blaðið - 09.11.2005, Side 30
30 I ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 blaöið
Því þú gætir unnið miða á þessa
sjóðheitu spennumynd með hinni
stórglæsilegu Jessicu Alba.
Fylgstu með í Blaðinu.
WE
11*11*05
mm
smfíRHK bíó REGnéacmn
uurquríMiu
A landsliðið í knattspyrnu
Spjöldin kosta skildinginn
FIFA hefur nú sent KSÍ reikning upp á 700 þúsund krónurfyrir
áminningar íslendinga. „Blóðpeningarsegir framkvœmdastjóri KSÍ
Leikmenn íslenska landsliðsins í
knattspyrnu fengu samtals á sig 14
áminningar í síðustu fjórum leikj-
um liðsins. Alþjóðaknattspyrnu-
sambandið, FIFA, hefur sektað KSÍ
um 5.000 svissneska franka vegna
fjögurra áminninga sem leikmenn
íslands fengu í lokaleik liðsins í
undankeppni HM gegn Svíum. Leik-
ur liðsins hefur þá kostað KSÍ um
15.500 franka það sem af er árinu
en það samsvarar rétt rúmlega 700
þúsund krónum. Geir Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Knattspyrnu-
sambands íslands, segir að þetta séu
blóðpeningar, sérstaklega í ljósi þess
hversu lítið Knattspyrnusambandið
er á alþjóðamælikvarða.
Reglurnar
„Þetta er náttúrulega samkvæmt regl-
um FIFA en hefur legið ljóst fyrir í
nokkurn tíma svo við tökum því.
Okkur finnst alltaf blóðugt að þurfa
að borga sektir - eins og reyndar öll-
um öðrum held ég. Við erum með
sams konar sektarkerfi innan okk-
ar knattspyrnusambands í leikjum
í Islandsmóti í öllum flokkum og
það sama hefur FIFA og EUFA í sín-
um keppnum þannig að menn vita
alveg að hverju þeir ganga“, segir
Geir. Hann segir 700 þúsundin vera
umtalsverða fjárhæð fyrir KSÍ sem
greidd verður af þeim peningum
sem veitt er til A landsliðsins. Hann
var þó ekki með upplýsingar til að
segja hversu hátt hlutfall af heildar-
kostnaði landsliðsins færi í sektirnar.
„Þessa peninga væri augljóslega hægt
að nota í eitthvað nytsamlegra."
Agaleysi
Geir vill að landsliðið sýni nú hvað
í sér býr og fari að spila betri knatt-
spyrnu. „Það hefur sýnt sig í knatt-
spyrnunni að góður og agaður leikur
á ekki að koma niður á því að menn
nái árangri, heldur þvert á móti. I
ljósi þess er mjög miður að við skyld-
um fá svona mörg spjöld í síðustu
leikjum. Við stefnum að því að spila
góða knattspyrnu, agaða og árang-
ursríka með sem fæstum spjöldum
- helst engum. En ég er hins vegar
alveg raunsær í því að það er erfitt
að spila heilan landsleik án spjalda.
Þetta fór á verri hliðina í síðustu
leikjunum þar sem við fengum fjög-
ur spjöld í þremur þeirra en svoleið-
is var það ekki í fyrstu leikjunum
þannig að það hefur greinilega eitt-
hvað slaknað á.“ Geir nefnir reyndar
að menn hafi ekki verið alveg sáttir
við allar áminningarnar en segir að
svona sé jú knattspyrnan. ■
Tyson
mætir
Maradona
Járn-Mike Tyson mætti í sannkall-
að skúrkakvöld í sjónvarpi þegar
Diego Armando Maradona tók á
móti honum á mánudagskvöld
í sjónvarpsþætti sínum Nótt
tíunnar (La noche del xo). Tyson
nýtti tímann í Buenos Aires til
að skoða sig um í borginni og
heimsótti meðal annars fátækra-
hverfi þar sem hann spjallaði við
íbúana.
Gerrard til frambúðar
Fyrirliði Liverpool, Steven Gerrard,
hefur sagt frá því að hann vilji verja
æviárunum hjá liðinu og geti vel
hugsað sér að þjálfa hjá því þegar
hann leggur skóna á hilluna. Þetta
kemur nokkuð á óvart þar sem í sum-
ar var mikið rætt um að hann myndi
fara frá Anfield liðinu. „Ég velti því
alltaf fyrir mér hvað ég geti tekið
mér fyrir hendur þegar ég hætti að
spila. Ég veit að í sumar sagði Benit-
ez (knattspyrnustjóri Liverpool) að
ég gæti vel þjálfað í framtíðinni en
að hafði nú hvarflað að mér fyrr.
g hef alltaf viljað vera hérna eins
lengi og mögulegt er“, segir Gerrard
á heimasíðu Liverpool. „Auðvitað er
á__________________________r
ég ekki nema 25 ára gamall þannig
að ég á vonandi nóg eftir en framtíð-
in er vissulega eitthvað sem ég huga
að. Hvað sem gerist vona ég að það
tengist Liverpool á einhvern hátt.“«
• •
Oruggt og heilbrigt
umhverfi æsk
nar
Á dögunum kom út nýtt vegg-
spjald frá framkvæmdastjórn
íþrótta- og Ólympíusambands
Islands þar sem settar eru fram
leiðbeinandi viðmiðunarreglur
varðandi samskipti þjálfara, leið-
beinenda og umsjónarmanna barna
og unglinga. Leiðbeiningunum er
ætlað að vinna gegn áreiti, einelti og
afbrigðilegri hegðan og tryggja með
þeim hætti aukið öryggi og heilbrigt
umhverfi ungs fólks á vettvangi
íþróttanna. ■
SS bikarinn:
Spennandi leikir
Fjórir leikir verða leiknir í SS
bikar karla í kvöld. Spennan
verður líklega mest í Hafnar-
firði þar sem Haukar taka á
móti KA mönnum að Ásvöll-
um. Aðrir leikir eru viðureign
Valsmanna og Stjörnunnar í
Laugardalshöll, leikur Þórs
og Selfoss sem fer fram í
Höllinni norðan heiða og
svo tekur Stjarnan 2 á móti
Eyjamönnum í Garðabænum.
Xavierdópaði
Lyljapróf knattspyrnumannsins
Abel Xavier hjá Middlesbrough
sem tekið var af honum eítir
leik í Evrópukeppninni á dögun-
um hefur reynst jákvætt. Talið
er að Xavier hafi notað stera fyr-
ir leikinn og því má hann búast
við árs leikbanni í kjölfar þess.
Ástöðunaskilið
David James, markmaður
Manchester City er sannfærð-
ur um eigið ágæti og telur sig
eiga skilið að standa á milli
stanganna í marki Englands í
Þýskalandi næsta sumar.„Auð-
vitað yrði ég fyrir gífurlegum
vonbrigðum ef ég kemst ekki
í liðið fyrir úrslit HM þar sem
ég trúi því að ég sé einn af
þremur bestu markmönnun-
um í Englandi“, segir hann.