blaðið - 26.10.2005, Page 30
30 I ÍPRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 blaöiö
Breytingar á stjórn UMFÍ
44. sambandsþing UMFÍ (Ung-
mennafélags íslands) var haldið
um síðastliðna helgi á Egilsstöðum.
Um 100 þingfulltrúar sóttu þingið.
Meðal tillaga sem samþykktar voru
á þinginu var að sambandsþingið
felur stjórn UMFÍ að hrinda í fram-
kvæmd uppbyggingu nýrra aðal-
- stöðva hreyfingarinnar. Stefnt verði
síðan að því að þeirri uppbyggingu
verði lokið á 100 ára afmæli UMFÍ
sem verður árið 2007. Á þinginu
var einnig samþykkt að fela stjórn
að gera kostnaðaráætlun og grunn-
drög að teikningum sem verða svo
lögð fyrir formannafund UMFÍ til
samþykktar.
Breytingar urðu á stjórn UMFÍ
en í aðalstjórn sitja nú: Ásdís Helga
Bjarnadóttir, Helga Guðjónsdóttir,
Björn Ármann Ólafsson, Anna R.
Möller, Hringur Hreinsson og Ein-
ar Jón Geirsson. í varastjórn eru
Jóhann Tryggvason, Haraldur Þór
Jóhannsson, Einar Haraldsson og
Eyrún Harpa Hlynsdóttir.
Björn B. Jónsson var endurkjörinn
formaður UMFÍ og Sæmundur Run-
ólfsson verður áfram framkvæmda-
stjóri.
Alls lágu 49 mál fyrir þinginu en
þó nokkur þeirra náðu ekki sam-
þykki.
Hér að neðan eru svo helstu sam-
þykktir á sambandsþingi UMFÍ á
Egilsstöðum.
44. sambandsþing UMFÍ 22.-23.
október 2005 á Egilsstöðum felur
stjórn UMFÍ að hrinda í fram-
kvæmd uppbyggingu nýrra aðal-
stöðva hreyfingarinnar.
Þingið felur stjórn UMFÍ, í sam-
vinnu við ungmennaráð, að standa
fyrir Landsþingi ungmenna frá öll-
um aðildafélögum UMFÍ.
Þingið felur stjórn að koma á
átaksverkefni vegna vaxandi offitu
barna. Leitað verði samstarfs við
aðra aðila er vinna að sambærileg-
um verkefnum. ■
Shearerþarf
íaðgerð
Enski leikmaðurinn Alan Shearer,
sem leikur með enska úrvalsdeild-
arliðinu Newcastle United, þarf að
fara í aðgerð vegna meiðsla í nára.
Þetta er mikið áfall fyrir Shearer
og Newcastle en Iiðinu hefur ekki
gengið sem best það sem af er
leiktíð. Michael Owen, leikmaður
Newcastle, lék ekki með liðinu síð-
astliðna helgi þar sem lítilsháttar
meiðsli hrjá hann en meiðsli She-
arer eru mun alvarlegri og búist
er við að Shearer verði frá keppni
í allt að 6-8 vikur. Shearer er orð-
inn 35 ára gamall og er á sínu síð-
asta keppnistímabili sem leikmað-
ur hjá félaginu. Allir þeir sem
þekkja til nárameiðsla vita að slík
meiðsli geta verið mjög erfið við-
ureignar og oft er það nú þannig
að ef leikmenn lenda í nárameiðl-
sum á annað borð, þá ná þeir sér
aldrei að fullu. ■
Sportdeildin kynnir líkamsræktartæki frá hinum
viðurkennda þýska framleiðanda Hammer
20%
kynningarafsláttur
Sportdeildin kynnir þýsku gæðavörurnar frá Hammer
sem hafa slegið í gegn í líkamsræktarheiminum.
Af þessu tilefni bjóðum við 20% afslátt af Hammer
vörum út októbermánuð.
Tómstundir
Höfum einnig úrval af poolborðum,
fótboltaspilum og fleiri leiktækjum
frá breska framleiðandanum BCE.
Allt á 20% afslætti.
rALK
m
DEIL.DIM
TÓMSTUNDIR • LÍKAMSRÆKT • AFÞREYING
HAMMER HLAUPABRETTI
VERÐ KR.127.200.-
HAMMER STIGTÆKI
VERÐ FRÁ KR. 23.600.-
Hole in One
GOLFVERSLUN
Sportdeildin • Bæjarlind 1-3 • sími 577 4040 • Opið mán. - fös. 10-18 og lau. 10-16
Project CDGVUng
Dcww**dV>
Vétng)
Titie Ffont
Df Awrng No Fl08-1f3
Date 23 10 2005
Miklar breytingar
í Formúlunni
Byltingarkenndar reglubreytingar
verða á Formúlu r kappakstrinum
á næsta keppnistímabili. FIA og for-
ráðamenn keppnisliða samþykktu
breytingarnar á fundi í London í
gær. Max Mosley, forseti FIA, lagði
tillögurnar fram fyrir nokkru og
þær voru samþykktar í gær.
