blaðið - 09.11.2005, Síða 8

blaðið - 09.11.2005, Síða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 blaöiö Flugvél hrapar á verslun Lítil flugvél brotlenti á Wal-Mart verslun í bænum Manchester í New Hampshire í Bandaríkjunum í gær. Flug- maður vélarinnar virðist hafa slasast alvarlega en ekki er vitað til þess að nokkur hafi slasast á jörðu niðri. Verslunin var rýmd í kjölfar slyssins. Vél- in, sem var notuð til vöruflutn- inga, var nýbúin að taka á loft af flugvelli í nágrenninu þegar hún hrapaði og sagði vitni að svo virtist sem flugmaðurinn hefði ætlað að reyna að lenda á ný með þessum afleiðingum. Drukkin hjaít- ardýr ráðast á elliheimili Ibúum á elliheimili í Svíþjóð brá heldur betur í brún þegar tvö kengfull hjartardýr réðust inn á lóð heimilisins. Dýrin tvö, kýr ásamt kálfi sínum, urðu drukkin af því að éta epli sem farin voru að gerjast. Eplin höfðu þau fundið fyrir utan elliheimilið í bænum Sibbhult í suðurhluta Svíþjóð- ar. Lögreglu tókst að stöldcva dýrunum á flótta en þau snéru brátt aftur enda sólgin í hina forboðnu ávexti. Voru þau orðin drukkin mjög og árásargjörn og þurfti því að kalla til veiðimann ásamt hundi til að koma þeim burt af lóðinni. Lögregla veitti þeim ekki eftirför en gekk úr skugga um að eplin væru íjarlægð Franska ríkisstjórnin setur neyðarlög vegna ástandsins í landinu: Heimilt að setja á útgöngubann Franska ríkisstjórnin setti í gær neyð- arlög vegna óeirðanna sem hafa geis- að í landinu í næstum tvær vikur. Samkvæmt lögunum verður meðal annars heimilt að setja á útgöngu- bann í borgum og bæjum í landinu. Jacques Chirac, forseti Frakklands, sagði að lagasetningin væri nauðsyn- leg til að koma aftur á friði og ró í landinu en óeirðirnar sem þar hafa geisað eru þær verstu í áratugi. Þeir sem brjóta útgöngubannið eiga yfir höfði sér allt að tveggja mánaða fang- elsisvist. Dominique de Villepin hét því að koma aftur á reglu í landinu en varaði við að það kynni að taka tíma. Aðeins dró úr óeirðunum í nágrenni Parísar aðfararnótt þriðju- Hræ bíla sem óeirðaseggir lögðu eld að í Strassbourg f austurhluta Frakklands. dags eftir að skotið hafði verið á lög- reglu kvöldið áður en í öðrum hlut- um Frakklands héldu þær áfram af fullum krafti. Gengi evrunnar lækkaði í gær vegna ofbeldisins og franskir embættismenn hafa áhyggj- ur af þvi að ástandið kunni að hafa áhrif á ferðamannaiðnaðinn og fjár- festingar í landinu. Borgaryfirvöld í París gáfu frá sér tilkynningu í gær þess efnis að ferðamönnum væri óhætt að koma til borgarinnar en ríkisstjórnir ýmissa landa hafa varað þegna sína við að ferðast til Frakklands vegna ástandsins þar. Ekki hefur dregið að ráði úr ferða- mannastraumi til landsins eftir að óeirðirnar brutust út en Frakkland er eitt af mestu ferðamannalönd- um heims og þangað koma um 75 milljónir ferðamanna á ári hverju. íranar standa fast á sínu Hótanir um að íranar verði kærðir fyrir Öryggisráði Sameinuðu þjóð- ana og verði jafnvel beittir refsiað- gerðum í kjölfarið fá þá ekki til að hætta við kjarnorkuáætlanir sínar segir Ali Larijani, aðalsamninga- maður Irana í viðræðum um kjarn- orkumál í gær. „Öryggisráðið mun ekki hræða frana til hlýðni. Við tökum slíkar hótanir ekki alvarlega," sagði Ali við fréttamenn. Yfirvöld í Teheran neita ásökunum Bandaríkj- anna um að tilgangur kjarnorkuáætl- unarinnar sé að framleiða kjarna- sprengjur. Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin hafa ítrekað varað Ir- ana við því að þeir verði kærðir fyrir Öryggisráðinu nema þeir fylgi álykt- unAlþjóðakjarnorkumálastofnunar- Aðalsamningamaður (rana, Ali Larijani, í viðræðum um kjarnorkumál innar frá því í september. Alþjóða- kjarnorkumálastofnunin mun ræða kjarnorkumál írana á ný síðar í mán- uðinum en stofnunin hefur lýst yfir ánægju sinni með bætta samvinnu við þá á undanförnum vikum. Ali Larijani hefur boðið Evrópusam- bandinu upp á að taka aftur upp við- ræður um kjarnorkumál landsins sem fóru út um þúfur fyrir nokkr- um vikum. Larijani segir ennfremur að tilboðið sé síðasta tilraun þeirra til að blása lifi í samningaviðræðurn- ar. Hann lagði áherslu á að íranar myndu aldrei láta af kröfu sinni um réttinn til að auðga úran en fyrri viðræður um kjarnorkumál írana steyttu einmitt á þeirri kröfu. Larij- ani sendi utanríkisráðherrum Bret- lands, Frakklands og Þýskalands tilboð um að taka upp viðræður á ný á sunnudag. Ráðherrarnir segjast vera að íhuga tillögur Larijanis en hafa ekki sagt af eða á um hvort þeir hyggist ganga að þvi. Brýn þörf á matvælaaðstoð Fimm milljónir manna eru í brýnni þörf á matvælaaðstoð í Malaví en verð á maískorni hefur hækkað svo mikið að margir hafa ekki efni á því. Uladi Mussa, landbúnaðarmála- ráðherra Malaví sagði að á einum mánuði hefði heild- söluverð á maís tvöfaldast. Nú kostar kílóið af maískorni 30 bandarísk sent en var áður að- eins 15 sent. Hækkunin reynist mörgum illviðráðanleg í landi þar sem meira en þrír fjórðu þjóðarinnar hfa á minna en einum Bandaríkjadal á dag. Fjórir hermenn farast í sjálfs- morðsárás Fjórir bandarískir hermenn fór- ust í árás sjálfsmorðssprengju- manns við eftirlitsstöð fyrir sunnan Bagdad á mánudag. Sjálfsmorðsárásirnar voru gerð- ar þegar bandarískar og íraskar hersveitir börðust við stríðs- menn úr röðum A1 Kaída-sam- takanna í bænum Husaybah við landamæri Sýrlands. Hernaðaryfirvöld telja að marg- ir erlendir stríðsmenn komi til landsins gegnum bæinn. Þá hefur yfirráð bandaríska hersins sagt að fimm her- menn úr úrvalssveitum hafi verið ákærðir fyrir að misþyrma íröskum fongum. Mennirnir hafa verið færðir til í starfi á meðan rannsókn á málinu stendur yfir. Sjálfstæðismenn í Reykjavík Kærar þakkir fyrir þátttöku í glæsilegasta prófkjöri sem haldið hefur verið. Sjálfstæðisfélögunum í Reykjavík og meðlimum þeirra eru færðar innilegar þakkir fyrir óeigingjarnt starf við undirbúning og framkvæmd prófkjörsins. Frambjóðendum í prófkjörinu er þökkuð drengileg og heiðarleg kosningabarátta. Með ósk um að prófkjörið sé fyrsti áfanginn í sigri sjálfstæðismanna í borgarstjórnarkosningunum næsta vor. Með góðri kveðju, Sjálfstæðisflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.