blaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 20
20 I HEILSA
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 blaöið
Alnœmi:
Sameiginlegt vandamál heimsins
Meira en 40 milljónir manna í heiminum eru sýktar af HIV veirunni og lifa með sjúkdómnum. Þetta er aðeins fjölmennari hópur en allir
Pólverjar. Næstum tveir þriðju hlutar þessa fólks býr í Afríku sunnan Sahara eyðimerkurinnar þar sem hlutfall kvenna meðal smitaðra hefur
aukist mikið undanfarið. Nú til dags er hlutfall smitaðra kvenna næstum því jafnhátt hlutfalli karla. HIV veiran dró meira en þrjár milljónir
manna til dauða árið 2004 og hefur því verið spáð að þessi tala muni hækka á næstu árum. HIV dagurinn var haldinn um allan heim í
gær, m.a. hér á íslandi, til að vekja fólk til umhugsunar um þessa hættu sem vofir yfir heiminum.
Birna Þórðardóttir, framkvæmda-
stjóri Alnæmissamtakanna á ís-
landi, segir gleðilegt að hér á landi
hafi nýsmituðum fækkað hlutfalls-
lega meðan að tölur í nágrannalönd-
unum sýni öfuga þróun. „Það sem af
er árinu hafa þó sex manns greinst
með HIV á íslandi og má segja að
það sé sex sinnum of há tala.“ Hún
segir mikilvægt að fólk geri sér
grein fyrir hættunni. „Við sjáum t.d.
á klamydíusmiti að ungt fólk sýnir
áhættuhegðun í kynlífi. Á fyrstu
sjö mánuðum ársins voru t.a.m.
þúsund klamydíusmit greind hér á
landi og átti ungt fólk oftast í hlut.
Hópurinn frá 15 ára upp í 24 ára er
langfjölmennastur þarna sem segir
okkur að þessi áhættuhegðun er í
gangi sem eykur líkur á HIV smiti.
Þegar kynlífshegðun er svona þá er
voðinn vís.“
Fræðsla
Eina leiðin til að fækka smitum er
að fræða fólk. „Við höfum náð að
safna styrkjum til að fara í tvisvar
í fræðsluferðir I alla grunnskóla
landsins og við teljum það mjög
mikilvægt. Af því að þetta er eitt-
hvað sem þarf stöðugt að vera í
gangi. Það er ekki nóg að vera með
eina risaherferð með tilheyrandi
látum heldur þarf fræðslan að vera
stöðugt í gangi. Það eru alltaf nýir
einstaklingar að vaxa úr grasi og
þeir þurfa fræðslu líka, hver ein-
staklingur skiptir máli í þessu sam-
bandi.“ Aðspurð segir Birna að ekki
sé næg fræðsla hér á landi. „Nei, það
er ekki nægileg fræðsla. Til dæmis
vantar mikið upp á að fólk viti um
smitleiðir. Það er talað um þrjár mis-
munandi leiðir; sýkt
sæði í blóð, sýkt blóð
í blóð og svo getur
smitast frá móður
til fósturs. Það síðast-
nefnda hefur þó ekki
gerst hér á landi.“
Smokkar
,Við höfum lagt mikla
áherslu á aðgengi
að smokkum,“ segir
Birna. „Smokkar eru
dýrir og mörgum
krökkum þykir mjög
vandræðalegt að ícaupa þá, ekki síst
úti á landi. Það má til dæmis reikna
dæmið öfugt, þ.e. ekki tapið sem
hlýst af því að kaupa smokka heldur
kostnaðinn sem sparast á því að smit-
ast ekki af kynsjúkdómum. Lyf sem
eru notuð hér á landi við HIV kosta
a.m.k. um 150 þúsund á mánuði
fyrir hvern sýktan einstakling. Það
væri þjóðhagslega mikill akkur af
því að koma I veg fyrir þessi útgjöld
hjá einum slíkum einstaklingi, hvað
þá fleirum. Mér finnst oft vanta að
hugsa málin á þennan hátt.“
Fjölmargir Islendingar lifa með
sjúkdóminn og berjast við hann
daglega. „Þvl miður eru fordómar
á Islandi gagnvart HIV smituðum.
Þetta þykir ófínn sjúkdómur, bæði
vegna smitleiða og vegna þess að
sprautufíklar eru I
áhættuhópi. Svo er
HIV enn með stimpil-
inn sem hommasjúk-
dómur og þá kemur
hommafælnin og
allur sá pakki líka
inn í myndina. En
HIV veiran spyr ekk-
ert um kynhneigð,
henni er skítsama
um slíkt. Hún vill
sitt blóð og ekkert
meira.“
Skilaboð Birnu í
til almennings í tilefni dagsins eru
einföld; „Að fólk sýni sjálfu sér og
öðrum virðingu og noti smokkinn.
Og geri ekkert I eigin kynlífi sem
misbýður því og láti ekki neyða sig
til einhverra athafna."
agnar. burgess@vbl. is
Birna Þórðardóttir,
framkvæmdastjóri og Ingi
Rafn Hauksson, formaður
Alnæmissamtakanna.
••• SANNKÖLLUÐ •••
JOLASVEIFLA
JÓLAGJAFIR SEM ENGINN KYLFINGUR SLÆR Á MÓTI
Rauði borðinn er tákn alnæmisbaráttunnar um ailan heim. Hér er hann í Austur Tímor.
Kínverskir verkamenn fengu fyrirlestur um öruggt kynlíf.
ORYX GOLFSETT
VANDAÐ GOLFSETT MEÐ 4-SW, DRIVER
(400 CC), ÞRJÚTRÉ, HALFVITA, PÚTTER
OG BURÐARPOKA
VERÐ: 24.900,-
VERÐ AÐUR: 35.700,-
FARA GOLFSKÓR OG GOLFHANSKI
FYLGJA FRÍTT MEÐ
ÞRÍHJÓLA KERRA
LÉTT OG MEÐFÆRILEG ÁLKERRA SEM
HÆGT ER AÐ OPNA OG LOKA MEÐ
EINNI HREYFINGU
VERÐ: 7.920,-
VERÐ ÁÐUR : 9.900,-
OPNUNARTÍMI
MÁN. - FÖS.....10:00- 18:00
LAUGARDAGA.....10:00 -16:00
SUNNUDAGA.....12:00 - 16:00
GJAFABREF
FYRIR VORUR AÐ EIGIN VALI
ER TILVALIN JÓLAGJÖF TIL
VINA OG ÆTTINGJA
HIV hylmir engum. Amina Khatun, fyrrverandi vændiskona, er HIV smituð og sagði
fólki sögu sína á Indlandi.
Stærsta minnismerki Buenos Aires f Argentínu var fært f risasmokk.