blaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2005 blaöiö
Öryrkjar og aldraðir:
Mæla fyrir samfélagi fyrir alla
Fjölmennur útifundur aldraðra ogöryrkja ígær. Fjármálaráðherra með upphrópanir og sleggjudóma á Alþingi segirframkvœmdastjóri Öí.
Öryrkjar og aldraðir gengu fylktu liði í gær undir slagorðinu: „Ekkert um okkur án okkar." Blalii/SteinarHugi
Viðbrögð stjórnarþingmanna við
skýrslu Stefáns Ólafssonar veldur
öryrkjum miklum vonbrigðum að
sögn Arnþórs Helgasonar, fram-
kvæmdastjóra Öryrkjabandalags
Islands (ÖI). Á fjölmennum útifundi
undir slagorðinu: „Ekkert um okkur
án okkar“ í gær sem Öí stóð að ásamt
Landssambandi eldri borgara (LE)
var öllum þingmönnum gefið ein-
tak af skyrslu Stefáns í jólagjöf. Þá
afhenti Olafur Ólafsson, formaður
LE, forseta Alþingis undirskriftar-
lista með sex þúsund nöfnum þar
sem stöðu aldraðra með hliðsjón
af lágum lífeyrissjóðsgreiðslum var
mótmælt.
Vísvitandi eyðilagt
Arnþór Helgason, framkvæmda-
stjóri Öl, segir tilefni útifundarins í
gær hafa verið að hvetja til jákvæðra
aðgerða þar sem mæít er með einu
samfélagi fyrir alla. „Ég held að það
sé kominn tími til þess að íslend-
ingar, og þar á meðal stjórnvöld, átti
sig á því að á undanförnum árum
hefur almannatryggingakerfið vís-
vitandi verið eyðilagt. Ég held að
það stafi m.a. af því að menn hafa
ekki haft neina heildarstefnu og
ekki áttað sig á því hvernig einstakar
aðgerðir hafa unnið mikið skemmd-
arverk." Þá segir Arnþór tilefni fund-
arins hafi líka verið að fagna jólafríi
þingmanna. „Við erum að gleðjast
yfir því að þingmenn skuli fá jóla-
frí á undan öllum öðrum og það er
gleðivottur í skammdeginu.“
Ráðherra til vansa
Skýrsla Stefáns varð tilefni til
snarpra orðaskipta í utandagskrár-
umræðu um örorku og velferð
á Alþingi í gær. Þar sagði Árni
M. Mathiessen, fjármálaráðherra,
m.a. skýrsluna vera fulla af rang-
færslum og sagðist ekki skilja hvers
vegna staða íslands væri svert með
þessum hætti. Arnþór segir orð ráð-
herra vera dapurleg og honum til
vansa. „Það hefur valdið Öí miklum
vonbrigðum hvernig stjórnarþing-
menn sérstaklega hafa afgreitt þessa
skýrslu sem þeir virðast alls ekki
hafa lesið. Þeir virðast ekki einu
sinni hafa lesið athugasemdir Stef-
áns Ólafssonar sem hann gerði vegna
athugasemda ráðuneytanna. Á Al-
þingi var t.d. fjármálaráðherra með
upphrópanir og sleggjudóma sem
alls ekki fást staðist og eru manni
í hans stöðu til vansa, opinbera sár-
lega vanþekkingu hans á þessum
málaflokki og sýna betur heldur en
við höfðum ímyndað okkur að ríkis-
stjórnin treystir engum nema þeim
sem hún telur eða mætti telja að
gengi hreinlega erinda hennar.“
Baugsmálið:
Vilja vísa málinu frá dómi
Lögreglan:
Húsleit í Kópavogi
BlaHlt/StelnarHugi
Snákarnir voru vfgalegir þar sem þeir hringuðu sig í búri á lögreglustöðinni i gærmorg-
un. Þeim var síðan fargað í samræmi við sóttvarnarlög.
Verjendur í Baugsmálinu hafa lagt
fram kröfu um að ákæruliðunum
átta sem standa eftir verði vísað frá
dómi og málið fellt niður. Þetta kom
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur i gær.
