fólk eftir þessi mörgu ár þar sem mælir- inn er fullur. Fólk hefur verið mjög upptekið gegnum tíðina. Fyrstu ár- in í hreiðurgerð, kaupa ibúð, byggja eða eitthvað slíkt og síðan er það vinnan og að hugsa um börnin. Þá rofar stundum til og þá finnur fólk bara tómleikann. Fólk stendur þá svolítið andspænis sjálfu sér og hin- um aðilanum og veltir fyrir sér hvað það ætlaði sér að gera í lífinu og hvort það hafi náð markmiðum sín- um. Stefnir eitthvað í það? Stundum sér fólk að með þeim maka sem það er nái það aldrei þvi sem það ætlaði sér,“ segir Kolbrún og bætir við að fyrrverandi hjón segi oftar en ekki að ef þau hefðu vitað hvað þau væru að fara út í hefðu þau aldrei skilið. „Fólk heldur að það sé að losa sig við eitthvað en síðan er það sjaldn- ast þannig.“ Álagið gríðarlegt Nútímanum fylgja miklar kröfur og mikill hraði fylgir okkar samfélagi. Kolbrún segir þessar aðstæður ekki vera fjölskylduvænar. „Til dæmis er þetta nám með starfi mjög vinsælt núna. Mikið af fólki með ung börn eða unglinga er í þessu. Er þá kannski í metnað- arfullu starfi og í náminu meðfram því. Þetta er eitt af þeim dæmum sem sýnir okkur hversu krefjandi Blaðið/Steinar Hugi nútíminn er,“ segir Kolbrún. Hún bendir á að það fólk sem hef- ur svona mikið að gera ljúki í raun aldrei sínu dagsverki. „Síðan gerist það hjá þessu fólki eins og hjá öllum öðrum að amman fær krabbamein, barnið fótbrotnar eða eitthvað því um líkt og þá er álagið orðið gríðarlegt. Spurningin er hvar þenslumörkin eru,“ segir Kolbrún. Vantar sameiningu „Það eru svo miklar kröfur að gera þetta, gera hitt og eiga allt. Síðan er svo mikið framboð á frístundum, íþróttum og fleiru sem verður til þess að ósjálfrátt það kemur mikið los á fjölskylduna. Matartímar sem einu sinni voru þannig að allir fóru heim að borða klukkan 12 og klukk- an 19 eru ekki lengur til staðar. Fjöl- skyldur borða ekki endilega saman. Einhver er í félagsstarfi, annar í íþróttum og þriðji kannski að horfa á sjónvarpið. Það þarf ekkert endi- lega að vera sundrung en það vantar sameiningu og að æfa samræðurn- ar. I öllu þessu amstri segir Kolbrún hjónabandið ótvírætt verða útund- an. „Það þarf að sinna mörgum verk- efnum eins og að afla fjár og ef að fólk er með börn þá er það ekki verk- efni sem bíður. Fólk bíður þá frekar með að horfast í augu og strjúka hvort öðru. Síðan er svo sorglegt að þegar fólk loks horfist í augu eft- ir 20-30 ár að það sér ekkert nema tómleikann og þá verður oft stór og átakanleg breyting í lífinu." Samræður mikilvægar Kolbrún ráðleggur fólki fyrst og fremst að tala saman þegar vandinn steðjar að. „Fólk verður að ræða saman og velta fyrir sér, hvað það vill og hvað það vill ekki. Sumir geta gert þetta einir á meðan aðrir kjósa að fara í ráðgjöf eða leita til fagfólks til að fá aðstoð við það hvar þeir geta eflt sig og hvar þeir geta bætt sig. Samskipt- in skipta öllu máli, þeir sem eru færir í samskiptum eiga betri tengsl, þannig virkar það líka i hjónabandi, það að bæta sig í samskiptum er einn af aflsteinunum." Eftir áramót mun Kolbrún halda annað fræðslunámskeið fyrir hjón. Hægt er að fylgjast með tilkynning- um á stress.is eða forvarnir.net. ■ katrin. bessadottir@vbl. is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.