blaðið - 08.11.2005, Blaðsíða 17
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2005
NEYTENDUR I 17
Losnið við jólaösina, verslið á netinu
Nú þegar jólin nálgast er ekki
seinna vænna fyrir þá sem vilja
vera tímanlega í jólainnkaupun-
um til að losna við mestu ösina að
fara að huga að þeim. Þægilegasta
leiðin er vitanlega að versla þær á
netinu og þurfa því aldrei að stíga
fæti inní verslunarmiðstöð. Þá er
bandaríski dollarinn afar lágur
um þessar mundir, eða rétt um 60
krónur, og því tilvalið að reyna
að versla sem mest í þeirri mynt.
Blaðið skoðaði nokkra möguleika
sem eru í boði.
Bækur, DVD-myndir
og geisladiskar
Á Amazon er hægt að kaupa bæk-
ur, geisladiska og DVD myndir á
prýðilegu verði. Þar hófst til að
mynda alveg ótrúleg útsala á DVD
myndum nýlega og eru þær boðnar
til sölu á verði sem nær allt niður í
6,99 dollara á hverja mynd og allt að
35% afsláttur er á vinsælustu mynd-
unum. Þá er framboð á erlendum
bókum mjög frambærilegt fyrir
þá sem hyggjast gefa harða pakka.
Samkvæmt upplýsingum frá Toll-
stjóraembættinu þá skiptir þó máli
hvaðan er pantað þegar reiknaður er
út kostnaður þar sem að almennur
io% tollur leggst á allar hljómplötur
sem pantaðar eru utan EES-svæð-
isins og þar af leiðandi allar hljóm-
plötur frá Bandaríkjunum. Ofan
á verð allra innfluttra vara leggst
líka ætíð 24,5% virðisaukaskattur.
www.amazon.com
ShopUsa
ShopUsa er ekki eiginleg verslun held-
ur fyrirtæki sem hjálpar neytendum
að komast í tæri við vefverslanir í
Bandaríkjunum og þannig nálgast
vörur á lægsta mögulega verði. Mark-
mið ShopUsa er að gefa viðskiptavin-
um sínum fleiri valmöguleika í versl-
un enda má finna ótal vörutegundir
og vörumerki á veraldarvefnum sem
fást ekki á íslandi. Þá er vefverslun
notendavænni en önnur að því leyti
að hún er opin og aðgengileg allan
sólarhringinn en er ekki bundin
annmörkum opnunartíma.
Munurinn á því að panta í gegn-
um ShopUsa og að panta sjálfur á
netinu er fólginn í því að öll papp-
írsvinna og tollfrágangur er unnin
fyrir viðskiptavininn og hann greið-
ir einungis eitt afgreiðslugjald ofan
á erlenda kaupverðið. Viðkomandi
netverslun sendir þá vöruna til Shop-
Usa á íslandi sem síðan sér um að
afhenda viðskiptavinunum vöruna
gegn fyrirfram umsömdu gjaldi.
www.shopusa.is
Veggfóður fyrir ævintýragjarna
Fyrir þá sem eru orðnir þreyttir á
nánasta umhverfi sínu er Wallpaper.
com tilvalin vefsíða. Þar er hægt að
versla sér alveg nýjan veruleika á mjög
einfaldan og handhægan hátt. Meðal
þess sem er í boði er sólarströnd, him-
ingeimur, landslög af ýmsum toga eða
neðansjávarheimur til að líma á vegg-
inn og skapa stemmningu sem ekki
er hægt að ná fram með málningu.
