blaðið - 26.10.2005, Síða 11
blaðið MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005
ERLENDAR FRÉTTIR I 11
Ný skýrlsa um ofbeldi áföngum Bandartkjahers:
Fangar létust vegna
illrar meðferðar
Á þriðja tug fanga sem létust í vörslu
Bandaríkjamanna í írak og Afganist-
an lést af völdum slæmrar meðferðar,
oft á meðan á yfirheyrslum yfir þeim
stóð eða eftir að þeim lauk. Þetta kem-
ur fram í skýrslu sem Samtök um borg-
araleg réttindi í Bandaríkjunum unnu
úr gögnum frá varnarmálaráðuneyti
ríkisins. f skýrslunni, sem var gerð op-
inber fyrr í vikunni, voru dauðsfóll 44
fanga könnuð. Þar af var 21 dauðsfall
skilgreint sem manndráp. í átta tilfell-
um létust fangar eftir að hafa verið
beittir harðræði af hermönnum eða
leyniþjónustufulltrúum. Dauðsfóllin
44 eru aðeins hluti af heildarfjölda
þeirra sem dáið hafa í vörslu Banda-
ríkjamanna í löndunum tveimur. Tal-
ið er að yfir 100 fangar hafi látist af
eðlilegum orsökum eða í kjölfar þess
að hafa verið beittir ofbeldi.
f einu tilfelli dó fangi eftir að hafa
verið kaffærður af leyniþjónustufull-
trúum á meðan á yfirheyrslu yfir hon-
um stóð í nóvember árið 2003.1 öðru
tilfelli lést fangi vegna öndunarerfið-
leika og af áverkum eftir að hafa verið
skilinn eftir keflaður og hlekkjaður
við dyrakarm.
Líða ekki illa meðferð á föngum
Bandaríska varnarmálaráðuneytið
hefur gert opinberar upplýsingar um
illa meðferð á föngum og dauðsföll
þeirra. Mörg tilvikanna hafa verið
gerð opinber áður og í sumum tilfell-
Meira en 230 bandarískir hermenn hafa verið dæmdir fyrir herrétti fyrir ilia meðferð á föngum í frak og í Afganistan.
um hafa hermenn og herforingjar ver-
ið ákærðir og þeim refsað í kjölfarið.
„Bandaríski herinn líður ekki illa
meðferð á föngum,“ sagði Joseph
Curtin, talsmaður hersins. „Þau tilvik
sem komið hafa upp áður hafa verið
rannsökuð til hlítar. Þegar trúverðug
sönnunargögn eru til staðar hafa yfir-
menn í hernum frumkvæði að því að
sækja menn til saka,“ sagði hann enn-
fremur.
Hingað til hafa yfir 400 tilvik illrar
meðferðar á föngum verið rannsökuð
og meira en 230 hermenn hafa verið
dæmdir til refsingar fyrir herrétti.
„Það er enginn vafi á því að yfir-
heyrslur Bandaríkjamanna hafa leitt
til dauðsfalla," segir Anthony D. Rom-
ero, framkvæmdastjóri Samtaka um
borgaraleg réttindi í Bandaríkjunum
og bætir við að háttsettir foringjar
sem hafi haft vitneskju um pynting-
arnar en ekkert gert verði að svara til
saka. ■
Gullfiskaskál-
ar bannaðar
Samkvæmt nýrri borgarsam-
þykkt hefúr hundaeigendum
í Rómarborg verið gert skylt
að fara reglulega út að ganga
með hunda sína og bann lagt
við því að dýr séu notuð sem
vinningar í skemmtigörðum.
Þá verður borgarbúum enn-
fremur bannað að halda fiska í
hefðbundnum gullfiskaskálum
en dýraverndunarsinnar telja
að það sé grimmileg meðferð
á dýrunum. Dagblaðið II
Messaggero sagði að fiskar
yrðu blindir í gullfiskaskálum
en enginn í borgarráði Rómar
vildi staðfesta að þau rök lægju
að baki banninu. Fiskifræðing-
ar benda affur á móti á að ekld
myndist nóg af súrefni fyrir
fiska í kringlóttum skálum.
Borgarsamþykktin var sett
í kjölfar nýrra landslaga sem
kveða á um að dæma megi í
fangelsi þá sem skilja hunda
og ketti effir i reiðileysi.
VOLVO
for life
Öll erum við einstök, hvert
og eitt okkar. Enginn á sinn
líkan. Fyrir okkur ert þú
miðja alheimsins. Þegarþú
ert annars vegar er takmark
okkar bara eitt: að uppfylla
óskir þínar og þarfir á þann
hátt að þú lítir á Brimborg
sem öruggan stað til að vera
á. Við erum með þéralla leiðl
brimborg
Öruggur stadur til ad vera á
Brimborg Reykjavík: Bíldshöföa 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | Brimborg Reykjanesbæ: Njaröarbraut 3, sími 422 7500 | www.volvo.is