blaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 34

blaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 34
34 I MENNING FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 blaöi6 Huldukonur og Ijósmyndir Sunnudaginn 4. desember kl. 14:00 verða opnaðar þrjár nýjar sýningar á Þjóðminja- safni íslands. Sýningarnar eru: Huldukonur í íslenskri mynd- list - Norður. Ljósmyndir Marco Paoluzzo og Aðflutt landslag. Ljósmyndir Péturs Thomsen. Sýningin Huldukonur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar. Konurnar nutu þeirra forréttinda að nema mynd- list erlendis á síðustu áratugum 19. aldar og upp úr aldamótum. Engin þeirra gerði myndlist að ævistarfi eða átti sér sjálfstæðan og óslitinn listferil eftir að þær sneru heim. Framlag þeirra er engu að síður hluti íslenskrar menningar- og kvennasögu ekki síður en listasögu. Allar tilheyrðu þær efri stétt þjóðfé- lagsins, voru dætur embættismanna, kaupmanna og efnaðri bænda og nutu í námi stuðnings fjölskyldna sinna. Á sýningu Þjóðminjasafns Islands verður leitast við að svipta hulunni af þessum konum. Sýningin Norður eftir Marco Paoluzzo er kjarni ljósmynda frá Islandi en einhver hluti er frá Fær- eyjum. Sýningin Norður er eins konar útgáfusýning tengd útkomu nýrrar bókar North Nord. Aðflutt landslag er sýning með ljósmyndum Péturs Thomsens. Hann hefur vakið athygli erlendis fyrir ljósmyndir sínar og var einn af 50 ungum ljósmyndurum sem val- inn var til þátttöku í alþjóðlegri ljós- myndasýningu ungra ljósmyndara ReGeneration. Photographers of to- morrow 2005-2025. Myndirnar sem sýndar verða eru litmyndir teknar á virkjanasvæði Kárahnjúka. Sýningarnar standa til 20. febrúar 2006. Mynd eftir Kristínu Þorvaldsdóttur. Metsölulisti erlendra bóka ^ The Broker John Grisham Red Lily Nora Roberts j ShadowoftheWind Carlos Ruiz Zafon 4 Veronika Decides to Die Paulo Coelho Graphic Design Now 5- Fiell & Fiell 6 1000 Extra/Ordinary Objects Taschen ? TheBigBookofSuDoku Mark Huckvale Harry Potter and the Half-biood Prince J.K. Rowling StateofFear Michael Crichton . The Chronides of Narnia C.S. Lewis Listinn er gerður út frá sölu dagana 23.11.05 - 29.11.05 Bókabúðum Máls og menningar, Eymundsson og Pennanum BMiDMki Nýtt fólk til að gleðja „Jóhann Friðgeir Valdimarsson hafði nokkrum sinnum komið að máli við mig og rætt um sameigin- lega tónleika. Ég hafði ekki tíma til að sinna þessu fyrr en nú þegar ég átti lausa helgi. Við hringdum síðan í þriðja tenórinn, Snorra Wium, sem er búsettur í Vín og í ljós kom að hann var sömuleiðis laus þessa helgi. Við ákváðum því að skella okkur í tónleikahald,“ segir Gunnar Guð- björnsson en íslensku tenórarnir þrír verða með tónleika í Islensku Óperunni næstkomandi sunnudag, 4.desember klukkan 17. „Tónleikarnir eru í léttum dúr. Við syngjum lög úr söngleikjum, íslensk lög og læðum inn einni og einni róm- antískri og fallegri aríu og ítölskum sönglögum" segir Gunnar. „Oft er það þannig að fólk sem hefur ekki sýnt klassík nokkurn áhuga fyllist áhuga á henni eftir að hafa hlustað á hana í bland við léttari lög. Þessi uppgötvun verður svo oft til þess að þetta sama fólk fer að mæta á Sinfóníutónleika og í óperuna. Einn tilgangurinn með tónleikum eins og þessum er sá að finna okkur nýtt fólk til að gleðja.“ Tenórarnir þrír. Jóhann, Gunnar og Snorri halda tónleika í Óperunni næstkomandi sunnudag. Barnabœkur og Ijóð i Bókabúð Máls og menningar Um helgina verður bókmenntadag- skrá í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18. Á laugardaginn er dagskrá helguð börnum. Töframaðurinn Jón Víðis kynnir Töfrabragðabókina. Aðal- steinn Ásberg flytur efni úr Romsu- bókinni og tekur Iagið. Sigrún Edda kynnir myndasöguna Rakkara- pakk. Otgáfan Stílbrot kynnir bók- ina Tröllafell og tölvuleik á netinu sem henni fylgir. Skoppa og Skrítla koma í heimsókn. Einnig verða höf- undarnir Kristfn Helga, Ragnheiður Gestsdóttir, Halldór Baldursson og Gæludýra-Guðrún á staðnum. Dag- skráin hefst klukkan 14. Sunnudagurinn verður tileink- aður ljóðinu. Ljóðabókaútgáfa ársins verður í forgrunni og ljóð- skáldin mæta á staðinn, spjalla við viðskiptavini, lesa upp úr bókum sínum og árita. Dagskráin stendur frá kl. 15.00 -17.00 og þeir sem taka þátt eru: Halldóra Kristín Thoroddsen með bókina Gangandi vegfarandi Haukur Már Helgason með bók- ina Rispajeppa Þorsteinn frá Hamri með Dyr að draumi Óttar Norðfjörð með Gleði og glötun Kristjan Guttesen með Litbrigða- myglu Sölvi Björn Sigurðsson með Gleði- leikinn djöfullega. Aðallistinn - allar bækur 7 Stóra orðabókin um ísi. málnotkun ' Jón Hllmar Jónsson 2 Vetrarborgin Arnaldur Indriðason 3 Islandsatlas ' Hans H.Hansen 4 Þriðja táknið Yrsa Sigurðardóttir Fiskur! S.C. Lundin / H. Paul / J. Christensen 6 Sólskinshestur Steinunn Sigurðardóttir ? Gæfuspor - Gildin í lífmu GunnarHersveinn Auður Eir - Sólin kemur alltaf upp.. Edda Andrésdóttir j Djöflatertan Marta María Jónsdóttir / Þóra Sigurðardóttir 10 Rokland Hallgrímur Helgason Listinn er gerður út frá sölu dagana 23.11.05 - 29.11.05 Bókabúðum Máls og menningar, Eymundsson og Pennanum Stóra orðabók- in veltir kóng- inum úr sessi Arnaldur Indriðason er ekki ósnertanlegur, eins og margir myndu ætla, þvi helstu tíðindi á metsölulista Pennans Eymunds- sonar þessa vikuna eru þau að Stóra orðabókin um íslenska málnotkun situr þar í efsta sæti. Nýjasta glæpasaga Arnaldar, Vetrarborgin, er i öðru sæti. Metsölulistinn er reyndar á nokkurri hreyfingu frá viku til viku þannig að fróðlegt verður að sjá hvernig röðunin verður að viku liðinni. Harry Potter kemst ekki á topp tíu listann vegna þess að hún er barnabók en barnabækur eru flokkaðar sér og komast ekki inn á topp tíu listann sama hversu vel þær seljast. Það vekur athygli að Jónsbók Einars Kárasonar og Jóns Ólafssonar er ekki á topp tíu listanum en fyrirfram var reiknað með henni sem einni af söluhæstu bókum þessarar jólabókarvertíðar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.