blaðið - 09.11.2005, Side 24
24 I FERÐALÖG
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Að baða sig
í vetursins
kalda Ijóma
íslenski Alpaklúbburinn býður reglulega
upp á námskeið í ísklifri
en slíkur mótþrói er gagnslaus og
lítið gefandi til lengdar. Betur færi
að fallast í faðma við veturinn og
baða sig í hans kalda ljóma, enda
kemur hann alltaf aftur hvort sem
fólki líkar betur eða verr. Félagar í
Islenska Alpaklúbbnum teljast klár-
lega til slíkra vetrarunnenda; þeirra
áhugamál gengur öðru fremur út á
ísi klæddar brekkur og þverhnípi,
snævi þakta tinda og mikilfenglegt
útsýnið þaðan. Kuldi er engin fyrir-
staða, nema síður sé.
Af vefsíðu félagsins, isalp.is, má
greina að meðlimir þess búa yfir
mikilli lífsgleði og ævintýraþrá.
Einkabrandararnir streyma unn-
vörpum á spjallsvæðinu og talað er
um fjöll og tinda eins og gamla vini
og félaga frekar en grasivaxnar grjót-
hrúgur. ís- og fjallaklifur er þó ekk-
ert gamanmál og ekki athöfn sem
fólk ætti að taka sér fyrir hendur
án mikils undirbúnings, andlegs og
líkamlegs. íslenski Alpaklúbburinn
býður reglulega upp á byrjendanám-
Sjálfsagt hefur farið framhjá
fáum að vetur er í nánd. Nú
er hægt að loka sig af, hækka
hitann á ofninum og ímynda sér að
landið manns sé ekki kennt við ís,
Mynd/ttOK
Ekki er óalgengt aö þyngdaraflinu sé ögr-
aö hressilega við ísklifur. Stundum svarar
það f sömu mynt.
Frækinn ísklif urkappi rennir sér á skiðum í Kirkjubólsdal í Dýrafirði.
Mynd/ROK
skeið í ísklifri (sem reyndar er skylda
að sækja hafi maður áhuga á því að
taka þátt í ferðum þeirra), en þar eru
öll helstu grunnatriði klifursins tek-
in vandlega fyrir og af festu. Skiptast
þau jafnan í bóklegan hluta, þar sem
farið er í saumana á hnútum, hugtök-
um og búnaði sem kunna þarf skil
á við ísklifur. í verklegum hluta
námskeiðanna er haldið út á ísinn
og klifur, línutryggingar og notkun
ísskrúfna kennd, meðal annars.
Oft má heyra kvartanir yfir því
að aðstæður til útiveru á íslandi séu
erfiðar vegna snjóþyngsla og kulda-
kasta. Vissulega er margt til í því
að erfitt getur verið að skokka utan-
dyra í janúarmánuði. Þá er hinsveg-
ar lagið að finna sér bara eitthvað
annað spennandi að gera í stað þess
að koðna niður í stofunni í skjóli
framtaksleysis. Eins og að klifra á
ís, til dæmis, eða fara á skíði. Oft
má reyndar sameina þetta tvennt og
gera af mikla leiðangra og ævintýra-
ferðir. Næsta fyrirhugaða ísklifur-
námskeið Alpaklúbbsins mun fara
fram síðari hluta nóvember. Nánar
er hægt að kynna sér framkvæmd
þess og agnúa á áðurnefndu vef-
svæði klúbbsins.
haukur@vbl.is
Hvernig irœrí að próta eitthvað nýtt?
Atlasinn getur komið að skemmtilegum notum við að skipuleggja ferðalagið
Hver vill ekki ferðast á nýja
og framandi staði? Ár hvert
heldur ótölulegur fjöldi Is-
lendinga í ferðalög til borga á borð
við Lundúni og Kaupmannahöfn, að
ekki sé minnst á sólþyrsta sem sjá
ástæðu til þess að flatmaga á Costa
Del Sol eða Mallorca. Það er gott og
blessað; allir ofangreindra staða hafa
bæði sjarma og ríka menningarhefð
til að bera. En stundum er gaman
að prófa eitthvað nýtt og spennandi,
ferðast til landa þar sem menning
og samfélag er gerólíkt okkar eigin.
Til þess að fá hugmyndir um slík get-
ur verið bæði gagnlegt og gaman að
rýna í tölfræði alls kyns sem finna
má í heimilisatlasnum.
Af hverju ekki einsetja sér að
sækja t.d. heim einhverja af fámenn-
ustu þjóðum jarðarinnar og athuga
hvernig lífið þar horfir við innfædd-
um? Efst á lista trónir náttúrulega
Vatíkanið með sína 770 íbúa, en það
er eiginlega svindl. Á Túvalúeyjum
í Kyrrahafi (sem nú eru helst þekkt-
ar fyrir að hafa internetlénið ,tv á
sínum snærum) eru einungis 9.750
íbúar, en þær hafa verið byggðar að
minnsta kosti 300 ár (sumir telja
reyndar að byggð hafi verið á eyj-
unum í a.m.k. 2000 ár). Þeir sem
hafa á annað borð gaman af því að
flatmaga í sólbaði á strönd gætu
ugglaust vel fundið sig þar - og
ekki er mikil hætta á því að hverfa
í fjöldann heldur. Sé lítill áhugi á
því að ferðast handan Evrópu eru þó
nokkrar smáþjóðir þar sem gaman
gæti verið að heimsækja, San Mar-
ino, Liechtenstein og Mónakó, svo
dæmi séu nefnd.
Einnig gæti verið áhugavert að
heimsækja einhverjar af fátækustu
þjóðum heims, spjalla við fólkið þar
og sannreyna endanlega hvort að
Eþíópía er sannarlega í hópi fátækustu þjóða heims, en mikið er samt fallegt þar.
peningar og hamingja fara raunveru-
lega saman. Fimm þeirra fátækustu;
Mósambík, Sómalía, Erítrea, Eþíóp-
ía og Kongó (í þessari röð) eiga það
sameiginlegt að vera allar í Afríku.
Því ætti að reynast auðvelt að skipu-
leggja ódýra og fljótlega yfirreið
um þau öll og kynna sér kjör íbúa
þar. Að þeirri ferð lokinni mætti svo
huga að því að líta til Lúxemborg,
Sviss, Japan, Liechtenstein og Nor-
egs, en þær þjóðir eru einmitt ríkast-
ar. Sá sem færi í slíkt ferðalag yrði
ugglaust margs vísari um heiminn
sem hann býr í.
I það minnsta er um að gera að
rýna í atlasinn reglulega og vera
opinn fyrir nýjum hugmyndum og
stöðum, hafi maður áhuga á því að
víkka sjóndeildarhringinn.
haukur@vbl.is
///7/TILBOÐ
aðeins
kr. á mann
5777000
Hraunbær 121
Tilboðiö gildir alla virka daga
frá kl 11:00 til 17:00