Sigurður T. Magnússon, settur ríkis-
saksóknari, krefst þess að málið fari
til efnismeðferðar.
Sagði sig frá málinu
Baugsmálið tók enn eina lagafléttu
ef ekki lagafléttur í gær þegar Sig-
urður T. Magnússon, settur ríkissak-
sóknari, upplýsti fyrir héraðsdómi
að hann hefði skrifað ríkislögreglu-
stjóra formlegt bréf þann 6. desember
síðastliðinn og óskað eftir því að emb-
ætti rikislögreglustjóra tæki aftur við
saksókn í málinu. 1 kjölfarið sendi
ríkislögreglustjóri Boga Nilssyni,
ríkissaksóknara, bréf og óskaði eftir
því að hann tæki við málinu. Ríkis-
saksóknari sagði sig síðan formlega
frá málinu og Björn Bjarnason, dóms-
málaráðherra, fól síðan Sigurði T.
Magnússyni málið að nýju. Þessari
atburðarás var hrundið af stað til
að eyða öllum vafa um að Sigurður
T. Magnússon væri bær til að reka
málið fyrir héraðsdómi.
Björn Bjarnason vanhæfur
Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs,
segir Björn Bjarnason vanhæfan
til að setja saksóknara í málinu og
hefur gert kröfu um að málið verði
fellt niður og tilgreinir hann þrjár for-
sendur fyrir því. „Sú fyrsta varðaði
umboð Sigurðar T. Magnússonar og
áhrif þess að hann hafi ekki haft um-
boð til þess að mæta í málinu fram
að þessu. Önnur varðaði hæfi Björns
Bjarnasonar til þess að setja saksókn-
ara í þessu máli og þriðja varðaði
heimildir til þess að flytja mál frá
ríkislögreglustjóra til ríkissaksókn-
ara eftir að ákæra hefur verið gefin
út. Við teljum að í öllum þessum
tilvikum hafi menn ekki farið að
réttum reglum og það á að leiða til
þess að málið verði fellt niður,“ sagði
Gestur. Héraðsdómur mun nú taka
afstöðu til málsins og er niðurstöðu
að vænta í næstu viku.
Lögreglan í Kópavogi lagði í gær-
nótt hald á tæplega 300 grömm
af fíkniefnum við húsleit í íbúð á
höfuðborgarsvæðinu. Um var að
ræða hass en einnig lítilræði af am-
fetamíni. Auk þess lagði lögreglan
hald á tvö skotvopn, loftskamm-
byssu og gasskammbyssu, og tvo
lifandi snáka sem voru geymdir í
búri í íbúðinni. Tveir karlmenn voru
handteknir í tengslum við málið en
þeim var sleppt í gærnótt að loknum
yfirheyrslum. Við húsleitina naut lög-
reglan í Kópavogi aðstoðar sérsveitar
ríkislögreglustjóra, fíkniefnahunds
frá tollgæslunni og fíkniefnalögreglu-
manns frá lögreglunni i Hafnarfirði.
Að sögn Björgvins Björgvinssonar, að-
stoðaryfirlögregluþjóns í rannsóknar-
deild, telst málið að fullu upplýst.
o
Heiðskirt
0 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað x ^ Rigning, litilsháttar ^// Rigning 9 9 Súld ^ Snjókoma
*
Slydda ^~j Snjóél t^J
Skúr
Amsterdam 04
Barcelona 12
Berlín 0
Chicago -08
Frankfurt 0
Hamborg 0
Heisinki -01
Kaupmannahöfn 04
London 06
Madrid 09
Mallorka 13
Montreal -02
New York -01
Orlando 13
Osló 0
París 02
Stokkhólmur 01
Þórshöfn 09
Vín -02
Algarve 15
Dublin 09
Glasgow 11
♦o
'//
/ //
///
//'
/ //*
? 5
5 .
+Q
9 ?
5° ’
0.
5°
///
///
///
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
>0
'/// 4°
4*®
4°
✓ /
/ /
5°
Á morgun
5 9
’o
✓ ✓
/ /
'4°