blaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 11
mdur
Símar: 660 4753 • 462 4250
www.tindur.is • tindur@tindur.is
Fyrsti kossinn
er oröinn lansur
RÚNAR JÚLÍUSSON
HERRA
ROKK
ÁSGEIR TÓMASSON
■•'afc, \
V-á.
„Rokklífið á (slandi er bara tilbrigði við Rúnar Júl“. Bjartmar Guðlaugsson
„SKYLDULESNING!" Hemmi Gunn
•n1
Rúnar Júlíusson stendur á sextugu.
Hann gekk í bítlahljómsveitina Hljóma
úr Keflavík 18 ára, var kominn á topp-
inn nokkrum vikum síðar og hefur
verið þar síðan. Við upphaf tónlistar-
ferilsins stóð knattspyrnuferillinn
sömuleiðis í blóma.
í bókinni HERRA ROKK lítur Rúnar
yfir tónlistarferilinn til þessa dags,
rifjar upp gömul afrek af knattspyrnu-
vellinum og segir frá öðrum baráttu-
málum sínum svo sem því að halda
lífi eftir að í Ijós kom fyrir nokkrum
árum að hann hafði verið með hjarta-
galla frá fæðingu.
Höfundur er Ásgeir Tómasson,
fréttamaður.
Meðal þeirra sem segja frá:
Þorsteinn Eggertsson
Magnús Kjartansson
Magnús Torfason
Gerður G. Bjarklind
Hermann Gunnarsson
Amundi Amundason
Björgvin Halldórsson
Bjartmar Guðlaugsson
Óttar Felix Hauksson
Valgerður Sverrisdóttir
Hemmi Gunn:
„Við Rúnar vorum and-
stæðingar inni á vellinum
en samherjar á skemmti-
stöðum".
Guðni Ágústsson, ráðherra:
„Fyrstu minningar mínar um Rúnar Júlíusson eru 40 ára gamlar. Þá var ég stadd-
ur á Laugarvatni. Þar var Landsmót ungmennafólaga. Séníið úr Keflavík er að
koma á lokuðum bll inn á Landsmótið. í lögreglufylgd. Glæsilegur maður, Rúnar
Júlíusson. Líkur Þóroddi frá Þóroddsstöðum. Fullur af orku stóðhestsins stígur
hann út. Það líður yfir ungu stúlkurnar sem snerta hann. Ég stend þarna 16 ára
unglingur og horfi á þetta undur og er það ógleymanlegt. Ég geri mér grein fyrir
þv( að ég hef hitt séníið úr Keflavík sem er að breyta (slandi. Sem hefur tekið að
sér að flytja hljóminn, röddina, heim. Sem gerir kröfur um frelsi æskunnar. Bítl-
arnir, Rolling Stones, Hljómar. Afl til æskunnar, til að gera uppreisn á heimilum.
Það eru fjörutíu ár síðan ég upplifði þetta vor á Laugarvatni. Engin stúlka leit á
mig. Allar elskuðu Rúnar Júlíusson."