Ný útfærsla á tímatökum lítur
dagsins ljós árið 2006 sem verður
með útsláttarfyrirkomulagi í tveim-
ur umferðum. I þriðju og síðustu
umferðinni munu 10 fljótustu bíl-
arnir keppa í 20 mínútur um besta
rásstað á ráslínunni.
Þrátt fyrir þessar breytingar mun
tímatakan ekki verða lengri en ein
klukkustund og því er aðeins um
að ræða breytingar sem auka eiga
spennuna.
Dekkjaskipti í miðri keppni verða
leyfð á ný en í ár fengu ökumenn
ekki að skipta um dekk sem olli oft
vandræðum í mótum þar sem keppn-
isdekk þurftu að endast heilt mót.
Á fundinum í London samþykktu
keppnisliðin byltingarkenndan aft-
urvæng sem FIA kom með tillögu
að. Tveir sjálfstæðir afturvængir
verða á keppnisbílum árið 2007 og
að auki verður ný útgáfa af keppnis-
dekkjum tekin í notkun, það verða
dekk sem verða með engum rauf-
um, eða „slikkar" eins og þeir eru
kallaðir. Slík dekk eru miklu grip-
meiri. Þessar tillögur telja menn að
verði til þess að framúrakstur verði
auðveldari fyrir vikið. Sannarlega
miklar breytingar á ferðinni í Form-
úlunni á næstu árum.
Hér að ofan er mynd af breyting-
unum á væng Formúlu 1 bílanna. ■
Ásgeir til Fram
Framarar réðu í gær Ásgeir Elíasson
sem næsta þjálfara meistaraflokks
karla í knattspyrnu. Ásgeir er ekki
ókunnur herbúðum Fram en þetta
er í þriðja sinn sem Ásgeir er ráð-
inn þjálfari liðsins. Hann á glæstan
feril að baki sem þjálfari Fram. Þrír
íslandsmeistaratitlar og þrír bikar-
meistaratitlar auk annarra smátitla.
Ásgeir var siðast hjá Fram árið 1999
og hélt þaðan til Þróttar. Það er mjög
sjaldgæft að sami maður sé ráðinn
þrisvar til sama félags sem þjálfari
en Ásgeir og Framarar sömdu til
þriggja ára með uppsagnarákvæði
eftir hvert ár.
Freyr og Ingvar skrifuðu
undir við Fram
Framarar hafa að undanförnu verið
að ganga frá samningum við leik-
menn sína en oftar en ekki hefur
liðið sem hefur orðið fyrir því óláni
að falla um deild lent í því að missa
stóran hluta leikmanna sinna til
liða í efri deild.
Framarar hafa gengið frá samn-
ingi við alla leikmenn sína og þá
hefur bæst í hópinn svo um munar
þar sem Helgi Sigurðsson, sem leik-
ið hefur með AGF í Danmörku, skrif-
aði undir hjá Fram og leikur með
þeim næstu tvö árin.
{ gær var svo gengið frá samn-
ingi við Ingvar Ólason um að hann
verði áfram hjá Fram næstu tvö árin.
Ingvar hefur verið einn aðalmaður
Fram undanfarin ár og því ánægju-
legt fyrir Safamýrarpilta að Ingvar
verði þar áfram.
Þá hefur Freyr Karlsson snúið
„heim“ á ný en hann lék með Þrótti
í sumar í Landsbankadeildinni.
Freyr er gamall og góðu Framari og
eru Framarar ánægðir að fá hann
aftur til sín. ■
Sigursteinn verður
aðstoðarmaður feits
KR-ingar gengu í gær frá samningi
við Sigurstein Gíslason um að vera
aðstoðarþjálfari meistaraflokks
karla hjá félaginu. Sigursteinn tók
við af Magnúsi Gylfasyni í sumar
þegar Magnús var rekinn en Sigur-
steinn hefur undanfarin ár verið
þjálfari 2. flokks KR.
KR-ingar hugsa stórt til næsta
sumars og þeir hafa verið að taka til
í leikmannamálum hjá sér að undan-
förnu.
Sigurvin Ólafsson er farinn til FH
en undanfarna daga hafa KR-ingar
verið að semja við nokkra leikmenn.
Sigmundur Kristjánsson verður
með KR næstu tvö árin sem og Dali-
bor Pauletic. Sölvi Davíðsson og
Ágúst Gylfason framlengdu um eitt
ár hjá KR og þá má ekki gleyma að
Björgólfur Takefusa er kominn til
KR frá Fylki. Björgólfur hefur verið
með Fylki í Árbænum undanfarin
ár en náði ekki að sýna þar mikið
líkt og hann gerði hjá Þrótti undir
stjórn Ásgeirs Eliassonar. Þá hefur
Þórður Guðjónsson verið sterklega
orðaður við KR að undanförnu en
Þórður er samningsbundinn við
Stoke City á Englandi en er á heim-
leið næsta sumar. Þrjú lið eru sögð
líklegasti lendingarstaður Þórðar.
ÍA, KR og FH. ÍA og KR eru sögð
mun líklegri en FH þar sem Ólafur
og Teitur Þórðarsynir eru við stjórn-
völinn þar á bæjum. ■