blaðið - 08.11.2005, Blaðsíða 16
16 I WEYTENDUR
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 200S blaöiö
Jólabókaverðstríð að hefjast
Nú fer jólavertíðin í hönd hjá bóksölum. Fjöldi titla er þegar kominn í sölu og fleiri eiga eftir að bætast
við. Blaðamaður komst að því að tveir bókatitlar vinsælla bóka eru þegar komnir á tilboðsverð og eiga
eflaust eftir að lækka meira þegar nær dregur jólum. Þannig voru Vetararborgin og Myndin af pabba
báðar á 4.690 hjá Máli og menningu og Eymundsson en hafa nú lækkað umtalsvert. Undanfarin ár hafa
matvöruverslanir boðið upp á bækur fyrir jól og kappkostað að selja þær lægra en bókabúðirnar. Á móti
kemur að bókabúðir státa af mun fleiri titlum. Þannig komst blaðamaður að því að bókabúð Eymundsson-
ar státar af 8-9000 titlum á meðan fjöldi titla í matvöruverslunum er nokkur hundruð.
Margrét Kristín Pálsdóttir hjá Máli
og menningu segir fólk vera farið
að kaupa jólabæk- urnar. Mál
og menning heldur
úti metsölulista
vikunnar og þann-
ig geta kaupendur
áttað sig á hvað er
vinsælast hverju
sinni. „Þær
bækur sem eru
vinsælastar hjá
okkur núna
eru Valkyrjur
eftir Þráinn
Bertelsson,
Skuggabaldur
eftir Sjón og
sömuleiðis
Argóarflísin
eftir sama
h ö f u n d
segir Margr-
ét og bæt-
ir við að
Sjón hafi
verið vinsæll frá því
hann fékk bókmennta-
verðlaun Norður-
landaráðs. Marg-
ét segir bókina
um Jörðina líka
mjög vinsæla
ásamt bókinni Við
enda hringsins eft-
ir Tom Eglan.
Benedikt Sigurðs-
son verslunarstjóri
í bókaverslun Ey-
mundssonar segir
söluna fara mjög vel
á stað og að hún sé
alltaf að færast fyrr á
árið. „Bækurnar eru
að koma fyrr út nú en
áður og útgáfa er orðin
dreifðari en hún var,“
segir Benedikt. Hann
segir að það eigi eflaust
eftir að verða verðstríð
á bókum fyrir þessi jól
eins og undanfarið. „Vin-
sælustu titlarnir fara á
kostnaðarverði vegna verð-
stríðsins,“ segir Benedikt og
bætir við að það græði enginn sem
selji bækurnar á því verði. Hann er
þó bjartsýnn á jólasöluna og segir
hana fara vel á stað.
Hagkaup býður upp á 300 bóka-
titla fyrir þessi jól að sögn Hildar
Guðlaugsdóttur innkaupamanns
hjá Hagkaupum. Um síðustu helgi
var tilboð á hókum hjá þeim en Hild-
ur segir verðið endurmetið frá degi
til dags. „Jólavertíðin er rétt að byrja
en samkeppnin eykst þegar nær
dregur jólum,“ segir Hildur. Hún seg-
ir Hagkaup kappkosta að hafa lægra
verð en bókabúðirnar.
1 Bónus fengust þau svör að bóka-
vertíðin þar yrði ekki komin á fullt
skrið fyrr en í lok nóvember. Sam-
kvæmt upplýsingum er Vetrarborg-
in að koma í verslanir á allra næstu
dögum og er gert ráð fyrir að hún
verði á 3.599 kr. Hjá Bónus er kapp-
kostað að vera með lægsta verðið
og þeir kanna verð hjá öðrum bók-
sölum reglulega. Bónus bíður upp á
200-250 titla í stóru búðunum. ■
Verðsamanburður á tveimur bókatitlum
Vetrarborgin Myndin af pabba
Mál og menning 3.750 3.280
Eymundsson 3.750 3.280
Hagkaup 3.987 2.788
Bónus 3.599 2.899
<K> HYurmm
hefur gæðin
Ven
Bí 11 á mynd : Hyun
I;
ÁreiSanleiki
og lúxus
Sigurvegari í alþjóólegum gæóakönnunum
,>8&L - Grjóthálsi 1 - 11I Reykja\
Qj»ÍÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 10 TIL l8 OG tAU
^r
REYKJAItÉ’SBÆ SÍMI 921 4A44 * JG BÍLAR EGILS
ÍLASALA AKUREYRAR
__