blaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 24
24 I BESTI BITINN
FÖSTUDAGUE 2. DESEMBER 2005 blaöiö
Pitan lifir góðu lifi
Pítan er skyndibiti sem notið hefur stöðugra
vinsælda hér á landi síðustu áratugina. Fyrsti
Pitu staðurinn opnaði í Skipholtinu þar sem
hann hefur verið alla tíð síðan. Pítan er ágætis
tilbreyting frá hamborgurunum og hin sér-
staka pítusósa, ásamt pítubrauðinu, gefur
henni ákveðið bragð sem vart á sinn líkan ann-
arsstaðar í skyndibitaflórunni. Pítan rekur
uppruna sinn alla leið til Egyptalands og
Mið-Austurlanda og er aldagömul uppfinning.
Sumir segja að hið sérstaka pítubrauð sé frá Sýr-
landi, aðrir frá Arabíu og enn aðrir vilja eigna
ísraelum heiðurinn að því. Svo eru enn aðrir
áhugamenn um pítumenninguna sem telja að
það hafi verið Sókrates og félagar á Grikklandi
til forna sem fyrstir hafi skellt í deig sem úr
varð pítubrauð. Ef marka má ensku Oxford
orðabókina var orðið píta fyrst kynnt til leiks
á enskri tungu árið 1951. Gríska tengingin fær
svo byr undir báða vængi í öðrum orðabókum
þar sem orðið píta er talið tengjast gríska
orðinu fyrir böku, köku og brauð. Það sem
gerir pítubrauðið sérstakt, og aðskilur það frá
öðrum er sú staðreynd að við bakstur blæs
brauðið út, sem gerir það að verkum að auð-
velt er að skera í það eftir bakstur, og mynda
einskonar vasa, sem auðvelt er að troða út af
allskyns góðgæti, salati, kjöti, osti og sósu.
Pítan náði vinsældum í Bandaríkjunum þegar
veitingastöðum sem helguðu sig Mið-Austur-
lenskri matargerð fór að fjölga, og hefur í dag
náð miklum vinsældum. Það er áætlað að pítu-
neysla aukist um tíu prósent á hverju ári þar í
landi. Hér hefur pítan alltaf siglt sinn sjó og
flóð annarra skyndibita eins og pizza, ham-
borgara, báta og burrító, svo ekki sé talað um
Boozt og allskyns heilsufæði, aldrei náð að kaf-
færa pítunnni að fullu.
adalbjorn@vbl. is
Besta pítubrauðið
American Style er staður sem fest hefur sig í sessi sem einn af betri og vinsælli hamborg-
arstöðum landsins. Það er þó ljóst að ekki eru bein tengsl á milli hæfileikans til að gera
góða borgara, og þess að geta framreitt pítu sem eitthvað er varið í. Það fyrsta sem stakk
í augun var brauðið. Ekki var um hefðbundið pítubrauð að ræða, heldur eitthvað sem sór
sig í ætt við hamborgarabrauð, án þess þó að vera hamborgarabrauð. Brauðið var einnig
allt of stórt miðað við innihaldið, sem var heldur rýrt og samanstóð aðallega af papriku.
Þó var þar að finna buff, en það var algjörlega ofurliði borið af grænmetinu og brauðinu.
Einum smakkara varð að orði: „Hamborgarastaðir eiga að halda sig við hamborgarana.“
American Style - Nýbýlavegi 22 - Píta meö buffi, franskar og kók meö frírri áfyllingu kostar 1085 krónur.
Frumkvöðull í forystu
Pítan í Skipholti er frumkvöðullinn á pítusviðinu hér á landi. Staðurinn hefur verið rekinn
þar um áratuga skeið, og staðið af sér allar tískusveiflur íslenskrar skyndibitamenningar.
Hamborgara, pizzur og báta hefur rekið á fjörur áhugamanna um skyndibita, en alltaf
hefur Pítan í Skipholti staðið fyrir sínu. Það kom því ekki sérstaklega á óvart að þar fengum
við bestu pítuna í prófinu og ljóst er að áratuga reynsla í pítugerð er að skila sér til bragð-
laukanna. Greinilegt var að lagt var meira í sósuna hjá þeim en annars staðar tíðkast. Það
eina sem sett var út á var að buffið var heldur rýrt. Samt sem áður: Besta pítan í bænum.
Pítan - Skipholti 50c
Píta með frönskum kostar 1050
f Snæland video í Núpalind er ágætis úrval allskyns skyndibita, og þar er pítan engin und-
antekning. Við fengum ágætis pítu með buffi og var hún sæmilega útilátin. Sósan er ágæt
og brauðið var með því besta sem við smökkuðum. Þó var eins og vantaði einhvern neista í
framreiðsluna eða eins og einn smakkara orðaði það: „Það er ekkert nýtt í þessu.“
Snæland video - Núpalind 1 - Píta meö buffi, frönskum og kók kostar 6S0 krónur.
Fínir hamborgarar
^ 1 Blaöið/Frikki
Ohætt að mæla með Hroa
Hrói Höttur er betur þekktur sem pizza-staður, en þar er þó boðið upp á ágætlega útilátnar
pítur. Samræmt álit dómnefndar var að pítan hjá Hróa Hetti væri „ferlega góð“, og er óhætt
að mæla með staðnum ef þú vilt fá þér pítu sem er yfir meðallagi.
Hrói Höttur - Hringbraut
Píta, franskar og súpa kostar 990 krónur