blaðið - 09.11.2005, Qupperneq 12
12 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 blaóió
Meintir hryðjuverkamenn
handteknir í Ástralíu
Yfirvöld telja sighafa komið í vegfyrir alvarlega hryðjuverkaárás með handtöku íygrunaðra
hryðjuverkamanna í Sydney ogMelbourne. Búast má viðfrekari handtökum á nœstunni.
Lögregla í Ástralíu handtók 17 grun-
aða hryðjuverkamenn í tveimur
stærstu borgum landsins í gær. Yf-
irvöld segja að með aðgerðunum
hafi þau komið í veg fyrir hryðju-
verkaárás sem hefði haft hörmu-
legar afleiðingar í för með sér. Rót-
tækur múslimaklerkur hefur verið
ákærður fyrir að hafa skipulagt
árásirnar. Meira en 500 lögreglu-
menn sem nutu stuðnings þyrlna
tóku þátt í áhlaupunum í Sydney og
Melbourne. Átta manns voru hand-
teknir í Sydney og níu í Melbourne
og að auki voru vopn, tölvur, bak-
pokar og efni til sprengjugerðar
gerð upptæk.
Einn hinna grunuðu var í lífs-
hættu eftir að hafa skipst á skotum
við lögreglu. Þá særðist lögreglumað-
ur einnig lítillega.
„Ég er ánægður með að við skulum
hafa komið í veg fyrir það sem ég tel
að hafi verið lokaundirbúningur
fyrir meiriháttar hryðjuverkaárás
hér í Ástralíu,“ sagði Ken Moroney,
lögregluforingi í New South Wales í
viðtali við útvarpsstöð. Síðar sagði
hann að það mætti eiga von á frek-
ari handtökum á næstu dögum og
vikum.
Howard varaði við hryðjuverkaógn
John Howard, forsætisráðherra Ástr-
alíu, sem varaði við hugsanlegum
hryðjuverkaárásum í landinu í síð-
ustu viku, þakkaði öryggissveitum
fyrir framgöngu þeirra í sjónvarps-
ávarpi. „Þetta land hefur aldrei verið
undanskilið þegar kemur að hugsan-
legum hryðjuverkaárásum,“ sagði
Howard og bætti við að þannig yrði
ástandið enn um sinn. Howard hrað-
aði afgreiðslu umdeilds frumvarps
um lög gegn hryðjuverkum í síðustu
viku með þeim rökum að það væri
nauðsynlegt til að geta brugðist við til-
tekinni yfirvofandi hryðjuverkaógn.
Sérfræðingur í eyðingu sprengja gengur í átt að lögreglumanni eftir að hafa kannað
grunsamlegan bakpoka í nágrenni Sydney í gær.
Líberíumenn kjósa forseta
Önnur umferð forsetakosninganna í
Líberíu var haldin í gær og stóð val-
ið á milli George Weah og Ellen John-
son Sirleaf. George Weah er fyrrver-
andi knattspyrnustjarna sem hlaut
mest fylgi allra frambjóðenda í fyrri
umferð kosninganna. Weah er af
mörgum talinn sigurstranglegastur
en hann nýtur mikillar lýðhylli í
hinu stríðshrjáða landi ekki síst
meðal ungs fólks.
Ellen Johnson Sirleaf er hagfræð-
fyíuA
CH-ánmx
KÉRASTASE
Sérfræðingur frá KÉRASTASE b/ður upp á
hárgreiningu með hátækni tölvubúnaði
föstudaginn 11. nóvember frá kl.
13-17.
Dagana 14.-24. nóvember er 20% afsláttur af
permanenti.
Sími: 566 60 90
GK
Snyrtistofq
BIOTHERM
Sérfræðingur frá BIOTHERM verður til
ráðgjafar
fimmtudag og föstudag frá kl. 13-18.
Glæsilegir kaupaukar sé verslað fyrir kr. 4.000.-
eða meira.
