blaðið - 08.11.2005, Síða 35

blaðið - 08.11.2005, Síða 35
blaðió ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 KVIKMYNDIR I 35 , 400 kr. MIÐAVERÐ A ALLAR MYNDIR kl: 12 UM HELGINA í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI STÆRSTA KVIKHYNDAHÚS LANOSINS • HA6AT0RGI • S. 5301910 Robert Downey Jr. Yal Kilmer fr 9 . ldss klSS Frá hofunðl Lethal Víeapon Kynlíf. Mord. Dulúð. Velkomin í partýið. KL 5.30-8-10.30 B.l. 16 KL. 5.30-8-10.30 KL 3.50-6-8.15-10.30 0.1.12 KL. 6-8.15-10.30 KL.4 KL 6-10.30 B.1.14 KL8 B.1.14 KL.4 TWOFORTHE MONEY TWO FOR THE MONEY VIP KISS KISS BANG BANG FLIGHTPLAN WALLACE & GROMIT Itl. tal WALIACE & GROMIT enskt tal THE 40 YEAR OLD VIRGIN SKYHIGH FOUR BROTHERS TIM BURTON'S CORPSE BRIDE PACINO McCÓNAUCHEY RUSSO ÞFÍR VQRU LOCillfi ‘ GILDRil... !u<i PWF EíiíHUFR SD BJALOiM WKHtBERG tFOOR HVERSU LAN6T MYNDIR t»Ú GANGA TIL AÐ ENDURHEIMTA RAO SEM ÞÉR ER KÆRAST? HORKU SPENNUMYNO FRA LEiKSTJORA 2 FAST 2 FURIOUS 00 BOYZ 'N THE HOOD. OSKARSVEHDLAUNHAFINN AL PACINO Ell IESSINU SINU, HEFUR ALDHEI VEfílB BETRI. LA MARCHE DE L'EMPEREUR L'ENFANT THE ASSASSINATION OF R. NIXON HIPHIPHORA! KL.6-8 GRIZZLY MAN KL. 8 DIG! KL.10 GUYX KL.6 AKUREYSI c 461 4666_______KEFLAVIK C 42) 1170 TRANSPORTER2 BEWITCHED KL.8 KL8 AKUREYRI TWO FORTHE MONEY KL.8-10 MUST LOVE DOGS KL.8 FLIGHTPLAN KL.10 1 Star Trek fyrir langt komna Þann fimmtánda nóvember mun Paramount kvikmyndaverið gefa út „The Ultimate Star Trek Collecti- on“ á DVD diskum. Á vef Amazon er þegar hægt að panta útgáfuna fyr- irfram og vill svo til að nú er safnið á tilboðsverði fyrir litla 2.499 dali, eða um 150 þúsund krónur íslenskar. Með tilboðinu fær maður upphaf- legu þættina, þrjár þáttaraðir, sjö þáttaraðir af The Next Generation, Deep Space 9 og Star Trek Voyager, fjórar af Enterprise og svo auðvit- að allar Star Trek kvikmyndirnar. Samtals eru þetta ekki nema 212 DVD diskar. Fyrir hinn dygga Star Trek aðdáanda í níu til fimm vinnu ætti safnið að duga í u.þ.b. mánaðar áhorf ef miðað er við að ná fimm þáttum á virkum dögum eftir vinnu og kvöldmat en helgarnar eru notað- ar til að drekka í sig bíómyndirnar. David "Honeyboy" Edwards á íslandi David “Honeyboy” Edwards einn besti og reyndasti delta blues tón- listarmaður heims er á leiðinni til landsins 10. nóvember ásamt Michael Frank munnhörpuleikara, útgáfustjóra Earwig Records sem er eitt virtasta blues útgáfufyrirtæki í Chicaco. Nýlega vann „Honeyboy” W.C Handy verðlaunin fyrir besta acoustic gítarista ársins. Heimildarmynd um„Honeyboy" Margverðlaunuð heimildarmynd um “Honeyboy” var gerð fyrir 3 árum, og hefur verið tilnefnd til sautján verðlauna. Myndin verður sýnd 9,nóvember á Ríkissjónvarp- inu klukkan 22:20. Þekktir tónlista- menn hafa spilað með „honeyboy“ og má þar nefna Keith Richards í Rolling Stones sem spilaði með hon- um árið 2004 í Connecticut. David Edwards fæddist árið 19x5 og er mjög reyndur í að spila blues, hann er enn að spila um allan heim og er mjög hress þrátt fyrir háan aldur. Tónleikar á Nasa og í Grindavík Daniel Pollock einn af forsprökkum Utangarðsmanna og framkvæmdar- stjóri TÞM og Siggi Sig. hita upp á þessum sögulegu tónleikum ásamt Gumma P. og fleiri. Haldnir verða tvennir tónleikar en þeir fyrri verða í Grindavík á Lukku Láka n.nóv- ember, þar sem sérstökum gestum verður boðið og seinni tónleikarnir verða á Nasa i2.nóvember. Forsala á tónleikana er nú hafin og eru mið- arnir seldir á midi.is. Nýplata: Worm isgreen Push play irk+i Hljómsveitin Worm is green samanstendur af fjórum strákum og einni stelpu, en þau voru að senda frá sér sína aðra stóru plötu fyrir skemmstu. Platan er þrusu- góð og er töluvert heilsteyptari en fyrri platan, Automagic, sem kom út fyrir tveimur árum. Það virðist sem eitt allsherjar vélmennaþema sé á nýju plötunni og því