blaðið - 26.10.2005, Qupperneq 12
12 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 blaðið
Mannréttindafrömuður látinn
Rosa Parks lést á mánudag en hún var einn helsti frumkvöðull í manréttindabaráttu þel-
dökkra Bandaríkjamanna. Með því að neita að eftirláta hvítum manni sœti sitt í stræt-
isvagni hrundi hún af stað baráttu þeldökkra Bandaríkjamanna fyrir borgaralegum
réttindum.
Rosa Parks, einn helsti frumkvöðull
í mannréttindabaráttu þeldökkra
Bandaríkjamanna, er látin 92 ára
að aldri. Parks lést á heimili sínu í
Detroit-borg í Michigan á mánudag.
Heilsu hennar hafði hrakað á undan-
förnum árum og sást hún sjaldan op-
inberlega undir það síðasta.
Árið 1955 var Parks handteknn fyr-
ir að neita að eftirláta hvítum manni
sæti sitt í strætisvagni i Montgom-
ery í Alabama. Handtakan olli mik-
illi reiði meðal annarra Bandaríkja-
manna af afrískum uppruna og þeir
sniðgengu þjónustu strætisvagna í
borginni í eitt ár. Þó að Parks hafi
ef til vill talið að mótmælin myndu
ekki hafa neitt annað í för með sér
en handtöku hennar má segja að at-
vikið hafi hrundið af stað mannrétt-
indabaráttu þeldökkra í suðurríkj-
um Bandaríkjanna.
Martin Luther King
fremstur í flokki
Ungur prestur að
nafni Martin Luther
King var fremstur í
flokki mótmælenda
en hann varð síðar
einn helsti baráttu-
maður fyrir aukn-
um mannréttindum
þeldökkra í Banda-
ríkjunum áður en
hann var myrtur
árið 1968. „Með því
að sitja sem fastast
stóð hún í raun með
öllum Bandaríkja-
mönnum,“ sagði
John Lewis, þingmaður frá Georgiu
af þessu tilefni. „I meira en 381 dag
gekk fólk frekar en að nota strætis-
vagna þar sem kynþáttaaðskilnað-
arstefna ríkti. Þeir skiptust á að aka
hver öðrum. Með gjörð-
um sínum hrundi Rosa
Parks af stað friðsam-
legri fjöldahreyfingu,
stórri hreyfingu gegn
aðskilnaði og kynþátta-
mismunun og það ekki
aðeins á sviði almenn-
ingssamgangna," sagði
Lewis sem sjálfur tók
þátt í hreyfingunni.
Sagan segir að Parks
hafi sagst vera of þreytt
til að standa upp eft-
ir erfiðan vinnudag.
„Fólk segir alltaf að ég
hafi ekki látið eftir sæt-
ið mitt vegna þess að ég
var þreytt en það er ekki satt. Ég var
ekki líkamlega þreytt, að minnsta
kosti ekki þreyttari en ég yfirleitt
var við lok vinnudags. Nei, ég var
aðeins þreytt á því að láta undan,"
sagði hún nýlega í viðtali. Svartir
íbúar Montgomery sniðgengu stræt-
isvagnakerfi borgarinnar þangað til
að Hæstiréttur Bandaríkjanna úr-
skurðaði að kynþáttaaðskilnaður í
strætisvögnum væri ólöglegur.
Frelsi fyrir alla
,Ég vil að fólk segi að ég sé mann-
eskja sem hafi alltaf viljað vera frjáls
og að aðrir væru frjálsir. Frelsi er
fyrir allar manneskjur,“ sagði Parks
árið 1995.
Þó að hreyfingin hafi verið frið-
samleg verður það sama ekki sagt
um viðbrögð hvítra íbúa borgar-
innar. Hún neyddist til að yfirgefa
Montgomery og flytja til Detroit í
Michigan nokkrum árum síðar eftir
að hafa henni höfðu borist fjölmarg-
ar morðhótanir. ■
Mannréttindafrömuöurinn
Rosa Parks lést á mánudag.
Flótti úr fang-
elsi í Guatemala
Yfirvöld í Guatemala hafa
hafið rannsókn á flótta úr einu
alræmdasta fangelsi landsins
um síðustu helgi. Nítján fangar
flúðu fangelsið sem er í bænum
Escuintla, um 80 km sunnan
af Guatemala-borg á laugardag.
1 hópnum voru meðal annars
fangar sem höfðu verið dæmdir
til langrar fangelsisvistar fyrir
alvarlega glæpi svo sem morð,
nauðganir og mannrán.
Fangelsið sem fangar nefna
gjarnan „litla víti“ sín á mflli
vegna þess hve aðstæður þar
eru hræðilegar er í gömlu
virki sem er að hruni komið.
Fangarnir grófu 200 metra
löng göng úr einum klefanum
sem enduðu hinum megin
við fangelsisgirðinguna, mitt
á milli tveggja varðturna.
Meira en 20 starfsmenn
fangelsisins voru hnepptir í
gæsluvarðhald til að hægt væri
að yfirheyra þá en grunur leikur
á að sumir þeirra kunni að
hafa verið viðriðnir flóttann.
Marokkómenn viðurkenna
að hafa skotið flóttafólk
Marokkóskir innf lytjendur leiddir á brott af lögreglu eftir að þeir reyndu að komast yfir
á spænskt umráðasvæði í borginni Melilla í Marokkó fyrr í mánuðinum.