Sími: 5 34 34 24
Kjarni - Þverholti 2, 270 Mosfellsbær
ingur sem hefur langa reynslu að
baki í stjórnmálum. Hún virðist
hafa dregið á Weah á undanförnum
tveimur vikum enda hefur hún ver-
ið iðin við að gagnrýna hann og
draga í efa getu hans til að stjórna
landinu þar sem atvinnuleysi er
mikið og ýmsa grunnþjónustu
vantar eftir margra ára átök. Sirle-
af sagði í viðtali við AFP-fréttastof-
una að hún teldi að boðskapur sinn
væri að skila sér til líberísku þjóðar-
innar og ef allt gengi að óskum yrði
hún fyrsta konan sem væri lýðræð-
islega kjörin forseti í Afríkuríki.
Stungin til
bana af
býflugum
Hundruð þúsunda æstra bý-
flugna stungu konu til bana eft-
ir að bíll sem hún var í ók á raf-
stöð þar sem þær höfðu byggt
sér bú. Atvikið átti sér stað í
Jóhannesarborg í Suður Afríku.
Bráðaliði sem kom á vettvang
sagði að konan og eiginmaður
hennar hefðu reynt að komast
út úr bílnum en ekki getað það
fyrir býflugnasveimnum. Hann
sagði ennfremur að býflugurn-
ar hefðu gert sig heimakomnar
í gömlu rafstöðinni og kynnu
innrásinni illa. Konan sem var
á sjötugsaldri lést á staðnum en
eiginmaður hennar var fluttur
til aðhlynningar á sjúkrahús og
mun að öllum líkindum ná sér.
Handsprengja
grandar þremur
Handsprengja sem notuð var
í bolta stað í kastleik varð
þremur ungmennum að bana í
Novi Grad í Bosníu á laugardag.
Tveir menn um tvítugt létu lífið
samstundis en stúlka á sama
aldri lést á leið á sjúkrahús.
Þrjú ungmenni til viðbótar
slösuðust misalvarlega í spreng-
ingunni. Sprengingin átti sér
stað skömmu eff ir hádegi á
svæði í bænum þar sem ungt
fólk kemur gjarnan saman. Lög-
regla sagði að rannsókn hefði
verið fyrirskipuð á atvikinu
og neitaði að tjá sig frekar um
það. Vitni sögðu að ungmennin
hefðu kastað sprengjunni á
milli sín áður en hún spralck
í höndum eins þeirra. Mikið
er um ólögleg vopn í Bosníu
síðan í stríðinu frá 1992 - 1995
og hræðileg atvik sem þessi
eiga séroft stað þrátt fyrir að
lögregla og friðargæslulið hafi
hvatt fólk til að sldla vopnunum.
Maraþonhlauparinn Paul Tergat er einnig sendiherra Alþjóðamatvælaáætlunar Samein-
uðu þjóðanna.
Maraþonhlaupari
sendiherra gegn hungri
Kenýski maraþonhlauparinn Paul
Tergat sem sigraði í New York
maraþoninu er einnig sendiherra
gegn hungri fýrir Alþjóðamatvæla-
áætlun (World Food Programme)
Sameinuðu þjóðanna. Tergat hefur
þakkað árangur sinn í íþróttum
því að hafa fengið matvælaaðstoð
frá stofnuninni sem barn.
„Fáir geta betur útskýrt hvernig
matvælaaðstoð getur gerbreytt lífi
barns,“ sagði James Morris, fram-
kvæmdastjóri Matvælaáætlunar-
innar. „Hann er lifandi sönnun
þess hvernig lítilsháttar hjálp, eins
og ein skólamáltíð á dag, getur
skipt sköpum. Við erum mjögþakk-
lát Paul fyrir hið frábæra starf hans
og skuldbindingu sem sendiherra
gegn hungri.“
Tergat komst í sögubækurnar
árið 2003 þegar hann varð fyrstur
manna til að hlaupa maraþon und-
ir tveimur tímum og fjórum mínút-
um. Hann ólst upp í Baringo-héraði
í Kenýa þar sem fátækt var mikil og
þurrkar geisuðu. Árið 1977 hóf Mat-
vælaaðstoðin að bjóða upp á ókeypis
máltíðir í skólanum hans og skipti
það sköpum. „Án matar var mjög
erfitt að ganga í skólann, hvað þá að
einbeita sér að náminu. Máltíðirnar
frá Matvælaaðstoðinni gerðu okkur
kleift að fá sem mest út úr menntun
okkar,“ sagði Tergat og bætti við
að ókeypis máltíð hefði einnig ver-
ið hin besta hvatning til að sækja
skóla. ■