blaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 37

blaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 37
blaðið MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 DAGSKRÁ I 37 Bergur Þór er í þáttunum Stelpurnar 1 ◄ ◄ Hvernig hefurðu það í dag? Ég hef það Ijómandi gott í dag. Hvenær byrjaðirðu fyrst að vinna í fjölmiðlum? Eg byrjaði að vera í áramótaskaupinu árið 1996. Hver er helsti munurinn á leikhúsi og sjónvarpi Það er æðislegt að vinna í sjónvarpi en að sumu leyti öðruvísi en leikhúsið, vinnan í sjónvarpi er yfirveguð og það er ekki jafn mikill hasar og í leikhúsinu en mjög skemmtileg. Langaði þig að verða leikari þegar þú varst lítill? Já, að vera í áramótaskaupi fannst mér vera eins og að komast I landsliðið í fótbolta. Ég held að ég hafi viljað verða Stuðmaður, það var eitthvað leikhús- legt við það og mig langaði að fara í dans og söngvarhlutverk. Er vinnan í sjónvarpi öðruvísi en þú hefðir búist við? Það er kannski helst biðin I sjónvarpi sem hefur komið mest á óvart en maður þarf að bíða svo mikið eftirýmsum tæknimálum eins og þegar verið er að stilla upp Ijósum, leikmynd, tækjum og tólum. Á meðan bíður leikarinn en þaðfer mikill tími hjá leikurum í sjónvarpi í að bíða. Ég erfarinn að kunna vel að meta biðina í dag enda gott að geta stillt sig inn á að vera rólegur og yfirvegaður. Hvað er það skemmtilegasta við að vera í Stelpunum? Það er mjög lærdómsríkt, Skari er flinkur leikstjóri og félagsskapurinn er fínn og það er skemmtilegt oft hjá okkur. Dæmigerðurdagur Ég vakna klukkan sjö, kem fjölskyldunni á fætur og útbý morgunmat og borða morgunmat með fjölskyldunni og kem börnunum í skólann og leik- skólann og fer svo I vinnuna til fjögur. Eftir það fer ég i Stelpurnar fjóra daga vikunnar, annars get ég farið heim og borðað kvöldmat með fjölskyldunni. Hvað er uppáhalds sjónvarpsefnið þitt? Alit efni sem vel er gert, ég hef mjög gaman af góðum teiknimyndum, góð- um spennuþáttum og heimildarmyndum. Maður sér fljótlega hvort efnið sé vandað og ég hef mest gaman af efni með góðum leik og efni sem veitir mérinnblástur. Hvernig myndirðu segja að þú takir gagnrýni Ég er alltaf að læra það betur og betur, ég hef í gegnum árin verið frekar viðkvæmur fyrir gagnrýni þó svo að ég hafi ekki viljað viðurkenna það. Ég er að læra það betur og betur að þeir sem eru að gagnrýna opinberlega eru í rauninni bara bloggarar. EITTHVAÐ FYRIR... Stöð 2, Supernanny US 20:40 Ofurfóstran Jo Frost er kominn til Bandaríkjanna þar sem hennar bíð- ur ærið verk, að kenna ungu og ráð- þrota fólki að ala upp og aga litla og að því er virðist óalandi og óferjandi ólátabelgi. Sjónvarpið, Honeyboy, kl. 22.40 Heimildamynd um blúsarann David “Honeyboy” Edwards. Meðal þeirra sem koma fram í myndinni eru B.B. King, Sam Carr og Willie Foster. Myndin verður endursýnd klukkan 15.45 á sunnudag. .{!>'., * v j t.’ ii.* t"' * ' Sirkus, 21.0 So You Think You CanDance , Framleiðendur American Idol eru komnir hér með splunkunýjan raunveruleikaþátt þar sem þeir leita að besta dansara Bandaríkjanna. ; > Hver er uppáhalds fréttamaðurinn þinn? Geir A. Guðsteinsson Ég hef alltaf verið mjög hrifinn af Sigmundi Erni Helga Guðmundsdóttir Inga Lind Svava Björg Einarsdóttir Logi Bergmann Darri Mc Mahon Arnar íþróttafréttamaður Ólöf Bjarnadóttir Ég á engan uppáhaldsfréttamann Sigrún Lilja Sigurðardóttir Edda Andrésdóttir Madonna spilar á tónleikum í London í nœstu viku adonna mun syngja á einum tónleikum á klúbbi í London. Tónleik- arnir verða á staðnum London Koko þann 15. nóvember, og áhorf- endur eru verðlaunahafar úr keppni. Þessi staður er Madonnu hugleikinn, en hann var áður kallaður Camden Palace og þar spilaði hún fyrstu tónleika sína í Eng- landi árið 1983. Síðasta mánudag kom út fyrsta smáskífan, „Hung up“, af komandi breiðskífu, „Confessions on a danceflo- or“, sem er væntanleg 14. þessa mánað- ar. Farnar eru að heyrast raddir um tónleika á næsta ári þótt ekkert sé enn staðfest. Söngkonan sagði um tónleikahald: „Ég er ennþá að kanna alla möguleika. Ef ég fer á tónleikaferðalag verð- :a sumar. Og ra diskó með Ég myndi einbeita mér að danstón- list og nýju plötunni en ekki gömlum lög- um. Ég spilaði gamla stöffið á Re-Invention- tónleikaferðinni“. Sharon Osbourne segir Madonnu eins og gamla mellu Sharon Osbourne segir Madonnu líta út eins og „gamla mellu“ og gagnrýnir hana fyrir að skifta endalaust um ímyndir. „Einn daginn klæðir hún sig eins og mellu, annan eins og hestagellu og ann- an og þann þriðja er hún farin að lesa fyrir litlu börnin þar sem hún lítur út eins og bókasafns- fræðingur og svo aftur eins og mella“. Osbourne spyr sig hver Madonna sé eiginlega og segir hana orðna of gamla fyrir þetta og segir að hún ætti alla vega að vita hvaða trúabrögð hún aðhyllist en eins og flestir vita hefur Madonna tekið upp Kabbalah trú. „Þú getur ekki verið með mismun- andi ímyndir og samt verið trú sjálfri þér en mér er alveg sama hver þú ert“. Sharon er heldur ekki sátt við að hún sé að skrifa heimskar barnabækur og að hún skuli lesa þær fyrir börn. 9-15.nóv Brauöstangir opið alla daga 16-22 Rekjavíkurvegi 62 Hafnarfirði Núpalind 1 201 Kóp

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.