blaðið - 09.11.2005, Qupperneq 28
28 I MENNING
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Hin skáldlega blekking
Ein af áhugaverðustu bókum
þessa árs er Argóarflísin eftir
Sjón en þar leiðir höfundur sam-
an tvo heima, fornan goðsagnar-
heim og nútímaheim. Aðalper-
sóna bókarinnar er Valdimar
Haraldsson sem árið 1949 gerist
farþegi á dönsku skipi. Þar um
borð er sjómaðurinn Keneifur,
einn af Argóarförum Jasonar.
Keneifur skemmtir áhöfninni
með ævintýralegum sögum.
,Aðalögrunin var að setja þessar
tvær sögur í eina bók og reyna
með skáldlegum blekkingum að fá
lesandann til að trúa því að Kenei-
fur sé sögupersóna í verkinu,“ segir
Sjón. „Ég er mikill aðdáandi grísku
goðsagnanna og las þær frekar
ungur. Ég hef alltaf haft þessar fígúr-
ur í höfðinu. Svo var ég spenntur fyr-
ir Thorvaldsen sem krakki því inn á
heimilið kom sýningarskrá úr Thor-
valdsensafninu og þar var til dæmis
hin fræga stytta Bertels af Jasoni.
Ég byrjaði á ferðasögu Valdimars
fyrir ári og hafði til hliðsjónar ellefu
blaðsíður úr ferðasögu sem langafi
minn, Matthías Þórðarson, skrifaði
og heitir Innan lands og utan. Ég leit-
aði einnig fanga í bókinni Ég sigli
minn sjó sem er ferðaminningar
Hrafns Valdimarssonar. Þannig bók
væri ekki hægt að skrifa í dag því
hún byggist upp á fylliríum, slags-
málum og kvennafari um öll heims-
ins höf.“
Kyrrlátt líf og goðsaga
Hvað með stílinn, Valdimar hefur
sinn stíl ogKeneifur svo allt annan
stíl. Hvernig náðirðu þessum ólíku
stíltegundum?
,Hvað Valdimar varðar sótti ég tón-
inn og andann í verk langafa míns.
Rödd Valdimars var mjög sterk í
hausnum á mér, rödd þessa sérvitra,
nokkuð óþægilega hofmóðuga karls.
Þegar ég þurfti að ná sambandi við
þá rödd þá náði ég í tvær til þrjár lín-
ur frá Matthíasi og spann út frá því.
Jón Karl Helgason hefur kallað þetta
íslenskan guðspekifélagsstíl.
Þegar kemur að Keneifi þá las ég
Ódysseifskviðu þegar hún var endur-
útgefin hjá Bjarti í fyrra og gleypti
hana í mig. Ég ákvað að líkja ekki eft-
ir þýðingu Sveinbjarnar Égilssonar,
það hefði verið eins og að ganga sjálf-
viljugur í eldinn. Ég sótti þó til hans
einhver hugtök og einstaka orðfæri
en bjó fyrst og fremst til mitt eigið
tungutak og leyfði því að vera svolít-
ið hátíðlegt og þrungið.
Það skemmtilegasta við að skrifa
söguna var að í hinum móderníska
heimi um borð í skipinu er fátt að
gerast en vegna sérstaks hugarfars
aðalpersónunnar verður þetta allt
dálítið skrýtið og sérkennilegt.
Þessu kyrrláta lífi tefldi ég síðan á
móti goðsögunni sem er þrungin
af stórum atburðum, stórkostlegu
fólki, guðum og skrímslum. Það var
mjög spennnandi. Ef ég hefði skrif-
að 140 síður af goðsögu þá hefði
bókin ekki virkað. Það hefði verið
of mikið, eins og verið væri að öskra
upp í eyrað á manni því goðsagan er
svo stór og fyrirferðarmikil."
Skrifaði í sjálfstrausti
Síðasta bókþín hlaut Bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs. Þess eru
dæmi að menn hafi dalað mjög eftir
að hafa gefi út verðlaunabækur en
þetta ergreinilega ekki að henda þig
þvíArgóarflísin er mikið listaverk.
Varstu meðvitaður um pressuna sem
fylgir verðlaunum?
„Maður hefur heyrt margar sögur
af rithöfundum sem lokast vegna
þess að þeir vita ekki hvernig þeir
eiga að fylgja verðlaunabók eftir.
