blaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 44

blaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 44
441 SMÁSAGA LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2005 blaöiö Ingibjörg Ólöf Benediktsdóttir úr Varmalandsskóla í Borgarfirði var í efsta sceti í sögusamkeppni SAFT, Töfrar og netöryggi. Hún var í gœr viðstödd Jfátíðarathöfn í París þar sem sigurvegarar frá 17 löndum fengu viðurkenningu fyrir sögur sínar. Hér er saga Ingibjargar. Undarlegir atburðir Hjónarúm 180x200 cm Verð frá kr. Urvalið er hjá RB 160x200 cm Hjá okkur er fjölbreytnin í fyrirrúmi. Þú velur það sem þér hentar: Springdýnur, tvöfaldar fjaðradýnur, sérhannaðar sjúkradýnur með varmaklæðningu eða Super deluxe og Grand deluxe springdýnur pgjj með tvöföldum mjúkum yfirmottum. Sælurúm Verð frá Sængurfatnaður og fylgihlutir Rúmteppi, púðar, pífur, sængurverasett, lök, dýnuhllfar, náttborð, kommóður og margt fleira. án fylgihluta Stærðir: 80-90-1.20,-1.30 cm. Sérhæfing í framleiðslu og hönnun springdýna. Dalshrauni 8 220 Hafnarfirói www.rbrum.is ,Hæ komdu inn!“ sagði Lilja, dökkhærð 13 ára stelpa og tók á móti Dagnýju, taugaóstyrkri vinkonu sjnni í dyrunum. Dagný klæddi sig *ttr ótrúlega gulri úlpu og gekk inn í stofu með Lilju. „Hvað segirðu, eigum við að koma í tölvuna?" spurði Lilja hress. „Jájá... mér er alveg sama,“ sagði Dagný sakleysislega. „Komum þá! “sagði Lilja og teymdi Dagnýju inn í tölvuherbergið. Lilja kveikti á tölvunni en hikaði svo. .Heyrðu, ég ætla að setja tagl í mig, bíddu hér. Þú mátt fara inn á þitt MSN, ég fer bara inn á mitt á eftir.“ Lilja gekk fram á bað og setti í sig tagl. 5 mínútum seinna gekk hún inn í tómt tölvuherbergið. „Veistu ég er að spá í að fara í klipp... Dagný?“ Lilja leit í kringum sig en sá hvergi vinkonu sína. Þarna var ekkert nema gamla skrifborðið hennar mömmu og talvan. „Haha Dagný, voða fyndin. Þá fer ég bara inn á mitt MSN fyrst þú kemur ekki.“ Lilja stóð út á miðju gólfi og beið eftir vinkonu sinni. Ekkert svar kom. Hún yppti öxlum og gekk að suðandi tölvunni. Á meðan hún sló inn lykilorðið glotti hún og beið eftir að Dagný kæmi og brygði henni. „BÍB!“ gargaði tölvan allt í einu svo Lilja hrökk í kút. Þegar hún loksins náðiandanum áttaði hún sig á því að hún var byrjuð að minnka, eða tölvan að stækka. Þegar tölvan var orðin jafn stór og 6 hæða blokk byrjaði Lilja skelfingu lostin að hlaupa af stað. Tölvan stökk á hana og gleypti hana í sig. Enn og aftur var litla tölvuherbergið orðið tómt fyrir utan gamla skrifborðið og tölvuna, sem var nú búin að koma sér fyrir úti í horni. Ekkert hljóð heyrðist í þessu stóra húsi, nema suðið í tölvunni... En snúum okkur aftur að Lilju. Eftir að tölvan át hana sogaðist hún inní risastóran hvirfilbyl. Allt í einu sá hún að hún var að hrapa niður. Langt, langt niður! Hún lenti harkalega á jörðinni, lá þar um stund eins og klessa, en stóð svo upp. „Áá...“ stundi hún á meðan hún nuddaði aumt bakið. „Hvar er ég eiginlega?“ Hún starði út í loftið. Þetta var skrítnasti staður sem hún hafði nokkru sinni komið á. Þarna voru vírar og snúrur á stærð við strætóa og rykhnoðrar, jafnstórir og meðalstórt skrifborð. Þarna voru líka risavaxnar hurðir sem á stóð með stórum stöfum LEIT.IS, TÖLVUPÓSTUR og SPJALL. Lilja labbaði að einni hurðinni. „Og hver ert þú með leyfi?