blaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 36
36 I SWYRTIVÖRUR
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 blaöi6
Heimatilbúnar snyrtivörur
Gulrótarmaski og glimmergel
Þrátt fyrir að hægt sé að fá allar mögulegar snyrtivörur í verslunum landsins þá hefur krafan um heimatilbúnar
snyrtivörur aukist, sérstaklega hjá þeim sem láta sig varða hvaða efni eru í snyrtivörum. Margir hafa því horfið
aftur í tímann til forfeðra okkar og búið til sínar snyrtivörur sjálfir. Það er ekkert endilega auðveldasta leiðin að
búa til eigin snyrtivörur en það er óneitanlega sniðugur kostur fyrir þá sem er ekki sama hvað leynist í snyrti-
vörunum. Með því að búa til snyrtivörurnar sjálf er enginn vafi á hvað í þeim er og auðveldara er að átta sig á
hvað hentar hverjum og einum. Hér koma nokkrar góðar uppskriftir að snyrtivörum:
Gulrótarmaski, fyrir feita húð
3 stórar gulrætur
5 matskeiðar af hunangi eða hreinu jógúrti
Gulræturnar soðnar og stapp-
aðar (einnig hægt að setja þær í
matvinnsluvél). Bætið hunangi eða
jógúrti við. Berið varlega á andlitið,
byrjið á höku og færið ykkur upp
andlitið. Hafið maskann á andlitinu
í 15-20 mínútur og hreinsið síðan af
með volgu vatni.
Glimmer gel
'Abolli af Aloeveragel
1 teskeið glýseról
'h teskeið smátt glimmer
5 dropar af einhvers konar ilmolíu
Blandið saman gelinu og glýser-
ólinu í litla skál. Blandið glimm-
erinu og ilmolíunni saman við. Ef
vilji er fyrir hendi má líka setja lit
i blönduna.
Hrukkukrem
1 matskeið lanólín
2 teskeiðar af sætri möndluolíu
2teskeiðarafvatni
2 teskeiðar af þorskaolíu
Bræðið lanólínið með þorskaol-
íunni. Síðan er vatninu bætt við
en þar eftir er blandan látin kólna.
Bætið þorskaolíunni við. Berið var-
lega á andlit.
Varasalvi
1 teskeið AloeVera gel
'/2 teskeið kókoshnetuolía
1 teskeið jarðolíuhlaup
Blandið saman í glerskál og hitið í
1-2 mínútur á hæsta styrk í örbylgju-
ofni. Úr þessu verður til um það bil
15 grömm afvarasalva.
Góð fegrunarráð
Fegurðin kemur utanfrá
Flestir kannast við að lakka
út fyrir þegar neglurnar eru
lakkaðar. Sérstaklega getur
þetta verið hvimleitt ef lakkið
er dökkt. Ráða má bót á þessu
með því að leggja hendurnar í
bleyti í heitu vatni, þegar lakkið
er orðið þurrt. Eftir nokkrar
mínútur má þurrka auka nagla-
lakkið af varlega.
Passaðu þig á að draga ekki eða
toga húðina í kringum augun
þegar farði er settur á eða fjar-
lægður því það getur ýtt undir
hrukkumyndun.
Nuddaðu varirnar annars lagið
með mjúkum tannbursta til
að auka blóðflæði og fjarlægja
dautt skinn.
Með því að nudda meðferðis
jaxlalínunni að utanverðu get-
urðu komið í veg fyrir spennu
sem myndast oft í þessum
hluta andlitsins og leiðir til höf-
uðverkja og tannpínu.
Hreinsaðu andlit og háls kvölds
og morgna.
Notaðu handáburð í hvert sinni
sem hendur þínar komast í tæri
við vatn auk þess að bera hann
á þig á kvöldin.
Flestir kannast við að lakka út fyrir negl-
urnar en það er auðvelt að laga það.
• Forðastupróteinríkanmateftir
kl. 19.00 ef þú vilt sofa vel þar
sem það tekur lengri tíma að
melta hann. Reyndu að borða
kvöldmatinn fyrir kl. 19.00.
• Ef hárið þitt er líflaust skalt
greiða örlítið afkókoshnetuo!
í hárið og hafa hana í yfir nótt.
• Forðastu að sleikja varirnar ef
þú ert með varaþurrk þar sem
það þurrkar þær enn meira
Gagnlegar húdvörur
Shiseido Eye and Lip Cream
Shiseido hefur sett á markað nýtt augn-
krem sem ber heitið Future Solution Eye
and Lip Contour Cream. Kremið er mjög
virkt og vinnur gegn öldrun viðkvæmrar
húðar kringum augu og munn. Kremið
lyftir slappri húð, sléttir og styrkir yfirborð-
ið, dregur úr dökkum baugum og þurrki
umhverfis augu og munn.
6
Max Mara Body Scrub
Max Mara hefur sent frá sér Polishing
Body Scrub. Þetta er áhrifaríkt korna-
krem fyrir likamann sem fjarlægir dauðar
húðfrumur og hentar sérstaklega vel
fyrir þurra húð. I kreminu, sem er gróft
og örvar húðina, er linen seed sem
verndar og viðheldur réttu rakastigi
húðarinnar. Auk þess er einstaklega góð
lykt af kreminu eins og Max Mara er von
og vísa.
PRIHHP
Viccy Magic Musdes
Þessi kubbur frá Lush hentar einkar vel
fyrir fólk sem æfir mikið því kubburinn
hitar upp vöðva og stuðlar að því að þeir
jafni sig eftir erfiða æfingu. Kubburinn
inniheldur meðal annars kakósmjör, pipar-
myntuolía og kókoshnetuolíu. I kubbnum
eru líka adukibaunir sem virka eins og litlir
nuddandi fingurgómar.
JW\j 1 lOO
ÖVo-fVflonitdtue
Suptr R*»tot*«j Ctcam , /y
Cf«nr Sgpr. AÞW
Anti-Cellulite Wraps frá Lancöme
Lancóme hefur sent frá sér vafninga sem eiga að vinna á hinni
hvimleiðu
appelsínuhúð sem svo margar konur kannast við. (vafningunum
eru virk efni unnin úr plöntum, kastaniu og kaffíni sem vinna kröft-
uglega að því að takmarka myndun fitu strax í upphafi og eyða fitu
og úrgangsefnum sem þegar eru til staðar.
Shiseido Super Restoring Cream
Bio Performance Super Restoring Cream frá Shiseido er
hrukkukrem sem styrkir húðina. Bio Performance krem-
linan er hátæknileg lína sem gefur hámarksárangur sem
er sýnilegur. Kremið gefur húðinni unglegra yfirbragð
og (það er notuð liftækni til að bæta hrukkur og auka á
teygjanleika húðarinnar. Kremið vinnur því gegn öldrun,
endurheimtir unglegt útlit og viðheldur unglegu útliti.
I ICTII I Ol I C~»l
fyrirframgreidd símakort fyrir alla síma
töl til útlanda - allt að 1630 mínútur