blaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 10

blaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 10
101 ERLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2005 blaðiö Gíslataka í írak Frestur að renna út Ehab Lotayef erindreki Kanada biðst fyrir í moskvu í Bagdad í gær. Mannræningjar í frak hafa til- kynnt að fjórir vestrænir gíslar verði teknir af lífi í dag verði ekki orðið við kröfum þeirra um að föngum verði sleppt. Aftöku gíslanna var frestað á fimmtudag en ólíklegt er talið að slíkt gerist aftur. Fátt er talið geta komið í veg fyrir að mannræningjar i frak geri alvöru úr þeirri hótun sinni að myrða fjóra gísla, Jim Loney og Harmeed Soo- den frá Kanada, Bretann Norman Kember og Bandaríkjamanninn Tom Fox. Mannræningjarnir, sem kalla sig Sverð réttlætisins, ætluðu upphaflega að taka gíslana af lífi á fimmtudag, en gáfu síðan 48 stunda frest sem rennur út í dag. Þeir hafa krafist þess að íröskum föngum í fangelsum í f rak og Bandaríkjunum verði sleppt úr haldi. Því hefur verið hafnað af stjórnvöldum viðkomandi landa. Kanadamenn hafa sent erind- reka til fraks til að vinna að lausn málsins og hélt hann meðal annars blaðamannafund í Bagdad í gær. Þar kom fram að hann hefði reynt að afla stuðnings við það að gíslarnir verði látnir lausir með fundum við trúarleiðtoga og aðra sem hugsan- lega gætu haft áhrif á ræningjana. Þá hefði verið reynt að koma skila- boðum áleiðis til mannræningj- anna. Þá vonast Kanadamenn til þess að tekið verði tillit til þess að þeir héldu sig að mestu íyrir utan fr- aksstríðið. Tveir gislanna hafa birst á myndböndum undanfarna daga þar sem þeir hafa beðist griða. Þeir hafa verið handjárnaðir og klæddir appelsínugulum stökkum sem sést hafa áður á svipuðum myndböndum. Þá var bundið fyrir augu þeirra. Caroline Hawley, fréttaritari BBC í frak, segir að það sé áhyggjuefni að aðeins tveir gislanna hafi sést á myndböndunum. „Það er greinilegt að mannræningjarnir halda kanad- ísku gíslunum fyrir utan þetta þar sem þeirra land tók ekki þátt átök- unum í írak,“ segir hún HPao #=i_ u rnmGao Hraðsendingar um allan heim Sendum jólapakkana tímanlega með • 220 Hafnarfjörður • 535 8170 • www.hradi.is Hlýnun jarðar farin að ógna samfélagi við Norðurskautið: Frumbyggjar þrýsta á banda- rísk stjórnvöld Samtök frumbyggja við Norður- heimsskaut hafa kvartað undan því að bandarísk stjórnvöld brjóti á mannréttindum þeirra með meintu skeytingarleysi um hlýnun jarðar. Þau hafa enn- fremur farið fram á að mann- réttindanefnd Ameríkuríkja hlutist til um málið. Með því vilja samtökin auka pólitískan þrýsting á ríkisstjórn Banda- ríkjanna um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Meðalhiti hefur hækkað Loftslag er þegar tekið að breytast á Norðurheimsskautinu þar sem með- alhiti á veturna hefur hækkað um allt að 7 gráður á 50 árum samkvæmt alþjóðlegri rannsókn sem gerð var í fyrra. ís er farinn að bráðna þar sem áður var sífreri, ísbreiður við norður- íshaf hafa skroppið saman sem stefnir í hættu ísbjörnum og öðrum dýrum. Ennfremur telja samtökin að veiðimannasamfélagi inúíta stafi hætta af breytingunum. Um 155.000 inúítar í Kanada, Grænlandi, Rúss- landi og Bandaríkjunum eiga aðild að samtökunum. Um 10.000 manns hafa tekið þátt Lífríki og samfélagi manna á Norður- skautinu stendur ógn af hlýnun jarðar samkvæmt nýjustu rannsóknum. í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna í Montréal en hún er sú fyrsta sem fram fer siðan Kyoto-bókunin tók gildi í febrúar á þessu ári. Sam- kvæmt henni skuldbinda 35 iðn- vædd ríki sig til að draga úr losun koltvíoxíðs og annarra lofttegunda sem valda hlýnun loftslagsins. Af stærstu iðnvæddu þjóðunum hafa að- eins Bandaríkin og Ástralía hafnað samkomulaginu en það miðar að því að draga úr losun gróður- húsalofttegunda um að meðaltali 5% fyrir árið 2012. Vann 2 milljónir í lottói -en týndi svo miðanum Mike Sargent keypti sér skafmiða í heimabæ sínum, Alvarado í Texas, fyrir réttum mánuði og varð heldur betur glaður þegar í ljós kom að tveggja milljóna króna vinningur var á miðanum. Hann ritaði nafn sitt á miðann, eins og lög gera ráð fyrir og hringdi síðan heim í kon- una og tilkynnti henni að hann myndi færa henni bestu jólagjöf sem hún gæti hugað sér. Þegar hann kom heim var miðinn hins vegar týndur. „Ég held að guð hafi hrein- lega tekið hann úr höndum mínum,“ sagði Sargent i samtali við CNN. Hann og vinur hans eyddu heilum sólarhring í að leita að miðanum við þjóðveg 67 í Texas, en án árangurs. Hann hringdi jafnvel í neyðarlínuna 911 kvöldið sem miðinn týndist og óskaði eftir því að slökkviliðsmenn mættu á leitarsvæðið til að lýsa það upp. Þeirri ósk var hafnað. Næstu daga á eftir leituðu Sargent og vinir hans á öllum mögulegum stöðum, skoðuðu meðal annars ruslafötur við verslunina þar sem miðinn var keyptur og limdu upp tilkynningar þar sem fundarlaunum var heitið, en allt kom fyrir ekki. Loksins, fimm dögum síðar, fékk Sargent símatal frá starfsmanni vatnsveit- unnar sem fann hinn heittelskaða lottómiða nokkur hundruð metrum frá versluninni þar sem hann var keyptur. Sá hafði ekki vitað um leitina en gat greint undirskrift Sarg- ents á miðanum. Fyrst ætlaði hann að hirða miðann sjálfur en lét síðan undan kröfum konu sinnar um að skila miðanum. Sargent lét hann hins vegar fá rífleg fundarlaun og sjálfur lítur hann á þetta sem merki frá guði - hann eigi að hætta að taka þátt í lottói. Vín mánaöarins er Stone Cellars Chardonnay eöa Merlot Tjakakötturinn á aðventunni LjújfengurjóCamatseðiCC 1Forréttir Kjúklingalifra parfait meö fíkjumauki og rauðvíns gljáa og reyktur áll með hrærðum eggjum Mifdréttur Heimalöguð síld með ísköldu ákavíti JlðaCréttir Andabringa og foie gras fyllt ravioli með soðgljáa eða svínalund fyllt með ávöxtum og hnetum með sveppa ragú og portvínssósu Oesert Crépes Suzette með rum og rúsínu ís Aðeins 5300,- pr. mann Borðapantanir í síma 514-6060 Gjótuhraun 4 Fjalakötturinn - Hótel Reykjavík Centrum Aðalstræti 16 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.