“ heyrðist kallað svo hvellt að Lilja hrökk í kút. Þarna stóð manneskja sem Lilja var ekki alveg viss hvort væri kona eða karl, með ljótustu klippingu sem hún hafði nokkurn tímann séð. Það var eins og sturluð hæna hefði náð i skæri og tryllst á hausnum á verunni sem stóð nú fyrir framan hana og starði á hana í gegnum þykkt stækkunargler sem hún hélt á í hendinni. „É-ég heiti Elísabet Lilja, kölluð Lilja“ sagði Lilja á meðan skrítna veran labbaði hringinn í kringum hana og einblíndi á hana í gegnum stækkunarglerið. „Aha... Þú gerir þér grein að þú ert stödd á minni síðu, ha?!“ „Þinni síðu? Hvað ertu að bulla? Hver ert þú annars?“ spurði Lilja. „Á minni síðu! Veistu ekki hvað það þýðir? Talarðu ekki netmál? Og ég man ekki eftir að hafa gefið þér leyfi til að spurja mig eitt eða neitt!" sagði veran með sinni hvellu röddu. „Hvað er í gangi hér?“ sagði önnur rödd. Lilja sneri sér við og sá afar hávaxinn mann fóta sig í gegnum vírana og leiðslurnar sem urðu á vegi hans. Hann var í bláum jakka og buxum í stíl og hann, eins og Lilja, var með tinnusvart hár. Hann labbaði í áttina að Lilju. „Komdu sæl,“ sagði hann vingjarnlega og tók í hendina á henni „Fáðu þér bækling gæskan,“ sagði hann og rétti henni bækling. Svo labbaði hann til geðvondu verunnar með skrítna hárið. Lilja starði á manninn og leit svo á bæklinginn; „Ábyrg netnotkun! Netið er afar vafasamt og er engin skömm á því að varast það. Þú verður að passa þig á því að gefa engum persónupplýsingar um þig því að það er fólk sem þú þekkir ekki og það getur misnotað þær upplýsingar...“ Lilja las ekki lengra en hún sá að neðst stóð nafnið Ábyrgur. „Ábyrgur? Heitir einhver það?“ spurði Lilja forviða. Sá vingjarnlegi opnaði munninn og ætlaði að fara að útskýra en sú freka varð á undan. „Já, auðvitað! Ábyrgur, það er sá sem stendur hérna við hliðina á mér!“ Hún sneri sér að Ábyrgi. „Þú gerir þér grein fyrir að þetta er mannvera númer tvö sem kemur hingað óboðin á stuttum tíma?“ Ábyrgur brosti. „Já, Netvörður, ég geri mér fulla grein fyrir því. En ef við lítum á björtu hliðarnar þá er ég búinn að losa mig við tvo bæklinga á þremur dögum!“ sagði hann og skælbrosti. „Netvörður? Ert það þú eða... ?“ spurði Lilja geðvondu veruna. „Já, það er ég! Og ef þér finnst það einhvað skrítið geturðu bara hypjað þig!“ Lilja kaus að svara þessu ekki. „Er ég vera númer tvö? Er þá einhver annar búinn að koma hingað?“ Ábyrgur ræskti sig. „Já, hún heitir Dagný og er aðeins minni og fölari en þú. Við ákváðum að skíra hana Hrekklaus, því að hún er svo saklaus. Við gáfum henni einnig ný föt þannig að hún færi eftir nýjustu tísku hér í Netbæ,“ sagði hann vingjarnlega. Lilja varð mjög hissa. „Er langt síðan að hún kom hingað?" Netvörður fnæsti á meðan Ábyrgur svaraði. „Já, það eru tveir dagar síðan eða svo...“ Lilju brá. „Tveir dagar?! En ég er nýkomin og hún kom rétt á undan mér!“ „Já! Það er af því að bæði þú og hún voru svo lengi á leiðinni í hvirfilbylnum! Og svo líður tíminn mun hraðar hér en í ykkar heimi“ sagði Netvörður frekjulega. „Ég skil...“ sagði Lilja djúpt hugsi og nennti ekki að ergja sig á Netverði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.