Annað er að verðlaunaveitingum
fylgir áreiti og ferðalög sem kemur
í veg fyrir að menn geti setið og
skrifað. Ferðalögunum fylgir til
dæmis að menn eru alltaf að tala
um verðlaunaverkið. Það er erfitt
að setjast niður og einbeita sér að
nýju verki ef maður er stanslaust
að tala um eitthvað sem maður er
löngu búinn að skrifa. Ég vissi af
öllu þessu og daginn eftir að ég
fékk verðlaunin tók ég þá ákvörðun
að ég ætlaði að vera með bók og
afþakkaði öll ferðalög þar til nú í
haust. Ég settist niður og notaði
meðbyrinn sem ég fann fyrir með
verðlaununum. Verðlaunum eins
og þessum fylgir ákveðið sjálfs-
traust. Það dvínar þegar frá líður og
ég ákvað að skrifa í þessu sjálfs-
trausti og sjá hvað myndi gerast.“
Þú hefurfengið mjög lofsamlega
dóma fyrirþessa bók. Þú hlýtur að
gleðjastyfir því?
„Það er mikill léttir. Það var í mér
ákveðinn kvíði því þetta er fyrsta
bókin eftir Skugga Baldur. Nú fer
ég ótrauður í næsta verk. Ég er alltaf
með margt í gangi. Það liggur fyr-
ir að skrifa lokabindið í ritröð sem
hófst með Augu þín sáu mig. Ég held
samt að sú bók verði ekki næst. Ég
hef verið að viða að mér efni í bók
sem fjallar um mann sem er miðill
og starfar í sjónvarpi og verður fyrir
ákveðnu áfalli í upptöku á einum
þætti. Út frá því áfalli segi ég sögu
hans og fjölskyldu hans sem er ná-
tengd sögu sálarrannsóknarfélag-
anna og dulspekifélaganna á íslandi
í upphafi 20. aldar.“ ■
VBílalíf
www.bilalif.is Sími.562 1717
Bílasala Matthíasar
Toyota Avensis 1.8.,sjálfsk.
Árg 1998, Ek.129þús km,
Rafmagn í rúðum,Abs,
Fj-samlæsinar, Ásett verð
690þúsTILBOÐ 550þús.
Land Rover Discovery V8
Windsor 7manna.,
Árg.1998, Ek.139þús
km.Vel búinn bill ,Smur-
bók Ásett verð 1,090þús.
Áhv bílalán 430þús
Hyundai Accent Gls 1500.,
Árg 2000 Ek.74þús km
Smurbók. sumar og 4
vetradekk. Ásett verð
450þús.
Toyota 4Runner 3.0 V6
35" Árg 1990 Ek.193þús
km. Er með skoðum 06.,
Ásett verð 290þús.
Vw Golf 1600 Highline,
Árg 11 /2000., Ek.102þús
km., Ásett verð.995þús.
TiLBOÐ. 180þús út og
yfirtaka á bílaláni
Kr.685.þús
Til Sölu SKI DOO MXZ X
440 Ár 2002 100HÖ,
Nýupptekinn mótor, skipt
um legur um allt - Neglt -
CA ásett verð 590þús.
Góður stgr afsláttur.
Jeep Cherokee Grand
Laredo 4.0, Árg.2000
Ek.68þús. Rafmagn í öllu,
Ásett verð 1.500þús.Áhv.
Bílalán 960þús.
M.benz E200 Stw,
Sjálfsk,abs.,Álfelgur,
Litað gler, Dráttarkúla,
Reyklaus, Ásett verð
480þús.
Opel Calipra 2.0Turbo
200hö,Rafmagn í rúðum.,
Beinsk 6gíra, Cd.,Racing
kúpling,og margtfl.
Billinn er í toppstandi
Ásett verð 740þús
Nissan Patrol 38744"
Elegance,árg 2002.
Ek92þús km, Sjálfsk. Einn
með öllu. Ásett verð
4.890þús.Tilboð 4.690þús
m
Ford Explorer XLT
Árg.2004 ek.32þús
mílur.,7manna,
Rafmagn í öllu, Reyklaus
og margt fl.Ásett verð
2.990þús.
GMC sierra 1500
Duramax 6.6 dísel,
Árg.2001,Ek.99þús
km,Sumar og vetradekk,
Smurbók., Bíll í top standi.
Ásett verð 2.690þús.
TILBOÐ.2.250þús.
www.bilalif.is
simi.562 1717
bilalif@bilalif.is
Kletthálsi 2