blaðið - 08.11.2005, Qupperneq 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 Waóið
Héraðsstjóri
lifir af árás
Dauðsfall í kjölfar óeirða
Ný komið
^Duxur.f^f
Grímsbævið Bústaðarveg • Ármúta 15 • Hafnarstræti 106
600 Akureyri • Sfmi 588 8050. 588 8488. 462 4010
email: smartgina@simnet.is
græna linan
’arian restaurant
Fljótlegt að koma við og taka með sér rétti
Græna línan, Bæjarhrauni 4, S:565-2075
Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti
Perú, var handtekinn í Chile í gær,
aðeins örfáum tímum eftir komu
hans til landsins. Fujimori sem er
67 ára var handtekinn á grundvelli
framsalskröfu stjórnvalda í Perú
en hann er eftirlýstur vegna ákæra
um spillingu og mannréttindabrot.
Hann kom til Chile á sunnudag án
þess að gera boð á undan sér til að
vekja athygli á framboði sínu til for-
seta Perú. „Ég hef í hyggju að dvelja
tímabundið í Chile til að efna loforð
mitt við stóran hluta perúísku þjóð-
arinnar sem hefur hvatt mig til að
bjóða mig fram til forseta Perú í
kosningunum 2006,“ sagði hann.
Fujimori lýsti því yfir fyrir fáeinum
vikum að hann hyggðist bjóða sig
fram í forsetakosningunum í land-
inu á næsta ári þrátt fyrir að hann
ætti yfir höfði sér handtöku ef hann
kæmi til landsins.
Lögregla sagði að Fujimori yrði í
Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perú,
var handtekinn í Santiago í Chile í gær.
haldi á meðan beðið væri ákvörðun-
ar um hvað gert yrði við framsals-
kröfu stjórnvalda í Perú. Fujimori
var forseti Perú frá 1990 til 2000.
Hann hefur dvalið í Japan síðan
hann hraktist frá Perú árið 2000 en
hann er af japönsku bergi brotinn
og með japanskan ríkisborgararétt.
Þar sem hann er japanskur ríkis-
borgari hefur ekki verið hægt að fá
hann framseldan frá Japan. ■
Ofbeldi fœrist enn í aukana í Frakklandi. Tveir lögreglumenn
sœrðust alvarlega eftir skotárás og kveikt var í meira en 1400
bílum aðfararnótt mánudags.
Slokkviliðsmaður þerrar augun inni í rústum kvikmyndavers sem brann í Asniéres-sur-
Seine, úthverfi Parlsar.
Reynt var að ráða Sher Mohammed,
héraðsstjóra í Helmand-héraði í
suðurhluta Afganistans, af dögum
í gærmorgun. Árásarmaðurinn
sprengdi bíl sinn í loft upp þegar Mo-
hammed var á leið á skrifstofu sína í
héraðshöfuðborginni Lashkar Gah.
Héraðsstjórinn slapp án meiðsla en
tilræðismaðurinn missti báða hend-
ur og fætur. Leyniþjónustumenn
reyndu í gær að fá hann til að gefa
sér eins miklar upplýsingar og hægt
væri enda var honum vart hugað líf.
Maður sem sagðist vera talsmaður
stuðningsmanna ríkisstjórnar Tali-
bana sem steypt var af stóli árið
2001 lýsti yfir ábyrgð á árásinni.
„Sjálfsmorðsárásin var gerð af ein-
um af hinum heilögu stríðsmönnum
okkar. Hann hét Salahuddin og var
55 ára,“ sagði talsmaðurinn. Hann
sagði að árásinni hefði verið beint
gegn hersveitum Bandaríkjamanna
sem hafa bækistöðvar nálægt skrif-
stofu héraðsstjórans. Talsmaður hér-
aðsstjórans sagði að í gærmorgun
hefði hann haft í hyggju að funda
með talsmönnum Bandaríkjahers
og öryggissveitum til að ræða örygg-
ismál í hinu róstursama héraði. ■
Maður á sjötugsaldri sem misst
hafði meðvitund eftir barsmíðar í
Stains, úthverfi Parísar, lést í gær á
sjúkrahúsi. Þetta er fyrsta dauðsfall-
ið sem tilkynnt er um síðan óeirðirn-
ar hófust í úthverfum borgarinnar
fyrir 12 dögum. f Grigny sunnan
við París þurfti að flytja tvo lögreglu-
menn alvarlega slasaða á sjúkrahús
eftir að skotið hafði verið á þá með
haglabyssu. Hvorugur mun þó vera
í lífshættu. Félagar lögreglumann-
anna sögðu að unglingagengi hefði
setið fyrir þeim og ráðist á þá.