Einnig er hægt að kaupa hefðbundn-
ari lausnir eins og ýmiskonar mynstur,
liti eða renninga auk þess sem að holl-
ráð eru gefin fyrir væntanlega vegg-
fóðrara. Því er veggfóður ffá Wallpap-
er.com tilvahnn í jólapakka þess sem
að þráir nýtt umhverfi en af einhverj-
um ástæðum kemst ekki í burtu. Um
tvær vikur tekur að fá vöruna afhenta
þannig að gott er að vera tímanlega í
pöntun. www.wallpaper.com
Kolaport-
ið er alltaf
til staðar
Ogþar er margt að sjá
Kolaportið hefur nú verið
starfrækt í miðborg Reykjavík-
ur í nær tvo áratugi og hefur
notið viðvarandi vinsælda allt
frá upphafi. Fyrstu fimm árin
var það staðsett í bilageymslu
bílastæðasjóðs Reykjavíkur-
borgar, en fluttist á neðstu
hæð Tollhússins við Tryggva-
götu árið 1994 og hefur verið
þar síðan. í Kolaportinu má
jafnan gera góð kaup á hinum
ýmsustu vörum, hvort sem
sóst er eftir góðum saltfiski,
þungarokksbolum eða ódýrum
DVD-myndum (heyrst hefur af
básum sem selja ónotaðar, nýút-
gefnar myndir á lægra verði en
kostar að leigja þær!) má alltaf
fá það aðeins ódýrara í portinu.
Sparnaður er hinsvegar ekki
eina ástæðan fyrir því að fólk
sækir Kolaportið heim um
helgar; hin sérstæða stemmn-
ing sem þar myndast getur
verið gufis ígildi. Fastagestir
portsins vita sem er að hægur
leikur er að koma sér upp bás
þar tímabundið og losa þar
með geymsluna úr greypum
gærdagsins jafnframt því
sem buddan bólgnar lítið eitt.
Komandi jólahátíð krefst bæði
hreingerninga svo og aukinna
fjárútláta, þannig að úrræða-
góðir borgarbúar gætu gert
margt vitlausara en að leggja í
bás einhverja helgina fram að
henni. Bása má panta á vefsíðu
Kolaportsins, www.kolaportid.
is, og greiða með millifærslu
- en greiðslu þarf að reiða af
hendi í síðsta lagi miðvikudag-
inn fyrir þá helgi sem ætlunin
er að starfrækja básinn. Sér-
stakir kompudagar eru haldnir
af og til og hafa verið fastur
liður í starfsemi portsins um
árabil, er þá ódýrara að leigja
bás undir notaða vöru en aðra
daga. Næstu kompudagar verða
helgina 26.-27. nóvember.
haukur@vbl.is
Auglýsingadeild 510-3744
... en gerðu kröfur um gæði
„Við hjá Leonard gerum kröfur um gæði. Verslunarlausnin LS Retail frá
Landsteinum Streng uppfyllir kröfur starfsemi okkar í Kringlunni og
Leifsstöð." Sævar Jónsson, verslunareigandi.
LS Retail frá Landsteinum Streng er verslunarlausn fyrir margþættan rekstur sem heldur
utan um alla aðfangakeðjuna á einum grunni og býr til samfellt flæði allt frá afgreiðslukassa
til skrifstofu. Þú færð skýrslur og heildaryfirsýn í umhverfi sem þú þekkirfrá Microsoft
og getur nýtt þér Outlook, Word, Excel og aðrar vörur frá Microsoft.
LS Retail er verslunarlausn fyrir fólk sem gerir kröfur um gæði!
Microsoft Business Solutions
Global ISV Partner of the Year 2005
Lausnir frá Landsteinum Streng eru notaðar I fleiri en 6.700 verslunum með yfir 20.000
afgreiðslukössum víðsvegar um heim. Meðal ánægðra viðskiptavina má nefna: IKEA.
Adidas, Debenhams, Pizza Hut, Booths supermarkets, Moss Pharmacy og Concept
Sports International (EURO 2004, Olympic Games 2004).
LandsteinarStrengur
Ármúla 7-108 Reykjavík - Sími 550 9000 - www.landsteinarstrengur.is
Microsoft
GOLD CERTIFIEP
Partrter