blaðið - 26.10.2005, Page 34
34 I KVIKMYNDIR
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 blaðiö
Ný íslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminn
Africa Úriited
Sýnd kl. 6,8 og 10 Sýnd kl. 6,8.15 og 10.20 B.i. 16 ára
400 kr. í bíó! Gildlr á allar sýnlngar merktar með rauðu
SlMI
Nu-olf Kiflmmi Will 1 o-r
l)(‘\\ii(*hrvl
GÖLDROTT gamanmvndi ■
★ ★★
-SV MBL f A
Sýnd Id. 6 og 8
STELTH
I Sýnd kl.8 og 10.30 B.L 14 ára
Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára
Bargarbid
History Of Violence
Africa Unlted
Doom
Transporter II
kl.8
kl. 6 Ofl 8
kl. 8 og 10
kl. 10
HUGSAÐU STÓRT
★ ★★★
Frá teikstjómm There Is Something About Mary
Eftir bók Irá hotundi /'J
AboutaBoy ÆSÆ
■Ný fslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminn
Sýnd kl. 5.40,8 og 10.45
I Frá framleiðendum The Professiunal
og La Femme Nikita
Fór beint á toppinn f USA M
Sýnd kl. 4 i þrívidd
Sýnd kl. 4,6,8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd I Lúxus kl. 4 og 10
Sýnd kl. 3.50 með fslensku tall.
The Raveonettes - Pretty in Black
Danskt brimbrettapopprokk
Þegar maður var endanlega búinn að gefa dönsku
tónlistarsenuna upp á bátinn og hélt að hún stæði
fyrir ekkert annað en útþynnt poppvæl þá spretta
fram athyglisverðar hljómsveitir líkt og The Raveo-
nettes. The Raveonettes er þó íslendingum ekki alveg
ókunn enda spilaði hljómsveitin á Innipúkanum sl.
ágústmánuð. Platan Pretty in Black er önnur breið-
skífa hennar en sú fyrri hét Chain Gang of Löve, 2003.
Einnig gaf hljómsveitin út smáskífuna Whip It On
Was árið 2002.
Sígilt rokk
Hljómsveitin er með afskaplega sérstakan stíl sem
mætti lýsa sem blöndu af brimbrettarokki og hinu
sígilda rokki sjötta áratugarins. Stundum verður þó
ekki hjá því komist að greina þennan all sérstaka
skandinavíska hljóm sem minnir eilítið á 22 Pistep-
irko svo eitthvað dæmi sé tekið. Mörg lög á plötunni
eru ansi góð og er þá helst hægt að nefna Sleepwalk-
ing og Love in A Trashcan sem bæði eru hreint af-
burða brimbrettarokklög í poppstíl, Uncertain Times
sem er bara fínt rokk-popp lag og loks You Say You
Lie sem er líklega besta lagið á plötunni að mínu mati.
Inn á milli eru lög í rólegri kantinum sem draga plöt-
una alls ekki niður heldur stendur, eftir hlustun, ansi
þétt og eftirminnileg plata. Á plötunni má líka finna
eitt sígilt ábreiðu- eða tökulag My Boyfriend’s Back
sem á ágætlega við með hliðsjón af stíl hljómsveitar-
innar.
Einfaldir textar
Hljóðútsetning er ansi góð en á köflum en kannski
eilítið flöt og mætti alveg vera hrárri enda um þannig
tónlist að ræða. Þetta gefur plötunni popp yfirbragð
sem þó bragðast ekkert illa enda er lagasmíðin í flest-
um tilvikum afar góð. Textarnir eru afar „retró“ eins
og platan öll og fjalla oftar en ekki um samskipti
kynjanna ef svo má að orði komast. Þeir endurspegla
kannski ekki einhverja innri skáldasnilld hljómsveit-
armeðlima en standa í einfaldleika sínum fyrir sig.
Platan er mjög grípandi en alls ekki af þeirri tegund
sem maður er fljótur að fá leið á. Hún er heilsteypt og
batnar bara með hverri hlustun.
★★★★☆
hoskuldur@vbl.is
Heimsfrumsýning
Legend of Zorro
Goðsögnin Zorro snýr aftur í The
Legend of Zorro sem verður heims-
frumsýnd föstudaginn næstkom-
andi, 28. október, í Laugarásbiói,
Smárabíói, Regnboganum og Borg-
arbiói Akureyri. Antonio Banderas
og Catherine Zeta-Jones snúa aftur í
hlutverkum sínum og Martin Camp-
bell sest aftur í leikstjórastólinn.
Þetta er ævintýraleg spennumynd
sem höfðar til allra. í myndinni,
The Legend of Zorro, eru Alejandro
(Banderas) og Elena (Zeta-Jones) gift
og eiga 10 ára son Joaquin (Adrian
Alonso). Þrátt fyrir að Alejandro sé
áfram með grímu Zorro til að verja
fátæka íbúa Kaliforníu þá er hann
klemmdur á milli skyldu sinnar
sem Zorro og þörfinni fyrir að lifa
venjulegu lífi. ■
Batman Begins
Leikstjórinn Chris Nolan sem gerði meðal
annars Memento leikstýrir og færir Batman
nær 21. öldinni. Bruœ Wayne horfir upp á
foreldra sina myrta og fyllist hatri gagnvart
glæpamönnum. Eftir langa dvöl I Asiu srrýr
Bruce aftur til Gotham, sem er að drukkna I
glæpum. I baráttu sinni gegn glæpum
verður Bruce Wayne að Batman.
e/IU CAIVE UIÍS0U HOLMCS 0L0MAU
FREEMAN
c'o^og
Tilboð sem gildir aðeins í verslunum BT