er þetta nokkurs konar konsept-plata, sem ég hef ekkert nema gott um að segja því það er aldrei nóg af konsept-plötum í heiminum. Við fylgjumst með þunglyndum vél- mennum í vélmennaheimi, en fáum ekki almennilega að vita hvort um eitt og sama vélmennið eða mörg mismunandi er að ræða. Það skemmtilega við þetta allt sam- an er að verið er að fylgjast með tilfinningum vélmenna, og það passar afskaplega vel við kalt og yfirvegað viðmót tónlistarinnar. Undir þessu kalda viðmóti leynist nefnilega dramatík og melankólía, og því er þetta bæði tilfinningarík plata og alveg köld, rétt eins og til- finningar vélmennis eru. Söngkon- an Guðríður Ringsted kemur vel frá þessari plötu, hvort sem hún syngur ein eða dúetta með laga- og textahöfundinum Árna Teiti Ás- geirssyni. Raddir þeirra blandast afskaplega vel saman í lögunum „Electron John“ og „Optimistic“ og má gæta smá Bang Gang-áhrifa þar. Gestasöngvarinn, hinn norski Brede Rörstad, syngur líka dúett með Guðríði í laginu „The pop catastrophe", og gengur það einnig mjög vel upp. Fyrstu sex lög plötunnar eru öll afskaplega grípandi og renna vel í gegn, án þess að vera eitthvað sem hljómar það poppað og auðmeltan- legt að maður fái strax leið á því. Hér er um mjög þægilega tónlist að ræða, sem er samt með einhverja innbyggða sorg og dramatík í sér, og á rödd söngkonunnar, ásamt laglínunum og textunum sem hún syngur sinn hlut í því. Þessi fyrri hluti plötunnar er stórgóður og heldur athygli fullkomlega, þar sem lagasmíðar, texti og flutning- ur eru að vinna saman. Bassa- og hljómborðslínur eru dáleiðandi, rödd og gítarar svífandi um með einhvers konar óraunverulegum blæ, og trommutaktar hrista svo aðeins upp í þessum kokteil. Svo kemur að lagi sjö, sem er ósungið rúmlega tveggja mínútna lag sem kallast „Infected by nature“, og þar er eins og kaflaskil eigi sér stað. Það lag er ekkert spes í sjálfu sér, en væri ágætis uppbrot ef á eftir fylgdi svo annað lag sem væri sung- ið og jafn sterkt og fyrstu lögin sex. En það er því miður ekki raunin. Lagið sem fylgir uppbrotslaginu er slakasta lag plötunnar að mínu mati, nokkuð ófrumleg sönglína, og alls ekki skemmtilegur texti sem virkar enn verri í tengslum við þetta lag. Tvö næstu lög, „This time“ og „Synthia“ eru einnig frek- ar slök eða allavega langt frá því að vera eins góð og lögin á byrj- un plötunnar. Maður er því orð- inn úrkula vonar þegar loka- og jafnframt titillag plötunnar hefst. „Push play“ er hins vegar mjög fínt lag og skemmtilegt frá því að segja að þar örlar aðeins á Bjarkaráhrif- um, en þó ekki í söngnum heldur í lagasmíðinni sjálfri. En þetta er gott lag því það er mjög sveimandi og dularfull stemmning í því. Það er því niðurstaðan, eftir að hafa hlustað og hlustað og velt vöngum, skoðað og endurskoðað þennan disk, að ríflega helmingur laganna 12 sem á honum eru séu mjög góð rafpopplög sem séu allrar athygli verð, en því miður eru tvö til þrjú lög þarna afskaplega leiðinleg, fyr- ir minn smekk. Þeim hefði einfald- lega átt að sleppa, eða reyna að dreifa þeim einu og einu á milli frábæru laganna, og þá hefði disk- urinn rúllað betur í gegn. Þá hefði diskurinn líklega styttst niður í 40-45 mínútur í stað 53 mínútna sem hann er, og í stað þess að vera vel yfir meðallagi hefði hann orðið frábær snilld! En þetta er að sjálfsögðu mín skoðun, og e.t.v. er þetta bara hluti af konseptinu, sem er svo vel fylgt eftir að maður verð- ur þunglyndur með vélmenninu í þessum 3 lögum. Worm is green er hins vegar á góðri leið með nýju plötunni og ætti að halda áfram að semja rafpoppið sitt, og gera jafnvel meira af því að blanda karl- og kvenröddum saman, því þar er græni ormurinn bestur. heida@vbl.is Allar HzM'É PV‘ H 1 tQ90o kr. , Hvitlauksolia fylgir! ^ ^ | ^ ^

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.