blaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 45

blaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 45
blaöið FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 DAGSKRA I 45 Hjálpum þeim frumflutt Myndbandið við „Hjálpum þeim” verður frumflutt í dag samtímis í Kastljósi á Rúv og í íslandi í dag á Stöð 2. Myndbandið er unnið af Maríönnu Friðjónsdóttur fyrir Saga- film en Marianna klippti einnig saman myndbandið fyrir Hjálpum þeim 1985. Allir tónlistarmennirnir sem tóku þátt í laginu koma fram í myndbandinu og það má fullyrða að aldrei hafa jafn margar stjörnur tekið þátt í gerð eins og sama myndbandsins. Biskup íslands lofaði íslenska tónlistarmenn í predikun sinni um helgina. „Nú tekur landslið ís- lenskra popptónlistarmanna aftur höndum saman um endurútgáfu þessa lags til ágóða fyrir hjálpar- starfið í Pakistan og annars staðar þar sem leitast er við að mæta hinni gleymdu neyð á okkar hrjáðu jörð. Mikið eigum við þessu góða fólki að þakka, sem enn og aftur gefur af sér til góðs, án þess að krefjast neins fyrir sinn snúð” sagði Biskup meðal annars. Hjálpum þeim er væntanlegt í verslanir 10. desember GLÆPSAMLEGA SPENNANDI Þú ferð ekki langt á meðan þú lest þessa ... EITTHVAÐ FYRIR... ...góðgerðahugaða Sjónvarp, Tíska og tónar, -kl. 20.40 Upptaka frá fjáröflunarsamkomu í Monte Carlo fyrir góðgerðarsjóð Karls Breta- prins þar sem sýnd voru föt frá mörgum af frægustu tískuhúsum heims og þekktir tónlistarmenn stigu á svið þar á meðal Zucchero, Jon Bon Jovi og Mariah Carey. Stöð 2, 20:10 Arrested Develop- ment (17:22) Hvað er til bragðs að taka þegar maður er eini sem er með réttu ráði í allri fjöl- skyldunni? ÞegarfaðirMi- chaels Bluths er sendur í steininn fyrir skattsvik þá kemur það skyndilega í hlut hans að halda fjöl- skyldufyrirtækinu gangandi, hvort sem honum líkar betur eða verr. ...svikara ...örlaganornir Skjár 1, Charmed, kl. 20:35 Bandarískir þættir um þrjár fagrar og kynngimagnaðar örlaganornir. Chris lendir illa í því þegar Bianca kona úr f r a m - tíðinni k e m u r til þess að ná af honum kröft- u n u m . Leo kemst að því að hún er ættuð af mjög vondum nornum og Paige ákveður að flytja til Richard. ■ Stutt spjall: Sigga Lund Sigga er með morgunþáttinn á Létt 96.7 alla virka daga milli 9 og 14 Hvernig hefurðu það í dag? Hef það alveg rosalega gott, reyndar er alveg brjálað að gera. Jólin eru að koma og jólastöðin okkar að fæðast í þessum töluðu orðum. Við erum alveg búin að skipta yfir í jólatónlistina ogjólastemning- una, við erum jólastöðin (ár. Hvenær hófstu fyrst störf í fjölmiðlum? Ég byrjaði hér á Létt fyrir þremur árum síðan, og það var í fyrsta skipti sem ég var í fullu starfi í útvarpi. Ég talaði hins vegar í fyrsta skipti í útvarp þegar ég var 14 ára, og þá var ég með þátt í sjálfstæðisútvarpi Eyjamanna, þegar bæjarstjórnarkosn- ingarnar voru og afi minn var að bjóða sig fram til forseta Bæjarstjórnar. Ég var fengin til að koma með vínilplötur og þeyta skífur. Þar fékk maður ákveðna útvarpsbakteríu. Þannig að þú hefur jafnvel síðan þá hugsað þér að starfa