Á fjórða tug lögregluþjóna særð-
ust í átökum við óeirðaseggi aðfarar-
nótt mánudags og eldur var lagður
að meira en 1400 farartækjum um
land allt. Kvikmyndaver brann til
grunna og reynt var að kveikja í
fjölda opinberra bygginga. Þetta eru
mestu óeirðir í landinu í áratugi og
hefur ofbeldið aukist á hverjum degi
og breiðst út til fleiri borga og lands-
hluta. Ennfremur var kveikt í fimm
bílum fyrir framan aðalbrautar-
stöðina í Brussel í Belgíu og er það í
fyrsta sinn sem óeirðirnar berast út
fyrir landamæri Frakklands.
Ríkisstjórnir nokkurra landa
hafa varað þegna sína við því að ferð-
ast til Frakklands vegna ofbeldisins
sem þar geisar.
Yfirvöld sæta harðri gagnrýni
Frönskyfirvöld hafa verið harkalega
gagnrýnd fyrir vangetu þeirra við að
stöðva ofbeldið þrátt fyrir að hafa
beitt fjölmennu lögregluliði gegn
óeirðaseggjum og hvatt til friðar.
Jacques Chirac, Frakklandsforseti,
hélt neyðarfund með ríkisstjórn-
inni á sunnudag vegna ástandsins.
,Lögin verða að eiga síðasta orðið,“
sagði Chirac eftir fundinn. „Frakk-
ar eru staðráðnir í því að vera sterk-
ari en þeir sem vilja sá fræjum of-
beldis eða ótta og þeir munu verða
handteknir, dæmdir og þeim refsað,“
sagði Chirac. Einnig hvöttu stærstu
samtök múslima í Frakklandi til
þess að látið yrði af öllu ofbeldi og
eyðileggingu. ■
Fujimori hand-
tekinn í Chile
Sýrlendingar íhuga
beiðni Sameinuðu þjóð-
anna:
Mehlis vill
yfirheyra mág
forsetans
Sýrlendingar hafa ekki svarað
formlegri beiðni Sameinuðu
þjóðanna um að fá að yfirheyra
sex sýrlenska embættismenn
í tengslum við morðið á Rafik
al-Hariri, fyrrverandi forseta
Líbanons. Sýrlenskur embættis-
maður sem ekld vildi láta nafns
sín getið sagði þó að verið
væri að íhuga beiðnina í gær.
Dagblaðið Al-Hayat hefur eftir
heimildarmönnum í Líbanon
að einn sexmenninganna sé
Assef Shawkat, mágur Bashar al-
Assads, forseta Sýrlands. Shawk-
at var háttsettur yfirmaður
innan leyniþjónustu sýrlenska
hersins. Þrír aðrir úr hópi sex-
menninganna voru einnig hátt-
settir innan leyniþjónustunnar
og tveir þeirra gengust undir
herþjálfun í Beirút um það
leyti sem morðið var framið.
Þýski saksóknarinn Detlev
Mehlis sem hefur stjórnað
rannsókninni hefur kvartað
yfir því að sýrlensk stjórnvöld
og embættismenn séu ekki
nógu samvinnuþýð. Öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna fór
fram á það í lok síðasta mán-
uðar að Sýrlendingar sýndu
rannsóknarnefndinni fullan
samtarfsvilja annars yrði gripið
til „frekari aðgerða" gegn þeim.
Dauðadæmd-
ur flóttafangi
handsamaður
Flóttafangi sem dæmdur hafði
verið til dauða var handtekinn
í Louisiana á sunnudag eftir
að hafa verið þrjá daga á flótta.
Lögregla handtók Charles
Victor Thompson þar sem hann
var ofurölvi fyrir utan vínbúð í
bænum Shreveport í Louisiana.
Thompson tókst að flýja
þegar til stóð að flytja hann
á milli fangelsa í Houston í
Texas á fimmtudag með því
að klæðast borgaralegum
fötum og villa á sér heimildir.
Thompson sem er 35 ára var
upphaflega sakfelldur árið 1999
fyrir að hafa skotið fyrrverandi
kærustu sína og vin hennar
til bana en hlaut dauðadóm
í lok síðasta mánaðar.
(JUtTILBOÐ
aðeins
kr. á mann
5777000
Hraunbær 121
Tilboöiö gildir alla virka daga
frá kl 11:00 til 17:00