Stjórnvöld í Marokkó hafa viður-
kennt að marokkóskir landamæra-
verðir hafi skotið fjóra afríska flótta-
menn til bana þegar þeir reyndu að
komast inn á spænska umráðasvæð-
ið í borginni Melilla fyrr í mánuðin-
um. Atvikið varð til þess að Spánverj-
ar og Marokkómenn voru harðlega
gagnrýndir fyrir að beita inflytjend-
ur harðræði þegar þeir reyndu að
komast til Evrópu. Sex manns létu
lífið í áhlaupi á landamæragirðingu
sem aðskilur spænska umráðasvæð-
ið í Melilla frá Marokkó þann 6.
október. Rannsókn spænskra heryf-
irvalda leiddi í ljós að spænskar her-
sveitir hefðu ekki átt hlut að máli í
drápunum.
í nýrri skýrslu frá innanríkisráðu-
neyti Marokkó segir að fjórir inn-
flytjendanna hafi fallið í skothríð
marokkóskra öryggissveita. Ekki
er ljóst hvort hinir tveir hafi einnig
verið skotnir til bana eða hvort þeir
hafi látist í troðningnum sem varð í
kjölfar skothríðarinnar.
Neita að hafa skilið flótta-
fólk eftir í eyðimörkinni
Mohammed Ben Aissa, utanríkis-
ráðherra Marokkó, sagði í gær að at-
burðurinn hefði verið hörmulegur.
Lauqawgi69 $ t-351 79M hokuspokuS.ÍS
Ríkisstjórn Marokkó neitar enn sem
fyrr að hún hafi með skipulegum
hætti skilið fjölda flóttafólks eftir í
eyðimörkinni án vatns eða matar til
að stemma stigu við öldu ólöglegra
innflytjenda sem skollið hefur á
landinu að undanförnu. Læknar án
landamæra og önnur mannúðarsam-
tök hafa aftur á móti sýnt fram á hið
gagnstæða. ■
BSIB8SHKB
FULL BUÐ AF FALLEGUM EFNUM!
* Bútasaumsefni frá 950kr.m.
■ Tvíbreið efni 2.74m frá 1250 kr.m.
■ Óbleikt léreft 1.12m á 380kr m./3.05m. á 1230 kr.m
■ Ódýr bómullarefni 450-590 kr.m.
■ Bómullarvatt 2.3m á 975 kr. m.
■ Fast2 Fuse (fyrirskálagerðina) 71 cm á 1475 kr.m
■ Poly-fil tróð 340gr.poki 570kr.
Gerið verðsamanburð!
P.S. NÝ ÍTÖLSK NÁTTFÖT
OG VELÚRFATNAÐUR
<Ðiza efif
Ingólfsstræti 6,
sími 561-4000 www.diza.is
opið
11- 18 virka daga,
12- 16 laugardaga
Lögregla við vettvangsrannsókn í bænum Guernica í norðurhluta Spánar.
Sprengjur við
dómshús á Spáni
Sprengjur sprungu við fjögur dóms-
hús á Spáni snemma í gær og grun-
ar lögreglu að Aðskilnaðarsamtök
baska beri ábyrgð á þeim. Bygging-
ar skemmdust í sprengingunum en
enginn slasaðist að sögn yfirvalda.
Lögregla segir að maður sem
sagðist vera fulltrúi samtakanna
hafi hringt á ritstjórnarskrifstofur
dagblaðsins Gara skömmu áður en
ein sprengjan sprakk í ruslatunnu í
baskabænum Guernica.
Einnig sprungu tvær sprengjur
í bæjunum Ordizia og Amurrio í
baskahéruðum og fjórða sprenging-
in átti sér stað í bænum Berriozar í
Navarre-héraði.
Næstum 850 manns hafa farist í
árásum Aðskilnaðarsamtaka baska
síðan 1968 en samtökin, sem berjast
fyrir sjálfstæðu ríki baska, eru skil-
greind sem hryðjuverkasamtök af
spænskum yfirvöldum, Evrópusam-
bandinu og í Bandaríkjunum. Árás-
irnar hafa átt sér stað í norðurhluta
Spánar og suðvesturhluta Frakk-
lands en lögregluyfirvöld í báðum
löndunum hafa handtekið fjölda
meintra meðlima samtakanna á
undanförnu ári og þar á meðal eru
margir háttsettir foringjar. ■
Rannsókn áflugslysinu í Nígeríu:
Leita aðstoðar
Bandaríkjamanna
Yfirvöld í Nígeríu hafa farið fram á
aðstoð frá Bandaríkjamönnum við
rannsókn á hvað olli flugslysinu
sem varð 117 manns að bana á laug-
ardag. Babalola Borishad ráðherra
flugmála útilokar ekki að brögð
kunni að hafa verið í tafli en þang-
að til að annað kemur í ljós verði
litið svo á að um slys hafi verið að
ræða. Ekki hefur fengist viðhlítandi
skýring á því hvað olli slysinu. Einn
sjónarvottur segir að sprenging
hafi orðið í farþegaflugvélinni áður
en hún hrapaði til jarðar og sumir
telja að flugvélin hafi orðið fyrir eld-
ingu. Flugvélin missti samband við
flugturn um fimm mínútum eftir
flugtak frá Murtala Muhammed al-
þjóðaflugvellinum í Lagos. Neyðar-
Rannsóknarmenn við störf á staönum þar
sem Boeing 737-200 flugvél hrapaöi á
laugardaginn.
kall barst frá flugmönnum skömmu
áður en flugvélin hvarf af ratsjám.
Flugvélin hrapaði í nágrenni Lissa
tæpa 50 km frá flugvellinum 1 Lagos
og fórust allir um borð. ■