við eitthvað svip- að í framtíðinni? Já mig dreymdi það alltaf, og fór á fjöl- miðlabraut í F.B. í gamla daga. Síðan hvíldi ég drauminn, en hófst svo aftur handa síðar meir. Gætirðu lýst dæmigerðum degi í lífi Siggu Lund? Ég vakna og vanalega reyni ég nú að fara í ræktina á morgnana en þegar það er bú- ið að vera sem kaldast þá hef ég nú kúrt aðeins lengur. Ég fæ mér orkusjeik og fer í morgunsturtuna og tek mig til og fer upp í vinnu. Þar kíki ég í blöðin og opna svo þáttinn minn klukkan níu, og ertil tvö. Þar er ég að leika Ijúfa tónlist og kíkja í blöðin og segja fréttir af umferðinni og fólki og fleiru. Eftir þáttinn sinni ég öðru, en ég er verkefnastjóri stöðvarinnar og þarf því að sinna uppsetningu dagskrár, auglýsingatr- eileragerð og ýmsu öðru. Hvað er uppáhaldstíminn þinn? Mérfinnst mjög gott að skríða heim eftir langan vinnudag. Ekki það að mér leiðist í vinnunni, en það er bara svo gott þegar búið er að vaska upp og maður getur hvílt lúin bein. Mérfinnst það voða notalegt. Mannstu eftir einhverju neyðarlegu sem hefur komið fyrir í beinni útsend- ingu? Já, stundum lendir maður í erfiðleikum með að koma hlutunum rétt út úr munnin- Er útvarpsstarfið öðruvísi en þú hafðir ímyndað þér áður? Að vissu leiti og vissu leyti ekki. Það er rosalega gaman, en líka áskorun á marg- an hátt. Maður þarf alltaf að mæta með góða skapið og skapa gott andrúmsloft og láta gott af sér leiða. Hvað er skemmtilegast við starf- ið? Ég myndi segja allt fólkið sem maður fær að hitta, þó þetta sé oft einmana- legt starf lika. Maður situraleinn inni í stúdíói en er samtaðtala við milljón manns. Enallt í kring um þetta ersvo skemmti- legt: Þegar maðurferíbeinar út- sendingar, þegar maður fer á viðburði sem tengjast vinnunni, og á marga tón- leika. Maður hittir mikið af frábæru fólki. um, og einu sinni var ég með virðulegan gest í hljóðstofu, yfirlögreglustjóra, og var að taka viðtal. Ég er að fara að segja eitt- hvað, en beygi orðið vitlaust þannig að það kemur vitlaust út úr mér. Svo ætla ég að leiðrétta mig en það kemur bara alltaf vitlaust út, þannig að það er alveg eins og ég stami, og svona stamaði ég örugglega fimm sinnum áður en ég hitti rétt á orðið. Rosalega neyðarlegt! Hver myndir þú vilja að væri lokaspurningin í þessu stutta spjalli? Ég myndi vilja að hún væri:„Hvaða útvarpsstöð ætlar þú að hlusta á á aðvent- unni?“ og þá myndi ég segja: „Að sjálfsögðu jólastöðina á Létt 96.7" Hver er að þínu mati versti sjónvarpsmaður íslands? Hákon Björn Hemmi Gunn. Jón Kristófer Sturluson Ég veit það ekki. Jónþór Erlings- son Silvía Nótt. ■ Spurning dagsins Sagan gerist á íslandi og annarri eldtjallaeyju í Ijarska og saman tvinna mannlegur breyskleiki, ástir, vinátta, fórnir og svik ofurspennandi og litríkan sagnavef. Þetta er önnur skáldsaga Ingibjargar Hjartardóttur; sú fyrri, Upp til sigurhæða, fékk mikið lof fyrir stílsnilld og HMagnús Þór Sverrisson Jón Gnarr. Þorsteinn Rún- ar Eiriksson Ég veit það ekki, ég horfi ekki mik- ið á sjónvarþ. frásagnargleði. 1

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.